Fjárfesti í íslenskum félögum eftir að Ásgeir varð seðlabankastjóri

Sjóður Helgu Við­ars­dóttur, unn­ustu Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra, tók þátt í frumút­boði Íslands­banka árið 2021. Seðla­bank­inn sagði gengi krónu og vaxta­á­kvarð­anir ekki hafa áhrif á sjóð­inn, enda fjár­fest­ingar sjóðs­ins erlendis. Veik króna gagn­vart doll­ara kom „eins og bónus“ sagði Helga.

Fjárfesti í íslenskum félögum eftir að Ásgeir varð seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson og Helga Við­ars­dóttir Sjóður Helgu átti í inn­lendum félögum, það er Íslands­banka og Ölgerð­inni, en Seðla­bank­inn sagði ákvarð­anir sem Ásgeir kemur að varð­andi gengi og gjald­eyr­is­inn­grip ekki hafa áhrif á afkomu sjóðs­ins. Mynd: Samsett Heimildin / Davíð Þór

Fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Spakur Invest, sem Helga Við­ars­dóttir, unnusta Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra stýrir, fjár­festi í inn­lendum bréfum eftir stofnun árið 2021 fram til árs­ins 2023.

Þetta stang­ast á við svar Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar þar sem fram kom að sjóð­ur­inn fjár­festi aðeins í erlendum bréfum og því hafi gengi krónu og vaxta­á­kvarð­anir hér á landi ekki áhrif á ávöxtun sjóðs­ins. Styrking Banda­ríkja­dals gagn­vart krónu kom „eins og bónus“ fyrir hlut­hafa sjóðs­ins, sagði Helga í blaða­við­tali ári eftir stofnun sjóðs­ins.

Sjóð­ur­inn tók þátt í frumút­boði á hlutum í Íslands­banka á stof­nári sínu 2021 en kaup­endur í útboð­inu voru ekki nafn­greindir opin­ber­lega. Á þessum tíma var Ásgeir seðla­banka­stjóri og þau Helga trú­lofuð.

Í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segir Helga, sem er stofn­andi, fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­maður í Spaki Invest, að inn­lend hluta­bréf hafi verið á meðal …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • NB
    Nói Björnsson skrifaði
    Halló halló, er trúverðugleiki Seðlabankastjórans ekki farinn út um gluggann núna ?
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Kerfið gerir ekki ráð fyrir að eiginkonur æðstu embættismanna vinni úti. Laun þeirra eiga jafnvel að geta framfleytt stórri fjölskyldu. Það geta hagsmunir rekist á ef t.d. hjón eru sveitarstjórar og skólastjórar á sama stað.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár