Hleypt út af Stuðlum á átján ára afmælinu

Fannar Freyr Har­alds­son var mjög lágt settur þegar hann var fyrst vistaður á neyð­ar­vistun Stuðla. Það breytt­ist þó hratt. „Ég var orð­inn sami gaur og hafði kynnt mig fyrir þessu.“ Eftir harða bar­áttu öðl­að­ist hann kjark til þess að reyna að ná bata eftir áhrifa­ríkt sam­tal við afa sinn.

Hleypt út af Stuðlum á átján ára afmælinu

Eftir langvar­andi glímu við van­líðan og fíkn, er Fannar Freyr Har­alds­son nú að taka stúd­ents­prófið í Mynd­lista­skól­anum í Reykja­vík. Þegar hann lauk með­ferð í Krýsuvík fyrir nokkrum árum síðan hóf hann end­ur­hæf­ingu hjá Hringsjá. „Ég byrj­aði í námi þar eftir átta mán­aða edrú­mennsku. Ég stefni á graf­íska hönnun, því ég er mik­ill teikn­ari og hef gaman af list, en ég er enn að finna mig.“

Fannar er einn týndu strák­anna sem steig fram í for­síðu­um­fjöllun Heim­ild­ar­innar, þar sem þeir lýstu reynslu sinni af kerf­inu sem átti að grípa þá sem börn, ung­lingar og ungir menn. 

Leið illa í æsku 

Hann er tíma­bund­inn, því í kvöld aðstoðar hann við upp­setn­ingu á tón­leikum í Tjarn­ar­bíói, svo hann fer hratt yfir sögu. Í grunn­skóla var Fannar metn­að­ar­fullur nem­andi. „Sagan mín er ekki dæmi­gerð að þessu leyti. Ég átti auð­velt með að læra og gekk vel í skóla en það …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Týndu strákarnir

InnlentTýndu strákarnir

„Starfs­menn hafa verið hræddir“

Á Stuðlum hefur sér­stöku öryggis- og við­bragð­steymi hefur verið komið á til að takast á við árásir á starfs­menn og tryggja að þving­anir gagn­vart börnum fari fag­lega fram. Tengsl eru besta for­vörnin segir starf­andi for­stöðu­maður en það dugar ekki alltaf til. Starfs­menn hafa lent í því að það er hrækt á þá, þeir bitnir, skall­aðir og nef­brotnir. Sparkað hefur verið í haus­inn á starfs­mani, hár rifið af höfði starfs­manns og brotin tönn.
InnlentTýndu strákarnir

Syrgja fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing: Til mik­ils unnið ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað

„Við leyfum ekki neyslu hér inni en hver er hinn val­mögu­leik­inn?“ spyr starf­andi for­stöðu­maður Stuðla. Reglur kveða skýrt á um að fíkni­efni séu bönnuð á Stuðlum en börnum er ekki vísað út vegna neyslu. Ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað er til mik­ils unnið. „Þetta eru börn sem við þurfum að vernda,“ segir for­stöðu­mað­ur­inn, en starfs­fólkið syrgir fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing.
VettvangurTýndu strákarnir

Stuðlar: „Með börn sem voru sek­úndum frá því að deyja“

Mann­skæður bruni, starfs­maður með stöðu sak­born­ings og fíkni­efnin flæð­andi – þannig hafa frétt­irnar verið af Stuðlum. Starfs­menn segja mikið geta gengið á. „Þetta er stað­ur­inn þar sem börnin eru stoppuð af,“ segir starf­andi for­stöðu­maður. Flestir sem þangað koma hafa orðið fyrir alvar­legum áföllum og bera sár sem getur tekið ævina að gróa.

38 mín. lestur

ÚttektTýndu strákarnir

„Ég spraut­aði mig í fyrsta skipti í með­ferð“

Gabríel Máni Jónsson upp­lifði sig alla tíð utan­garðs. Hann féll ekki inn í hefð­bund­inn ramma skóla­kerf­is­ins og var snemma tek­inn út úr hópnum. Djúpstæð van­líðan braust út í reiði og hann deyfði sára höfnun með efnum. Þar til hann fékk nóg og náði bata. „Ég gat ekki sætt mig við að vera gæinn sem ég hafði fyr­ir­litið og hatað frá barn­æsku.“

19 mín. lestur

ÚttektTýndu strákarnir

„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“

„Mér voru gefin erfið spil og þegar þú kannt ekki leik­inn er flókið að spila vel úr þeim,“ segir Arnar Smári Lárusson, sem glímdi við alvar­legar afleið­ingar áfalla og reyndi allar leiðir til þess að deyfa sárs­auk­ann, þar til það var ekki aftur snúið. „Ég var veikur, brot­inn og fannst ég ekki verð­skulda ást.“ Hann áréttar mik­il­vægi þess að gef­ast aldrei upp. „Það er alltaf von.“

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár