Blaðamenn verðlaunuðu Þorstein Má

Banka­stjóri Íslands­banka og stofn­andi Samherja voru á meðal þeirra sem stjórn­endur af fjöl­miðl­unum Þjóð­málum, Vísi og Morg­un­blað­inu veittu verð­laun.

Blaðamenn verðlaunuðu Þorstein Má
Þor­steinn Már Bald­vins­son Fékk mál­verk í heið­ursverð­laun frá blaða­mönn­unum. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Blaða­menn af Morg­un­blað­inu, Vísi og Þjóð­málum sam­ein­uð­ust í síð­ustu viku um að verð­launa fólk úr við­skipta­líf­inu.

Það var Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn stofn­enda og frá­far­andi for­stjóri útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja, sem hlaut svokölluð heið­ursverð­lun úr hendi blaða­manna við „hátíð­lega athöfn“ í Hvala­safn­inu á Granda í Reykja­vík, þar sem 280 manns voru við­stödd, sam­kvæmt umfjöll­unum í Morg­un­blað­inu, á Vísi og í Við­skipta­blað­inu. 

Þor­steini var afhent nýtt mál­verk af honum sjálfum. Hann náði þeim áfanga á ferl­inum í ár að víkja úr stóli for­stjóra Samherja fyrir syni sínum, Baldvin Þor­steins­syni, en áður hafði hann fram­selt hluti sína í útgerð­inni til Baldvins og ann­arra barna sinna.

Blaða­menn­irnir, Gísli Freyr Val­dórs­son, rit­stjóri og eig­andi hlað­varps­mið­ils­ins Þjóðmála, Stefán Einar Stef­áns­son, við­skipta­rit­stjóri og þátt­ar­stjórn­andi á Morg­un­blað­inu, Andrés Magn­ús­son, full­trúi rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, og Hörður Ægisson, rit­stjóri Innherja á Vísi.is, stýrðu veislu­höld­unum og veittu verð­launin. Þeir hafa verið fasta­gestir í reglu­legum við­burðum undir merkjum Þjóðmála þar sem tekin eru lif­andi hlað­varpssam­töl með áhorf­endur í sal, sem sóttir hafa verið af ráð­herrum og for­kólfum úr atvinnu­líf­inu. Einnig veitti verð­laun Þórður Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi blaða­maður á Vísi og vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Morg­un­blaðið fjall­aði um við­burð­inn í frétt undir titl­inum „Mikið um dýrðir á hátíð­ar­kvöldi Þjóðmála“. 

Þar kemur fram að lax­eld­is­fyr­ir­tækið Laxey í Vest­manna­eyjum var valið „bjartasta vonin“. Andrés Magn­ús­son, full­trúi rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, veitti banka­stjóra Íslands­banka „sam­fé­lags­verð­laun Þjóðmála“. Skóg­ar­böðin í Eyj­ar­firði voru valin „kaup­maður árs­ins“. Við­skipta­verð­laun árs­ins veittu blaða­menn­irnir for­svars­mönnum Vekru, fyrir að selja bíla­um­boðið Öskju og tengd félög til breska bíla­fyr­ir­tæk­is­ins Inchcape, en bíla­um­boðið flytur inn og selur Kia, Mercedes-Benz, Honda og fleiri teg­undir hér á landi.

Heið­urs­gestur Þjóðmála að þessu sinni var Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor.

Hlað­varpið Þjóðmál er að öllu leyti í eigu Gísla Freys Val­dórs­sonar í gegnum félagið SAM Consulting slf. Þjóðmál er í sam­starfi við fyrr­nefnda við­skipta­blaða­menn af öðrum frétta­miðlum sem eru fasta­gestir á við­burðum mið­ils­ins og í umfjöll­unum, sem „sér­fræð­ingar Þjóðmála“.

Kjósa
-23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu