Niðurskurður fram undan ef ekki semst um fjármögnun samningsins

Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri segir að framundan sé nið­ur­skurður sem geti „skert lífs­gæði í sam­fé­lög­unum okkar“ verði ekki samið við ríkið um fjár­mögnun þjón­ustu við fólk með fötlun.

Niðurskurður fram undan ef ekki semst um fjármögnun samningsins
Heiða blæs á gagn­rýni odd­vita Fram­sókn­ar­flokks um að hún hafi þagað þunnu hljóði þegar Alþingi lög­gilti samn­ing­inn. Mynd: Golli

Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri segir að ef ekki verði samið um sér­staka tekju­stofna til að fjár­magna þjón­ustu við fatlað fólk kalli það á miklar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir hjá sveit­ar­fé­lögum, „sem geta skert lífs­gæði í sam­fé­lög­unum okkar,“ segir Heiða. „En ég trúi ekki öðru en að okkur tak­ist að ná samn­ingi um þetta.“

Tekist hefur verið á um hvernig sveit­ar­fé­lögin eigi að fjár­magna millj­arða útgjöld eftir að Alþingi lög­gilti samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Samkvæmt mati Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun fjórtán millj­arða kostn­aður lenda hjá sveit­ar­fé­lög­unum vegna lög­gild­ing­ar­innar en ekki krónu hefur verið ráð­stafað til þess að fjár­magna hann af hálfu rík­is­ins.

„Þessi lög­fest­ing nær auð­vitað til mun fleiri hluta en bara þjón­ustu og henni fagna ég inni­lega“

Heiða segir að langstærstur hluti þess­arar þjón­ustu sé veittur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er 90 pró­sent af þjón­ustu við fatl­aða veitt. Það hvílir á okkur …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár