Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.

Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
Íslensk mynd­grein­ing nýtti hluta­bóta­leið­ina Lækn­inga­fyr­ir­tækið Íslensk mynd­grein­ing varð fyrir miklu tekju­falli í apríl og nýtti hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur um ára­bil verið eitt besta rekna og arð­bærasta einka­rekna lækn­inga­fyr­ir­tæki lands­ins. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint.

Eitt arð­bærasta einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæki lands­ins nýtti hluta­bóta­leið­ina í COVID-19 far­aldr­inum í apríl eftir að hafa greitt út tæp­lega 450 millj­óna króna arð til fjög­urra hlut­hafa þess á árunum 2013 til 2018. Fyr­ir­tækið heitir Íslensk mynd­grein­ing ehf. og er mynd­grein­ing­ar­fyr­ir­tæki sem tekur röntgen­myndir, tölvu­sneið­myndir og fram­kvæmir ómskoð­anir. Fyr­ir­tækið hefur verið til húsa í Orku­hús­inu á Suð­ur­lands­braut en flutti nýverið í Urð­ar­hvarf í Kópavogi ásamt annarri heil­brigðistengdri starf­semi sem verið hefur í Orku­hús­inu um ára­bil. 

Við þessa tæp­lega 450 millj­óna króna arð­greiðslu bæt­ist rúm­lega 111 millj­óna króna útgreiðslu út fyr­ir­tæk­inu árið 2017 sem var lækkun hluta­fjár. Samtals er því um að ræða rúm­lega 560 millj­óna króna greiðslur út úr fyr­ir­tæk­inu á 5 ára tíma­bili. 

Rekstur fyr­ir­tæk­is­ins er fjár­magn­aður á grund­velli samn­ings við Sjúkra­trygg­ingar Íslands.

Lækn­is­fræði­leg mynd­grein­ing á Íslandi fer bæði fram innan Land­spít­ala-háskóla­sjúkra­húss og eins hjá einka­reknum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár