Sænsk stjórnvöld banna arðgreiðslur fyrirtækja sem nýta hlutabótaleiðina

Þverpóli­tísk sam­staða á sænska þing­inu að banna arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem nota hluta­bóta­leið­ina þar í landi. Óljóst hvaða stefnu íslensk stjórn­völd taka. Aðr­greiðslur Skelj­ungs og Össurar sam­hliða hluta­bóta­leið­inni hafa vakið hörð við­brögð.

Sænsk stjórnvöld banna arðgreiðslur fyrirtækja sem nýta hlutabótaleiðina
Bannað Magda­lena Anderson, fjár­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, segir að það sé ófært að fyr­ir­tæki taki við skattfé með annarri hendi og greiði út arð með hinni. Þetta hefur nú verið bannað í Svíþjóð.

Sænsk stjórn­völd hafa tekið ákvörðun um að banna fyr­ir­tækjum sem nýta sér hluta­bóta­leið­ina þar í landi að greiða út arð til hlut­hafa. „Það verður að vera kýr­skýrt í hugum allra að maður getur ekki not­fært sér hluta­bóta­leið­ina og greitt út arð sam­tímis,“ segir fjár­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, Magda­lena Anderson, við sænska rík­is­út­varpið. 

Gerð verður sér­stök laga­breyt­ing á hluta­bóta­lög­unum þar sem bannið kemur fram. 

Stofn­unin sem sér um umsóknir um hluta­bætur í Svíþjóð, sem og eft­ir­lit með úrræð­inu, mun neita fyr­ir­tækjum sem hafa greitt út arð nýlega að fara hluta­bóta­leið­ina. Stofn­unin mun jafn­vel krefja fyr­ir­tæki sem nú þegar hafa greitt arð sam­tímis og þau hafa nýtt sér úrræðið að greiða pen­ing­ana til baka. „Við munum segja við fyr­ir­tæki sem greiða út arð og við munum gera kröfu um end­ur­greiðslur frá fyr­ir­tækjum sem hafa borgað út arð,“ segir for­stjóri stofn­un­ar­innar, Gunilla Nordlöf, við sænska rík­is­út­varpið. 

Í grein Dagens Nyheter um málið er haft eftir Magda­lenu Anderson. „Ef maður fær pen­inga frá skatt­greið­endum þá á maður ekki að geta tekið þá og troðið þeim í  vasa hlut­haf­anna.“

Ísland og Svíþjóð

Sams konar umræða hefur átt sér stað í Svíþjóð og á Íslandi um arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem nýtt hafa rík­is­að­stoð­ina hluta­bóta­leið­ina. Fréttir um arð­greiðslur Össurar og Skelj­ungs í miðjum COVID-far­aldr­inum sam­hliða notkun á hluta­bóta­leið­inni hafa vakið hörð við­brögð á Íslandi. 

Í Svíþjóð hafa tug­millj­arða króna arð­greiðslur fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið­inni vakið reiði, meðal ann­ars ætluð arð­greiðsla bíla­fram­leið­and­ans Volvo upp á annan tug millj­arða. 

Sænsk stjórn­völd hafa nú tekið ákvörðun í mál­inu og bannað arð­greiðslur fyr­ir­tækja sem nota hluta­bóta­leið­ina. Þverpóli­tísk sam­staða er um ákvörð­un­ina hjá stjórn­mála­flokkum á sænska þing­inu, allt frá hægri flokknum Modera­terna til vinstri flokks­ins Ven­ster­partiet. 

„Maður mun ekki geta fengið fjár­hags­að­stoð ef maður greiðir arð á sama tíma.“

Politísk pressa

Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar, sem er ígildi Vinnu­mála­stofn­unar á Íslandi og heitir Tillväxt­verket, er tekin eftir að stjórn­mála­menn settu pressu á stofn­un­ina. Stofn­unin hefur hingað til sagt að ekki sé hægt að banna arð­greiðsl­urnar miðað við gild­andi lög. Þar af leið­andi þarf að breyta lög­unum til að póli­tískur vilji meiri­hlut­ans á sænska þing­inu end­ur­speglist í þeim. 

Efnahags- og við­skipta­nefnd sænska þings­ins bað um fund með for­stjóra stofn­un­ar­innar um málið þar sem stofn­unin hafði haldið því fram að ekki væri heim­ild í lögum fyrir því að meina fyr­ir­tækjum sem greiða út arð að fara hluta­bóta­leið­ina. Nú er þetta breytt og bannið mun taka gildi.  Frum­kvæðið í mál­inu er því póli­tískt. 

„Maður mun ekki geta fengið fjár­hags­að­stoð ef maður greiðir arð á sama tíma. Þetta liggur nú ljóst fyrir,“ segir full­trúi Moder­atarna í efna­hags- og við­skipta­nefnd, Edward Riedl. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár