Skeljungur setti starfsfólk á hlutabætur tæpri viku eftir að hafa greitt 600 milljóna arð

Árni Pétur Jónsson, for­stjóri Skelj­ungs, segir að íslenska ríkið hafi greitt 6 til 7 millj­ónir af launa­kostn­aði félags­ins í apríl í gegnum hluta­bóta­leið­ina. Hlut­hafar félags­ins fengu 600 millj­ónir króna í arð frá félag­inu sex dögum áður en starfs­menn Skelj­ungs fóru á hluta­bóta­leið­ina. For­stjór­inn segir að í júní verði eng­inn starfs­maður félags­ins á hluta­bótum.

Sex dögum síðar
Sex dögum síðar Skelj­ungur greiddi út 600 millj­óna arð þann 2. apríl og setti svo starfs­menn á hluta­bóta­leiðna þann 8. apríl. Árni Pétur Jónsson er for­stjóri Skelj­ungs sem meðal ann­ars á bens­ín­stöðvar Orkunnar.

Olíu­fé­lagið Skelj­ungur byrj­aði að nýta hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu sex dögum eftir að hafa greitt út 600 millj­óna króna arð til hlut­hafa félags­ins í byrjun apríl. Þetta kemur fram í svörum frá for­stjóra Skelj­ungs, Árni Pétri Jónssyni.

Hann und­ir­strikar að ákvörð­unin að greiða út arð­inn hafi verið tekin í febr­úar, áður en COVID-far­ald­ur­inn skall á, og að úrræðið hafi ekki verið nýtt fyrir mjög marga starfs­menn. Þannig hafi launa­greiðsl­urnar frá íslenska rík­inu til starfs­mann­anna numið 6 til 7 millj­ónum króna í apríl.

„Okkur reikn­ast til að „hluta­bóta­greiðslur“ sem starfs­menn Skelj­ungs fengu vegna apr­íl­mán­aðar hafi numið um 6 til 7 millj­ónir króna,“ segir Árni Pétur. 

Þessi upp­hæð nemur um 1 pró­senti af arð­greiðsl­unni sem hlut­hafar félags­ins fengu greidda í apríl.

Árni Pétur segir enn­fremur að allir hlut­hafar Skelj­ungs hafi verið hlynntir arð­greiðsl­unni: „Tillögu um arð­greiðslu þarf að leggja fram þremur vikum fyrir aðal­fund og var hún því lögð fram í febr­úar, það er áður en áhrifa Covid-19 gætti.  Tillagan hljóð­aði upp á 600 millj­óna króna arð­greiðslu sem greiða skyldi út 2. apríl. Á aðal­fundi Skelj­ungs þann 5. mars var til­lagan sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þann 2. apríl upp­fylltum við sam­þykkt aðal­fundar með því að greiða arð­inn,“ segir í skrif­legu svari hans. 

Stundin greindi frá arð­greiðsl­unni út úr Skelj­ungi í gær og byggði á árs­hluta­upp­gjöri olíu­fé­lags­ins sem félagið birti opin­ber­lega. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og þarf þar af leið­andi að birta ítar­legar upp­lýs­ingar um rekstur sinn á hverjum árs­fjórð­ungi. Stundin hafði spurt Árna Pétur um arð­greiðsl­una og ætl­aða notkun á hluta­bóta­leið­inni á mánu­dag­inn var. For­stjór­inn vildi bíða með svör sín þar til eftir Skelj­ungur kynnti árs­hluta­upp­gjör sitt. 

Hluta­bóta­leiðin var lög­fest til að gagn­ast fyr­ir­tækjum sem urðu fyrir tekju­falli vegna COVID-19. Ekki er horft á þætti eins og eig­in­fjár­stöðu þegar metið er hvort ríkið eigi að greiða hluta launa starfs­manna sem fá hluta­bætur. Horft er á sam­drátt í tekjum. Þannig hefur til að mynda verið gagn­rýnt að Bláa lónið hafi nýtt sér úrræðið eitt fyrst íslenskra fyr­ir­tækja þrátt fyrir að vera fjár­sterkt. 

Árni Pétur: Gert samkvæmt tilmælum stjórnvalda

Árni Pétur segir að laun helstu stjórn­enda félags­ins hafi sömu­leiðis verið lækkuð um 25 til 30 pró­sent í byrjun apríl áður en arð­ur­inn var greiddur út og áður en Skelj­ungur hóf að nýta hluta­bóta­leið­ina. 

For­stjór­inn segir að Skelj­ungur hafi valið að fara hluta­bóta­leið­ina sam­kvæmt til­mælum stjórn­valda og til að reyna að verja störf hjá félag­inu „8. apríl var vinnu­fram­lag rúm­lega helm­ings starfs­manna Skelj­ungs skert.   Þannig var farið að til­mælum stjórn­valda um að reyna eftir fremsta megni að halda ráðn­inga­sam­bandi við starfs­menn okkar í stað þess að fara í upp­sagnir.  Með það að leið­ar­ljósi þá forð­uð­umst við upp­sagnir eins og við gátum og skertum frekar vinnu­fram­lag starfs­manna.“

„Ekki er gert ráð fyrir því að fólk verði í skertri vinnu í júní“

Hann segir að það sé í stöðugri end­ur­skoðun hvernig Skelj­ungur hagar vinnu­fram­lagi starfs­manna á þessum óvissu­tímum vegna COVID-19 og að félagið muni draga úr skertu starfs­hlut­falli þeirra sem fóru á hluta­bætur nú í maí.  „Þetta er í stöðugri end­ur­skoðun hjá okkur og gerum við ráð fyrir að draga úr skerð­ing­unni núna í maí og ekki er gert ráð fyrir því að fólk verði í skertri vinnu í júní,“ segir for­stjór­inn.

30 millj­óna arð­greiðsla365, félag Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fékk tæp­lega 30 millj­óna króna arð frá Skelj­ungi í byrjun apríl. Eig­in­maður Ingi­bjargar, fjár­festir­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son, er stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs.

Engar uppsagnir

Árni Pétur segir að Skelj­ungur hafi ekki þurft að fara í neinar upp­sagnir út COVID-far­aldr­inum: „Nei, hingað til hefur ekki verið farið í upp­sagnir hjá Skelj­ungi vegna Covid-19.“

Enn fremur segir hann að Skelj­ungur hafi gripið til hag­ræð­ing­ar­að­gerða upp á 200 millj­ónir króna fyrir tíma­bilið apríl til des­em­ber: Notkunn á hluta­bóta­leið­inni er því hluti af þeim aðgerðum. Hann segir stöð­una óljósa, eins og gefur að skilja, en að Skelj­ungur muni gera hvað félagið getur til að verj­ast högg­inu af COVID-19: „Félagið hefur gripið til marg­vís­legra hag­ræð­inga­að­gerða sem að stærstum hluta snú­ast um almennt kostn­að­arað­hald.  Við höfum kynnt að áhrif aðhalds­að­gerða okkar muni lækka kostnað upp á rúmar 200 millj­ónir króna fyrir tíma­bilið apríl til des­em­ber  2020. Ljóst er að ákveðnir tekju­póstar, s.s. milli­landa­flug, þjón­usta við skemmti­ferða­skip, umferð bíla­leigu­bíla og rútur, munu taka á sig mikið högg. Þá hefur þróun gjald­miðla og mikil lækkun á heims­mark­aðs­verði elds­neytis reynst félag­inu erfið. Mikil óvissa ríkir um það hvernig næstu mán­uðir munu þró­ast en við fylgj­umst grant með gangi máli eins og önnur fyr­ir­tæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár