Sex leiðir til að þvætta peninga

Grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hefur birt lista yfir leiðir sem farnar eru við pen­inga­þvætti á Íslandi. Lög­reglan telur nýlegan dóm stað­festa að pen­inga­þvætt­is­þjón­usta sé seld af sér­fræð­ingum hér á landi.

Pen­inga­þvætti gegnir lyk­il­hlut­verki í starf­semi skipu­lagðra borta­hópa og er for­senda þess að hægt sé að nota hagnað af ólög­legri starf­semi óáreitt. Í nýrri skýrslu sem unnin er af grein­ing­ar­deild emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra segir að skipu­lagðir brota­hópar beiti sífellt flókn­ari og fág­aðri aðferðum til þess að þvætta hagnað af brota­starf­semi sinni. 

Hvað er peningaþvætti?

Pen­inga­þvætti felur í sér að fela upp­runa illa feng­ins fjár, hvort sem það eru tekjur af fíkni­efna­sölu, netvsikum eða öðrum brotum. Lög­reglan segir að pen­inga­þvætti megi skipta upp í þrjú skref:

  1. Illa fengnum pen­ingum er komið fyrir í fjár­mála­kerf­inu

  2. Pen­ing­arnir fluttir um fjár­mála­kerfið til að fela upp­runa þeirra

  3. Pen­ing­arnir not­aðir eins og þeirra hafi verið aflað lög­lega

Lög­reglan vitnar í nýlega skýrslu aljóða­lög­regl­unnar Europol, sem segir að 86 pró­sent af hættu­leg­ustu skipu­lögðu brota­sam­tökum í Evrópu nýti lög­leg fyr­ir­tæki við brota­starf­semi sína og pen­inga­þvætti. Hér …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Algengast er að fólk kaupi nauðsynlegar matvöru með korti. En algengt er að maður við pelsklæddrar konu á miðjum aldri sem greiðir sínar með dökk- bláum seðlum og hugsar ýmislegt
    1
    • Sveinn Ingólfsson skrifaði
      Eg held það sé allskonar fólk í allskonar fötum og á allskonar aldri.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár