Tók lán til að komast til Norður-Kóreu
Ferða­langur Kristinn fór á vegum Vina­fé­lags Íslands og Kóreu í heim­sókn á 80 ára afmæl­is­há­tíð Verka­manna­flokks­ins í land­inu. Hann hefur um ára­bil verið virkur í starfi sam­tak­anna og meðal ann­ars sótt fund í sendi­ráð rík­is­ins í Stokk­hólmi.

Tók lán til að komast til Norður-Kóreu

Aðal­rit­ari Vina­fé­lags Íslands og Kóreu tók þátt í mál­þingi um Juche-hug­mynda­fræð­ina í til­efni 80 ára afmælis Verka­manna­flokks Norður-Kóreu. „Það er rosa­legur upp­gangur þarna í dag,“ segir Kristinn Hann­es­son. Landið er eitt það ein­angr­að­asta í heimi og hefur um ára­tuga­skeið sætt gagn­rýni fyrir víð­tæk mann­rétt­inda­brot.

Ungur karl­maður af Aust­ur­landi ferð­að­ist alla leið til alræð­is­rík­is­ins Norður-Kóreu – alþýðu­lýð­veld­is­ins Kóreu eins og hann kallar það – í októ­ber­mán­uði til að vera við­staddur hátíð­ar­höld í til­efni 80 ára afmælis kóreska Verka­manna­flokks­ins. Hann tók smá­lán til að eiga fyrir flug­mið­anum, því hann ætl­aði ekki að láta tæki­færið til að heim­sækja landið renna sér úr greipum. 

Kristinn Hann­es­son flutti ræðu á hátíð­ar­höld­unum og full­yrðir að mik­ill upp­gangur sé í land­inu. Hann segir ekki hægt að treysta full­yrð­ingum um mann­rétt­inda­brot norður-kóreskra yfir­valda, jafn­vel þótt ítar­legar frá­sagnir og álykt­anir alþjóð­legra mann­rétt­inda­sam­taka og Sam­ein­uðu þjóð­anna segi stöðu mann­rétt­inda í land­inu með því versta sem ger­ist í heim­inum. Það séu frá­sagnir sem séu runnar undan rifjum suður-kóresku leyni­þjón­ust­unnar. 

„Ég hef skrifað bréf til Kim Jong Un og yfir­valda í land­inu

Ekki á vegum flokksins

Kristinn var fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar og er enn virkur í …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Í AA fræðunum segir,"Sameiginleg velferð situr í fyrir rúmi, bati hvers og eins er undir einingu samtakana komin".Þetta held ég að eigi einig við um Sósclismar,Sossar sem fabúlera um Kína S Kóreu USA og fleira sem þeir hafa takmarkaða þekkingu á er Sósclismanum ekki til framdráttar heldur vanga þessir umgu menn Hægrimönnum á hönd í þessari umræðu.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár