Bláa lónið fær ríkisaðstoð eftir 12 milljarða arðgreiðslur: Dugir fyrir launum í tæp tvö ár

Upp­safn­aðar arð­greiðslur Bláa lóns­ins frá 2012 til 2019 nema rúm­lega 12.3 millj­örðum króna. Félagið var með eigið fé upp 12.4 millj­arða árið 2018 en er eitt hið fyrsta sem nýtir sér hluta­bóta­leið rík­is­stjórn­ar­innar þar sem ríkið greiðir 75 pró­sent launa 400 starfs­manna Bláa lóns­ins næstu mán­uði.

Bláa lónið fær ríkisaðstoð eftir 12 milljarða arðgreiðslur: Dugir fyrir launum í tæp tvö ár
Mill­lj­arður í arð Á síð­ast­liðnum þremur árum hefur eign­ar­halds­fé­lag Gríms Sæmund­sen, for­stjóra og stærsta hlut­hafa Bláa lóns­ins, sem hann notar til að halda utan um eign­ar­hlut­inn greitt honum 1 millj­arða króna í arð. Mynd: Kristinn Magnússon

Hlut­hafar Bláa lóns­ins hafa greitt sér út rúm­lega 12,3 millj­arða króna arð frá árinu 2012 en leita nú á náðir rík­is­ins eftir greiðslu á hluta af launum 400 starfs­manna sinna í kjöl­far útbreiðslu Covid-19.

Tólf millj­arða arð­greiðslur hlut­haf­anna myndu nægja til að greiða óskert laun alllra starfs­manna Bláa lóns­ins í tvö ár miðað við heild­ar­launa­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins árið 2018. Árs­reikn­ingur fyrir 2019 liggur ekki fyrir. 

Árið 2018 ár greiddi Bláa lónið laun upp á tæp­lega 6,2 millj­arða króna og var hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins 3,7 millj­arðar króna þetta. Eigið fé Bláa lóns­ins - eignir mínus skuldir - var 12,4 millj­arðar þetta ár og  eign­fjár­hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins var 56 pró­sent. 

Hæsta arðgreiðslan

Hæsta arð­greiðslan í rekstr­ar­sögu Bláa lóns­ins var greidd í fyrra vegna árs­ins 2018, rúm­lega 4,1 millj­arður króna, upp­hæð sem var 400 millj­ónum krónum hærri en hagn­að­ur­inn árið á undan. Arð­greiðslan 2017 nam rúm­lega tveimur millj­örðum, 2016 var greiddur út tæp­lega 1.600 millj­óna króna arður og 2015 var arð­ur­inn rúm­lega 1.330 millj­ónir króna.

Við­skipta­vinir Bláa lóns­ins eru ferða­menn að 98 pró­sent leyti. Vegna útbreiðslu Covid hafa flug­sam­göngur til og frá Íslandi nær alfarið dottið niður og þar með koma erlendra ferða­manna til lands­ins. Vegna þessa hrynja rekstr­ar­for­sendur Bláa lóns­ins í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins. 

Grímur: „Þungbær en óhjákvæmileg aðgerð“

Íslenska ríkið mun í kjöl­far þess­arar háu arð­greiðslu nú greiða 75 pró­sent af launum 400 starfs­manna Bláa lóns­ins næstu mán­uði á móti 25 pró­senta hlut eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­tækið var með 764 starfs­menn í vinnu fyrir útbreiðslu Covid en sagði 164 upp fyrir nokkrum dögum og greindi svo frá því fyrir helgi að 400 starfs­menn myndu fara á hluta­bæt­urnar sem íslenska ríkið greiðir. 

Til­kynn­ing Bláa lóns­ins vakti athygli þar sem fyr­ir­tækið var með henni eitt það fyrsta sem sagð­ist ætla að nýta sér hluta­bóta­leið rík­is­stjórn­ar­innar í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins þrátt fyrir að vera eitt besta stadda fyr­ir­tækið í íslenskri ferða­þjón­ustu. Hluta­bóta­leiðin er aðferð til að minnka höggið af efna­hag­skrepp­unni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, bæði fyrir fyr­ir­tæki í rekstri eins og ferða­þjón­ustu sem verða fyrir miklum búsifjum, og eins til að vernda hag starfs­fólks­ins sem um ræðir með því að gera því kleift að halda vinn­unni í gegnum þetta sam­spil rík­is­ins og einka­fyr­ir­tækja.

Tekið skal fram að fyr­ir­tækið lok­aði Bláa lón­inu og öðrum rekstr­ar­ein­ingum sínum þann 23. mars og hefur því engar tekjur um þessar mundir. Fyr­ir­tækið er því í erf­iðri stöðu eins og öll önnur fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu. En ef það er eittt­hvert fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu sem ætti að geta lifað af þessi harð­indi þá er það Bláa lónið vegna þess að rekstur þess hefur verið nær for­dæma­laus síð­ast­liðin ár. Fyr­ir­tækið á eigið fé upp á 12 millj­arða króna þó skrúfast hafi snögg­lega fyrir tekju­streymið.

Í til­kynn­ingu til starfs­manna Blá lóns­ins um upp­sagn­irnar og rekst­ar­stöðu Bláa lóns­ins þann 26. mars sagði Grímur Sæmund­sen, for­stjóri og stærsti hlut­haf­inn: „Aðgerðin er okk­ur þung­bær en óhjá­kvæmi­leg í ljósi aðstæðna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár