Einar vill að fjárlögum verði breytt: „Svik við fólk með fötlun“

Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókan­r­flokks­ins, segir það að lög­festa skyldu sveit­ar­fé­laga til að veita fólki með fötlun til­tekna þjón­ustu án þess að því fylgi fjár­magn sé eins og að panta kampa­vín á veit­inga­stað en senda reikn­ing­inn á næsta borð. Hann gagn­rýnir Ingu Sæland og rík­is­stjórn­ina harð­lega.

Einar vill að fjárlögum verði breytt: „Svik við fólk með fötlun“

Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sakar félags­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn­ina um að stilla fólki með fötlun upp á milli steins og sleggju „eina ferð­ina enn“ með því að láta fjár­magn ekki fylgja lög­fest­ingu samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks.

Einar seg­ist styðja að samn­ing­ur­inn sé lög­festur. „En mér finnst ein­fald­lega and­styggi­legt af Ingu Sæland og félögum hennar í rík­is­stjórn­inni að koma svona fram við fólk með fötlun,“ skrifar hann í grein á Vísi í dag.

ÖBÍ krefst svara frá borginni

Tilefni skrifa hans er bréf for­manns Öryrkja­banda­lags Íslands til borg­ar­stjórnar, þar sem spurt er hvers vegna Reykja­vík­ur­borg geri ekki ráð fyrir fjár­mögnun 42 nýrra umsókna um not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð (NPA). Einar segir kostnað samn­ing­anna nema um 2,5 millj­örðum króna og að bréfið komi sér „ekki á óvart“.

„Inga Sæland, félags­mála­ráð­herra felldi tár þegar Samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks var lög­festur á dög­unum,“ skrifar hann og bætir við að hún hljóti einnig að fá klapp á bakið frá fjár­mála­ráð­herra fyrir að koma kostn­að­inum yfir á sveit­ar­fé­lögin „en rík­is­stjórnin fær hrósið“.

Einar segir ríkið hafa látið hjá líða að fram­kvæma lög­bundið mat á fjár­hags­legum áhrifum laga­setn­ing­ar­innar og gagn­rýnir að borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar hafi þagað þunnu hljóði meðan málið fór í gegnum þingið.

Ekki króna frá ríkinu

„Hneykslið í þessu máli er að Inga Sæland og rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur ákváðu að láta ekki eina ein­ustu krónu fylgja þess­ari ákvörðun þings­ins,“ skrifar hann og líkir stöð­unni við það að „velja kampa­vín á veit­inga­stað en senda reikn­ing­inn á næsta borð“.

„Ríkið veitir rétt­indin í orði en tryggir ekki fjár­magn til að hægt sé að veita þjón­ust­una,“ segir Einar, sem vísar til úttektar Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem áætlað er að árlegur við­bót­ar­kostn­aður sveit­ar­fé­laga eftir lög­fest­ing­una gæti numið um 14 millj­örðum króna.

„Ef rík­is­stjórnin ætlar að láta taka sig alvar­lega og Inga Sæland ætlar ekki að verða sér til ævar­andi skammar hvet ég hana til að fylgja lögum og láta gera ítar­legt kostn­að­ar­mat og breyta svo fjár­laga­frum­varp­inu þannig að verk­efnið verði full fjár­magnað. Annað eru svik við fólk með fötlun.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hættið að eyða fé í vitleysu einsog hús með engu bílastæði. Láta fólk endurvinna og svo er það sent út og brennt. Annað eins
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hver er þessi Einar ? Er hann alveg nýr í pólitík ? Getur einhver sagt manni hvað hann hefur unnið sér til frægðar ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár