Öryggismiðstöðin setti 130 manns á hlutabætur: 211 milljóna hagnaður árið 2018 og 200 milljóna arðgreiðslur 2017

Þrír fjórðu hlutar starfs­manna sem settir voru á hluta­bætur störf­uðu við flug­vernd­ar­þjón­ustu í Keflavík. Um 30 manns unnu á öðrum sviðum fyr­ir­tæk­is­ins. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins er tal­inn í hund­ruðum millj­óna síð­ustu ár.

Öryggismiðstöðin setti 130 manns á hlutabætur: 211 milljóna hagnaður árið 2018 og 200 milljóna arðgreiðslur 2017
Nýta sér hluta­bóta­leið­ina Örygg­is­mið­stöðin nýtti hluta­bóta­leið­ina fyrir 130 starfs­menn sína. Fyr­ir­tækið hefur verið rekið með hund­ruða millj­óna króna hagn­aði síð­ustu ár og greiddi sam­tals 340 millj­ónir króna í arð til eig­enda sinna á árunum 2016 og 2017.

Örygg­is­mið­stöð Íslands nýtti sér hluta­bóta­leið stjórn­valda fyrir 130 starfs­menn fyr­ir­tækja­sam­stæð­unnar strax og sú leið varð í boði. Um 400 manns starfa hjá fyr­ir­tæk­inu sem hafði rúm­lega 5 millj­arða tekjur af rekstri árið 2018 og nam hagn­aður af rekstr­inum það ár 211,5 millj­ónum króna. Árið áður, 2017, voru greiddar 200 millj­ónir króna í arð til eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Stærstur hluti starfs­mann­anna sem voru færðir á hluta­bóta­leið­ina störf­uðu hjá dótt­ur­fé­lag­inu AVIÖR ehf. sem sinnir flug­vernd­ar­þjón­ustu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Um 100 starfs­menn störf­uðu við þau verk­efni og segir Ómar Örn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­sviðs og vel­ferð­ar­tækni hjá Örygg­is­mið­stöð­inni, að eðli máls­ins sam­kvæmt hafi þau verk­efni stöðvast því sem næst full­kom­lega. Þá hafi orðið erf­ið­ara um vik að sinna verk­efnum í tækni­þjón­ustu einnig. Fyr­ir­tækið hefur nú sagt upp 50 af þeim nálægt 100 starfs­mönnum sem unnu í flug­vernd­ar­þjón­ust­unni.

340 milljónir króna í arð á tveimur árum

Rekstr­ar­hagn­aður Örygg­is­mið­stöðv­ar­innar og dótt­ur­fé­laga var 211,5 millj­ónir króna árið 2018, 157,1 milljón króna 2017 og 220,8 millj­ónir króna árið 2016. Árs­reikn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2019 hefur ekki verið birtur. Enginn arður var greiddur út úr fyr­ir­tæk­inu árið 2018 en greiddar voru 200 millj­ónir króna í arð árið 2017 og 140 millj­ónir króna árið 2016. Stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins er félagið Unaós ehf. sem fjöldi aðila á hlut í, en félagið á 90 pró­sent hlut í Örygg­is­mið­stöð­inni.

Stærstu eig­endur Örygg­is­mið­stöðv­ar­innar eru Ragnar Þór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, sem á 30 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og Guð­mundur Ásgeirs­son, oft kenndur við Nesskip, sem á 27,6 pró­sent hlut. Þá á Hjör­leifur Þór Jak­obs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Hamp­iðj­unnar og ESSO, sem einnig stýrði Kili, fjár­fest­inga­fé­lagi Ólafs Ólafs­sonar, og sat í stjórn Kaup­þings, 13,8 pró­sent hlut í Örygg­is­mið­stöð­inni. Hjördís Ásberg, fjár­festir og stofn­andi heilsu­versl­an­anna Maður lif­andi á þá einnig 13,8 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu en þau Hjördís og Hjör­leifur eru gift. Hjör­leifur er jafn­framt stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins. Aðrir aðilar eiga smærri hluti.

Hörð gagnrýni á stórfyrirtæki sem þiggja ríkisaðstoð

Notkun íslenskra stór­fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið­inni hefur verið gagn­rýnd veru­lega á síð­ustu vikum eftir að fjöl­miðlar hafa greint frá því að fyr­ir­tæki eins og Hagar, Origo, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Skelj­ungur og Bláa lónið, svo dæmi séu nefnd, hafi nýtt sér leið­ina. Allt eru þetta meðal stönd­ug­ustu fyr­ir­tækja lands­ins, rekin með marg­millj­óna hagn­aði og hafa greitt eig­indum sínum svim­andi háar upp­hæðir í arð síð­ustu ár. Mörg þess­ara fyr­ir­tækja hafa stigið fram og til­kynnt að þau muni end­ur­greiða hluta­bæt­urnar, eftir umfjöllun fjöl­miðla.

Til stendur að Vinnu­mála­stofnun birti á næstu dögum lista yfir þau fyr­ir­tæki sem nýtt hafa hluta­bóta­leið­ina en Per­sónu­vernd hefur úrskurðað að í ljósi almanna­hags­muni skuli birta list­ann. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að aug­ljós­lega eigi þær upp­lýs­ingar erindi við almenn­ing. „Ég geri þá kröfu að stöndug fyr­ir­tæki mis­noti ekki opin­bera sjóði og úrræði sem ætluð eru sem neyð­ar­að­stoð við lífs­af­komu fólks,“ sagði Katrín í við­tali við Stundina á dög­unum. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur lýst því sem svo að fram­ferði stöndugra fyr­ir­tækja, sem þiggi rík­is­að­stoð í formi hluta­bóta­leið­ar­innar, án þess að hafa neina raun­veru­lega þörf þar á í ljósi fjár­hags­legrar stöðu og og fyrri arð­greiðslna, sé afskap­lega slæmt og „rekur rýt­ing í í sam­stöð­una sem við höfum öll verið að reyna að byggja upp á Íslandi til þess að kom­ast saman í gegnum þessa tíma.“

Verja störf með hlutabótaleiðinni

Í svörum sínum við spurn­ingum Stund­ar­innar um notkun hluta­bóta­leið­ar­innar segir Ómar, sem sjálfur á lít­inn hlut í fyr­ir­tæk­inu, 1,41 pró­sent, að stjórn­endur Örygg­is­mið­stöðv­ar­innar fagni umræðu í sam­fé­lag­inu um aðgerðir stjórn­valda og þeirri rýni sem fari fram á þær. „Við höfum nýtt hluta­bóta­leið stjórn­valda. Enda litum við svo á að þar væri áskorun til okkar að verja störf í fyr­ir­tæk­inu á áður óþekktum óvissu­tímum. Við tókum þeirri áskorun en strax við upp­haf Covid varð stór hluti okkar starfs­manna í raun verk­efna­laus. Af 360 starfs­mönnum fóru um 130 í hluta­störf.“

„Auk þessa er rétt að nefna að allir stjórn­endur hafa tekið á sig launa­lækkun meðan á þessum aðgerðum stendur“

Ómar segir að tek­ist hafi að verja meg­in­hluta starfa hjá fyr­ir­tæk­inu, með notkun hluta­bóta­leið­ar­innar og sam­stöðu starfs­manna. „Starfs­fólk hefur snúið bökum saman á magn­aðan hátt og fundið fjölda nýrra verk­efna til að lág­marka tjón af völdum Covid á rekstur félags­ins. Þannig hefur bæði verið hægt að finna og halda uppi að stórum hluta verk­efnum fyrir þá sem eru í hluta­störfum en jafn­framt hefur tek­ist að auka starfs­hlut­fall margra. Núna eru um 90 starfs­menn í hluta­starfi og fjöldi þeirra í hærra starfs­hlut­falli en upp­haf­lega var gert ráð fyrir.“

Ómar segir enn fremur að í maí mán­uði verði allir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins, utan þeir sem starfa við flug­vernd komnir í fullt starf aftur. Áfram verði hluta­bóta­leiðin nýtt fyrir 50 starfs­menn sem starfi við flug­vernd en sem fyrr segir hefur fyr­ir­tækið sagt upp öðrum 50 starfs­mönnum í þeim hluta rekstr­ar­ins. Fyr­ir­tækið hefur að sögn Ómars ekki nýtt greiðslur frá hinum opin­bera í upp­sagn­ar­fresti. „Auk þessa er rétt að nefna að allir stjórn­endur hafa tekið á sig launa­lækkun meðan á þessum aðgerðum stendur,“ segir Ómar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár