Ísland setur engin skilyrði um bann við skattaskjólum til að fá ríkisaðstoð vegna COVID

Nágranna­ríki Íslands eins og Danmörk og Svíþjóð hafa sett skil­yrði sem banna fyr­ir­tækjum sem nýta sér skatta­skjól að fá rík­is­að­stoð vegna COVID. Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, hefur bent á að setja ætti slík skil­yrði en Alþingi hefur ekki tekið undir þetta.

Ísland setur engin skilyrði um bann við skattaskjólum til að fá ríkisaðstoð vegna COVID
Bjarni flutn­ings­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur verið flutn­ings­maður lag­ar­um­varpanna vegna COVId-19, nú síð­ast vegna greiðslu á launum á upp­sagn­ar­fresti. Ráð­herr­ann hefur ekki sett skil­yrði um skatta­skjól í þessi frum­vörp og þau hafa heldur ekki ratað inn í með­ferðum Alþingis. Mynd: Geiri Pix / Pressphotos.biz

Alþingi Íslend­inga hefur ekki sett nein skil­yrði í laga­setn­ingu um fjár­hags­legan stuðn­ing vegna COVID-19 um að fyr­ir­tæki í skatta­skjólum eða á lág­skatta­svæðum geti ekki fengið slíka fjár­hags­að­stoð.  Þetta hefur, hingað til, ekki verið gert í neinu laga­frum­varpi vegna afleið­inga COVID-19. 

Slík skil­yrði hafa verið inn­leidd í mörgum Evr­ópu­löndum, meðal ann­ars nágranna­lönd­unum Danmörku og Svíþjóð, sem og í Frakk­landi og Póllandi.  

Nú er Ísland vissu­lega fámenn­ar­ara en þessi ríki og því má ætla að ekki séu eins mörg dæmi um notkun fyr­ir­tækja á skatta­skjólum.

Hins vegar þá eru ekki nema örfá ár síðan að Panama­skjölin svoköll­uðu sýndu fram á hlut­falls­lega mikla notkun Íslend­inga á félögum í skatta­skjólum í gegnum lög­manns­stof­una Mossack Fonseca í Panama. Fjöldi félaga sem íslenskir aðilar áttu var jafn­vel í sumum til­fellum meiri en fjöldi félaga frá ríkjum með íbúa­fjölda upp á fleiri millj­ónir. TIl að mynda voru um 600 félög tengd Íslend­ingum í við­skiptum við Mossack Fonseca á meðan þar var að finna 600 félög með tengsl við Svía þrátt fyrir að Svíþjóð sé 30 sinnum fjöl­menn­ara en Ísland. 

Gagnrýnt að skilyrðið útiloki of fáa

Í Danmörku hefur þetta skil­yrði til dæmis úti­lokað 19 fyr­ir­tæki frá því að njóta fjár­hags­legs stuðn­ings rík­is­ins vegna afleið­inga COVID-19.

Þar í landi hefur verið bent á að skil­grein­ing danskra yfir­valda á skatta­skjólum gangi ekki nægi­lega langt og að þar með sé þetta skil­yrði lag­anna að vissu leyti upp á punt þar sem það úti­loki ein­ungis 19 fyr­ir­tæki frá rík­is­að­stoð­inni. 

„Þetta er klárt skil­yrði að fyr­ir­tæki mega ekki nota skatta­skjól ef þau ætla að fá að njóta þeirrar aðstoðar sem ríkið hefur upp á bjóða í kór­óna­krís­unni“

Ástæðan er sú að Danmörk ákvað að ein­ungis dönsk fyr­ir­tæki sem eru í beinni eigu fyr­ir­tækja í skatta­skjólum sem eru á svarta lista Evr­ópu­sam­bands­ins geti verið úti­lokuð frá rík­is­að­stoð­inni. Óbeint eign­ar­hald, í gegnum röð félaga, úti­lokar því ekki dönsk fyr­ir­tæki frá því að njóta rík­is­stuðn­ings­ins og beint eða óbeint eign­ar­hald í lág­skatta­ríkjum eins og Kýpur, Möltu eða Lúx­em­borg ekki heldur. 

En eftir sem áður er Danmörk með ein­hver slík skil­yrði um notkun skatta­skjóla í COVID-19 lög­gjöf sinni um fjár­hags­að­stoð til fyr­ir­tækja sem Ísland er til dæmis ekki með. 

Hefur vakið athygliSú stað­reynd að Danmörk var eitt fyrsta landið til að banna fyr­ir­tækjum sem vilja nýt sér fjár­stuðn­ing vegna COVID-19 vakti mikla athygli. Mette Fred­rik­sen er for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur.

Um þetta hefur tals­maður danskra sós­í­alde­mókrata í skatta­málum, Troels Ravn, sagt: „Þetta er klárt skil­yrði að fyr­ir­tæki mega ekki nota skatta­skjól ef þau ætla að fá að njóta þeirrar aðstoðar sem ríkið hefur upp á bjóða í kór­óna­krís­unni. Þessi rík­is­stjórn hefur, ef ein­hver hefur gert það, tekið skýra afstöðu gegn þeim sem reyna að kom­ast hjá greiðslu skatta.“

Danskir fjöl­miðlar hafa hins vegar fjallað um fyr­ir­tæki eins og flug­vélamat­ar­fyr­ir­tækið Gate Gourmet sem hefur fengið 42 millj­ónir danskra króna í hluta­bætur. End­an­legur eig­andi félags­ins er í skatta­skjól­inu Cayman-eyjum en þar sem eign­ar­haldið er í gegnum röð eign­ar­halds­fé­laga í Lúx­em­borg og Sviss þá á skil­yrðið í dönsku lög­unum ekki við þetta fyr­ir­tæki. Fyr­ir­tækið í Danmörku þarf að vera í beinni eigu fyr­ir­tæk­is­ins í skatta­skjól­inu til að skil­yrðið eigi við um það. 

Ekki tekið tillit til hugmynda Indriða

Síðast í fyrra­dag skil­aði efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis frá sér breyt­ing­ar­til­lögu vegna lag­setn­ingar um greiðslu rík­is­ins á hluta launa starfs­manna sem fyr­ir­tæki hafa sagt vegna efna­hags­legra afleið­inga COVID-19.

Indriði Þor­láks­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, sendi nefnd­inni umsögn þar sem hann kom með tvær ólíkar útfærslur á því hvernig hægt væri að koma í veg fyrir að fyr­ir­tæki á lág­skatta­svæðum nýttu sér stuðn­ing­inn.  Með lág­skatta­svæðum átti Indriði við svæði þar sem greiddur tekju­skattur er minna en 2/3 hlutar sam­bæri­legs skatts á Íslandi. 

Samkvæmt annarri hug­mynd Indriða áttu „tengsl við lág­skatta­svæði ein sér“ að geta úti­lokað fyr­ir­tæki frá því að geta nýtt sér stuðn­ing­inn: „Tillaga A felur í sér að tengsl við lág­skatta­svæði ein sér, þ.e. að hafa búið til mögu­leika á tekju­flutn­ingi þangað, nægi til þess að úti­loka við­kom­andi aðila frá stuðn­ingi með fé úr sjóðum almenn­ings sem þeir hafa sýnt að þeir vilji ekki greiða sinn hluta til,“ eins og segir í erindi Indriða. 

Hin hug­mynd Indriða var að fyr­ir­tæki þyrfti að sýna fram á að það hefði ekki haft tengsl við fyr­ir­tæki á lág­skatta­svæðum í þrjú ár. „Tillaga B er frá­brugðin að því leyti að með henni er gengið skemmra. Í henni er miðað við að til þess að öðl­ast rétt skv. lög­unum þurfi að liggja fyrir að við­kom­andi félag hér á landi eða raun­veru­legur eign­andi þess hafi ekki átt í fjár­hags­legum sam­skiptum við aðila sem stað­settur er á lág­skatta­svæði síð­ast liðin þrjú ár. Formleg en óvirk tengsl af þessum toga hafi því ekki áhrif á rétt hans,“ sagði í til­lögu Indriða. 

Efnahags- og við­skipta­nefnd tók ekki til­lit til þess­arar tilllögu og eru engin slík skil­yrði um að notkun lág­skatta­svæða eða skatta­skjóla komi í veg fyrir að fyr­ir­tæki geti nýtt sér þessa rík­is­að­stoð á tímum COVID-19.  Þá var, eins og liggur auð­vitað ljóst fyrir sökum þess að Indriði sendi þessa umsögn inn til að byrja, engin slíkt skil­yrði um lág­skatta­svæði eða skatta­skjól í upp­haf­legu frum­varpi fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar. 

Mörg fyrirtæki með tengsl við lágskattasvæði

Þetta ger­ist sam­tímis og listi Vinnu­mála­stofn­unar og skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­bóta­leið­ina eru birt og í umræð­unni. Í þeim gögnum koma fram nöfn þeirra fyr­ir­tækja á Íslandi sem notað hafa hluta­bóta­leið­ina á síð­ustu á mán­uðum. 

Mörg þess­ara fyr­ir­tækja eru með eign­ar­hald á lág­skatta­svæðum og eða nota fyr­ir­tæki á slíkum svæðum með einum eða öðrum hætti í starf­semi sinni. Líklegt má telja að mörg þeirra fyr­ir­tækja sem ákváðu að nýta sér hluta­bóta­leið­ina muni einnig nýta sér úrræði rík­is­ins um að það greiði hluta launa starfs­manna þeirra á upp­sagn­ar­fresti ef þeim verður sagt upp. 

Sem dæmi um fyr­ir­tæki sem eru með beinu eða óbeinu eign­ar­haldi í skatta­skjólum eða á lág­skatta­svæðum sem nýttu hluta­bóta­leið­ina má nefna Sjó­klæða­gerð­ina, 66 gráður norður; mat­væla­fyr­ir­tækið Mata hf.; flutn­inga­fyr­ir­tækið Samskip og hót­el­fyr­ir­tækið Gistiver.

Þá nota fyr­ir­tæki eins og til dæmis flug­fé­lagið Air Atlanta félög á lág­skatta­svæðum eins og Möltu til að greiða laun starfs­manna sinna út í heimi jafn­vel þó eign­ar­hald félags­ins sé alfarið á Íslandi. 

Ef ríkisvaldið leyfir það eru öll fyrirtæki í rétti

Eins og fjallað hefur verið um í Stund­inni í nokkrum fréttum þá voru ekki sett inn nein ákvæði um skatta­skjól í lögum um hluta­bóta­leið­ina, stuðn­ings- eða brú­ar­lán, nú eða nú síð­ast í lögin um þát­töku rík­is­ins í greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti. 

Þegar Stundin ræddi við fram­kvæmda­stjóra mat­væla­fyr­ir­tæk­is­ins Mata, Eggert Árna Gíslason, og spurði hann hver væri end­an­legur eig­andi Möltu­fé­lags­ins Coldrock Invest­ments Limited á Möltu, sem aftur er í eigu ann­ars félags á Möltu sem heitir HEGG, sagði hann að hann ætl­aði ekki að ræða það:  „Ég kýs bara að tjá mig ekki um þessi mál. Mér finnst ég ekki hafa neina ástæðu til að tjá um þetta. Ef það hefði legið fyrir í byrjun að hafa ein­hverjar tak­mark­anir á því hverjir mættu nýta hluta­bóta­leið­ina þá hefði ég bara sætt mig við það. En ég ætla ekki að fara í ein­hverja umræðu í bak­sýn­is­spegl­inum um þetta.“  

Eins og Eggert bendir á var Mata hf. í fullum rétti til að nota hluta­bóta­leið­ina af því engin skil­yrði um eign­ar­hald á lág­skatta­svæðum eins og Möltu höfðu verið sett inn í lögin. Mata hf. fylgdi því ein­fald­lega gild­andi reglum og lögum. 

Sömu sögu má segja um önnur fyr­ir­tæki sem eru í eigu félaga á lág­skatta­svæðum. Með því að setja engin skil­yrði í laga­setn­ing­una um fjár­hags­að­stoð­ina vegna COVID-19 er meiri­hlut­inn á Alþingi að leggja blessun sína yfir mögu­leik­ann á því að fyr­ir­tæki með tengsl við skatta­skjól fái stuðn­ing úr rík­is­sjóði.

Flutn­ings­menn frum­varpanna um COVID-19 stuðn­ing­inn er með þessu ekki að taka undir þær for­sendur sem Indriði Þor­láks­son, til dæmis, byggir sína gagn­rýni á skort á skil­yrðum um bann við notkun skatta­skjóla á.

„Skatta­skjól sem slík eigi því að úti­loka frá sam­skiptum á við önnur ríki og alþjóða­sam­fé­lagið“

Eins og Indriði orð­aði það í umsögn sinni um frum­varpið um greiðslur rík­is­ins á launum á upp­sagn­ar­fresti vegna COVID-19:  Þá hefur sú skoðun „verið hefur að styrkj­ast í fjöl­þjóð­legu sam­starfi, að skatta­skjól séu sem slík skað­leg fyrir þjóðir heims frá efna­hags­legu og félags­legu sjón­ar­miði, ræni lönd skatt­tekjum, séu hem­ill á efna­hags­legar fram­farir og auki mis­skipt­ingu eigna og tekna. Til­gangur þeirra sem þau nota sé sá einn að kom­ast undan því að greiða sinn hluta af sam­fé­lags­legri starf­semi. Skatta­skjól sem slík eigi því að úti­loka frá sam­skiptum á við önnur ríki og alþjóða­sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár