Annað félag kennt við landsliðsþjálfarann úrskurðað gjaldþrota

Bræð­urnir Arnar og Bjarki Gunn­laugs­son flugu hátt í við­skipta­líf­inu, en fóru í þrot. Ekkert fékkst upp í kröfur ráð­gjaf­ar­fé­lags þeirra sem nú er gjald­þrota. Þeir hugs­uðu of stórt og tóku of mikla áhættu, en við­skipta­fer­ill þeirra er tákn­rænn fyrir tíð­ar­and­ann.

Annað félag kennt við landsliðsþjálfarann úrskurðað gjaldþrota
Arnar Gunn­laugs­son Lands­liðs­þjálf­ari Íslands í knatt­spyrnu fór í gegnum gjald­þrot 2019 og eitt félag sem var í hans eigu hefur form­lega lokið skiptum eftir þrot. Mynd: Víkingur

Ráð­gjaf­ar­fé­lag sem kennt var við Arnar Gunn­laugs­son, lands­liðs­þjálf­ara íslenska knatt­spyrnu­lands­liðs­ins, og tví­bura­bróður hans, Bjarka Gunn­laugs­son, hefur verið úrskurðað gjald­þrota án þess að nokkuð hafi feng­ist upp í kröfur.

Þetta er hluti af upp­gjöri á við­skipta­æv­in­týri bræðr­anna sem hófst fyrir efna­hags­hrunið 2008 og end­aði með gjald­þroti beggja.

Úrskurð­ur­inn var birtur í gær og kom fram að skiptum hefði lokið „án þess að greiðsla feng­ist upp í lýstar kröfur, auk áfall­inna vaxta og kostn­aðar eftir úrskurð­ar­dag gjald­þrota­skipta“.

Hluti af veldi bræðranna

Um er að ræða félagið AB ráð­gjöf. Félagið var í eigu ann­ars félags Arnars, sem hét A. Gunn­laugs­son ehf. Það fór líka í gjald­þrot og var úrskurðað gjald­þrota í mars 2023. Félagið hafði þá verið fært yfir á mág­konu Arnars, Rósu Signýju Gísla­dóttur, eig­in­konu Bjarka Gunn­laugs­sonar. 

A. Gunn­laugs­son ehf. var ásamt B. Gunn­laugs­syni ehf. eig­andi að hlut í leigu­fé­lag­inu Heima­völlum, sem byggði á fyrri …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Hugsaði alltof stórt"
    Það sama virðist eiga við um landsliðið. Menn breytast ekkert.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár