Skeljungur endurgreiðir ríkisstuðninginn

For­stjóri Skelj­ungs segir að félagið hafi ákveðið að bjóða öllum starfs­mönnum sínum 100% vinnu og end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun, eftir að félagið fékk gagn­rýni fyrir að greiða eig­endum arð á sama tíma og sótt var um rík­is­að­stoð.

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhann­es­son Baugs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi er stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs.

Fyr­ir­tækið Skelj­ungur er hætt við að nýta sér rík­is­að­stoð í gegnum hluta­bóta­leið­ina og mun end­ur­greiða það sem ríkið hefur greitt vegna starfs­manna félags­ins í apr­íl­mán­uði, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu sem fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Árni Pétur Jónsson, sendi rétt í þessu.

Stundin greindi frá því í fyrra­dag og í gær að hlut­haf­ar fé­lags­ins hefðu fengið 600 millj­ón­ir króna í arð frá fé­lag­inu og að sex dög­um síðar hafi starfs­menn Skelj­ungs verið settir á  hluta­bóta­leið­ina.

Í yfir­lýs­ing­unni nú segir að Skelj­ungur bjóði „öllum starfs­mönnum sínum 100% vinnu og end­ur­greiði Vinnu­mála­stofnun“.

„Í fjöl­miðlum í dag hefur verið fjallað um kostnað rík­is­sjóðs vegna þeirra starfs­manna Skelj­ungs sem fengu hluta­bóta­greiðslur í apríl.   Að athug­uðu máli telur Skelj­ungur að ekki hafi verið rétt að nýta úrræðið.  Skelj­ungur mun því bjóða starfs­mönnum sínum 100% vinnu frá og með 1. maí og end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun allan þann kostnað sem til féll vegna starfs­manna Skelj­ungs í apr­íl­mán­uði.   Allir starfs­menn Skelj­ungs hafa nú verið færðir í 100% vinnu­hlut­fall og munu því ekki sækja frek­ari bætur til Vinnu­mála­stofn­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár