Fara fram á fangelsisdóm yfir heimsþekktum áhrifavaldi

Harvard Business School hefur notað feril hennar sem dæmi um tæki­færin sem fel­ast í því að færa frægð og vin­sældir á sam­fél­gs­miðlum yfir í arð­bæran rekstur. Nú fara sak­sókn­arar á Ítalíu fram á að einn þekkt­asti áhrifa­valdur tísku­heims­ins, Chiara Ferragni, verði dæmd í fang­elsi verði hún fundin sek um svik í tengslum við mark­aðs­setn­ingu á vörum sem seldar voru til styrktar góð­gerð­ar­mála.

Fara fram á fangelsisdóm yfir heimsþekktum áhrifavaldi

Hin Ítalska Chiara Ferragni var tákn­mynd kon­unnar sem átti allt og gat allt. Hún var gift þekktum rapp­ara og tón­list­ar­fram­leið­anda að nafni Federico Leonardo Lucia, eða Fedez, og átti með honum tvö börn. Hún fædd­ist árið 1987 og ólst upp í Cremona í Lombardy-hér­að­inu, 72 þús­und manna borg sem er best þekkt sem heima­land fiðl­unnar, en öðl­að­ist vin­sældir á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún var með um 29 millj­ónir fylgj­enda þegar mest lét. 

Vin­sæld­irnar nýtti hún til þess að byggja upp við­skipta­veldi í tísku, lífs­stíl og mark­aðs­setn­ingu. Hún rak versl­anir víða um heim, seldi skó, fatnað og fylgi­hluti. Hún ferð­að­ist um, gekk í hátísku­fötum og lifði svo spenn­andi lífi að um hana hafa bæði verið gerðir raun­veru­leika­þættir og heim­ild­ar­mynd.

Harvard Business School not­aði feril hennar sem dæmi um hvernig hægt er að yfir­færa vin­sældir á sam­fé­lags­miðlum yfir í stórt fyr­ir­tæki sem skilar miklum hagn­aði. Árið 2017 var hún efst á lista …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár