Eitt stærsta bílaumboð Íslands í erlent eignarhald

Askja seld til alþjóð­legs risa.

Eitt stærsta bílaumboð Íslands í erlent eignarhald
For­stjóri Öskju Jón Trausti Ólafsson heldur stöðu sinni sem for­stjóri Öskju. Mynd: Askja

Bíla­um­boðið Askja, sem selur meðal ann­ars Mercedes-Benz, Honda og Kia-bif­reiðar á Íslandi, hefur verið selt alþjóð­legum risa. 

Félagið hefur hagn­ast um 1,35 millj­arða króna á ári að jafn­aði frá árinu 2021.

Kaup­and­inn er félagið Inchcape, sem sagt er leið­andi og óháður alþjóð­leg­ur dreif­ing­ar- og sölu­að­ili bif­reiða. Inchape hefur verið skráð í kaup­höll­ina í London síðan 1958. Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa meira en 16.000 manns á 38 mörk­uðum um all­an heim.

Í kaup­unum felst líka yfir­taka á Dekkja­höll­inni, Unu, Landfara, Hentar og bíla­leig­unni Lotus.

Eigendur Öskju, sem selja félagið úr eign­ar­halds­fé­lag­inu Vekru ehf, eru meðal ann­ars hjónin Hjör­leifur Þór Jak­obs­son og Hjördís Ásberg, Frosti Bergsson og for­stjór­inn, Jón Trausti Ólafsson.

Hjör­leifur var for­stjóri Hamp­iðj­unnar frá 1999 til 2002, þegar hann gerð­ist for­stjóri Olíu­fé­lags­ins Essó. Hann var náinn sam­starfs­maður Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis og sat í stjórn Kaup­þings. Fram kom í umfjöllun DV 2013 að Hjör­leifur hefði komið …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu