Verðbólgan sunkar óvænt í nýrri mælingu

Vísitala neyslu­verðs lækk­aði um 0,48% í nóv­em­ber, langt umfram spár.

Verðbólgan sunkar óvænt í nýrri mælingu
Verslað Jóla­versl­unin er hátindur einka­neyslu hvers árs, en eftir hana kemur gjarnan lækkun verð­bólgu eða jafn­vel lækkun á verð­lagi. Mynd: Golli

Vísitala neyslu­verðs, sem sýnir verð­bólgu, lækk­aði um 0,48% í nóv­em­ber, sem telst jákvætt fyrir fast­eigna­eig­endur með hús­næð­is­lán. Þetta er mun jákvæð­ari verð­lags­þróun en mæld­ist í nóv­em­ber í fyrra, þegar vísi­talan hækk­aði um 0,09%, og langtum betri þróun en spáð var.

Lækkun vísi­töl­unnar hefur bein áhrif á höf­uð­stól verð­tryggðra lána í jan­úar og vegur upp að fullu hækkun höf­uð­stóls þeirra sem á sér stað í des­em­ber vegna 0,47% hækk­unar vísi­töl­unnar í síð­asta mán­uði. Óljóst er hversu mikið gengur til baka af lækk­un­inni þegar útsölu­á­hrif hverfa í des­em­ber.

Greining Íslands­banka hafði spáð hækkun vísi­töl­unnar um 0,1% og að verð­bólga yrði áfam „pikk­föst“ næstu mán­uði. Lands­bank­inn hafði spáð því að verð­bólga hækk­aði um 0,13%.

Helsta ástæða lækk­un­ar­innar nú er minni hækkun hús­næðis en áður og lækkun sumra liða. Flug­far­gjöld til útlanda lækk­uðu um 14,3% (áhrif á vísi­töl­una -0,31%), hús­gögn, heim­il­is­bún­aður o.fl. lækk­aði um 2,2% (-0,11%) og föt og skór lækk­uðu um 2,7% (-0,10%). Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði (reiknuð húsa­leiga) hækk­aði um 0,5% (0,10%).

Hag­stofan vekur athygli á því að áhrifa afslátt­ar­daga í nóv­em­ber gætir meira að þessu sinni þar sem ekki er ein­ungis um að ræða 2-3 daga eins og áður heldur til­boð sem teygja sig yfir marga daga og jafn­vel vikur í mán­uð­inum.

Með lækkun vísi­töl­unnar í nóv­em­ber er verð­bólgan fallin niður í 3,7% úr 4,3% í síð­asta mán­uði. Hún hefur ekki verið lægri síðan í des­em­ber 2021, en engu að síður er hún 1,2% yfir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands, sem lækk­aði þó stýri­vexti um 0,25% fyrr í mán­uð­inum, sem leiddi til sömu lækk­unar á vöxtum sumra óverð­tryggðra fast­eigna­lána.

Gera má ráð fyrir hækkun vísi­tölu neyslu­verðs í des­em­ber, lækkun í jan­úar og ríf­legri hækkun í febr­úar þegar útsölu­á­hrif hverfa.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár