Misnotkun á hlutabótaleiðinni: „Það sem ég óttast er að starfsfólk sætti sig bara við þetta“

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, segir að stofn­unin hafi fengið ábend­ingar um að minnsta kosti þrenns konar mis­notkun á hluta­bóta­leið­inni. Hingað til hefur hið opin­bera ekki sett aukið fjár­magn í eft­ir­lit með slíkri mis­notkun. Í Svíþjóð vinna 100 skatta­sér­fræð­ingar við eft­ir­lit með hluta­bóta­leið­inni.

Misnotkun á hlutabótaleiðinni: „Það sem ég óttast er að starfsfólk sætti sig bara við þetta“
Hasarinn svo mik­ill Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, segir að hasar­inn í kjöl­far útbreiðslu COVID-far­ald­urs­ins hafi verið svo mik­ill að ekki hafi gef­ist mikið ráð­rúm til að huga að eft­ir­liti með mis­notkun á hluta­bóta­leið­inni. Mynd: Lögreglan

„Við höfum fengið ábend­ingar um þetta og það hefur bara verið farið ofan í það,“ segir Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, aðspurð um hvort stofn­unin hafi fengið ábend­ingar um það að hluta­bóta­leiðin sé mis­notuð með þeim hætti að starfs­fólk sé sett á hluta­bætur frá rík­inu en sé svo látið vinna 100 pró­sent starf.

Unnur segir að ábend­ingar um þess konar mis­notkun séu hins vegar ekki margar eins og er.  Hins vegar sé eitt af vanda­mál­unum að erfitt geti verið að fá fólk til að stíga fram og segja frá slíkri mis­notkun á þessu úrræði vegna atvinnu­á­stands­ins í sam­fé­lag­inu.

„Það er líka erfitt við þetta að eiga vegna þess að mikið af starfs­fólki kærir sig ekk­ert um að koma fram. Svo ótrú­legur fjöldi er ugg­andi um afkomu sína. Þú vilt kannski ekki vera sá sem er rek­inn fyrir að kjafta frá.  Þó það sé orðin mjög mikil klisja að segja það þá er þetta ástand auð­vitað án hlið­stæðu. Það hefur aldrei gerst að svona mikið atvinnu­leysi hafi komið upp svona hratt. Efna­hags­hrunið var minna og lang­vinn­ara högg í sam­an­burði við þetta. Hér líða bara þrír dagar og þá vaknar fólk upp við það að allt er breytt,“ segir Unnur. „Það sem ég ótt­ast er að eitt­hvað starfs­fólk sætti sig bara við þetta fyr­ir­komu­lag, ef verið er að mis­nota þetta úrræði með þessum hætti, og láti þetta yfir sig ganga í stað þess að missa vinn­una alveg.“

Hægt er að senda Vinnu­mála­stofnun ábend­ingar um mis­notkun á hluta­bóta­leið­inni á heima­síðu Vinnu­mála­stofn­unar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár