Bogi undanþeginn sekt fyrir áratuga lán á Kommúnistaávarpinu

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Bogi Ágústs­son hefur skilað ein­taki Mennta­skól­ans í Reykja­vík af Komm­ún­ista­ávarp­inu sem hann hafði haft í láni í meira en hálfa öld. Rektor hefur fellt niður áfallnar sektir.

Bogi undanþeginn sekt fyrir áratuga lán á Kommúnistaávarpinu
Loksins skilað Rektor tekur við ein­taki skól­ans af Komm­ún­ista­ávarp­inu frá Boga. Mynd: Facebook/Menntaskólinn í Reykjavík

Bogi Ágústs­son, fjöl­miðla­maður og stjórn­ar­maður í Holl­vina­fé­lagi Mennta­skól­ans í Reykja­vík, skil­aði á nýlegum stjórn­ar­fundi ein­taki af bók sem hann hafði fengið lán­aða á Íþöku, bóka­safni skól­ans, þegar hann var nem­andi.

Bókin sem um ræðir er önnur útgáfa Komm­ún­ista­ávarps­ins eftir Karl Marx og Friðrik Engels. Þessu var greint frá í Facebook-færslu sem birt­ist á síðu Mennta­skól­ans í Reykja­vík fyrr í dag. Kom þar fram að rektor skól­ans, Sólveig Guðrún Hann­es­dóttir, hefði veitt bók­inni við­töku auk þess að fella í leið­inni niður áfallnar sektir á hana. 

Bogi er fæddur árið 1952 og lauk stúd­ents­prófi árið 1972. Bókin hefur því verið í fórum hans í meira en hálfa öld.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár