Eyþór fékk óvænta spurningu um Samherja: „Það er óhætt að svara því bara“

Spurning um lán­veit­ingar Samherja til kaupa Eyþórs Arnalds á hlut í Morg­un­blað­inu kom flatt upp á borg­ar­full­trú­ann á Facebook-streymi. Stór hluti láns­ins hefur verið afskrif­aður.

Streymi Varðar á Facebook Spurningin virtist koma Eyþóri og Jórunni Pálu á óvart.

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, seg­ist búinn að gera grein fyrir félagi sínu sem fékk 225 milljón króna kúlu­lán frá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja til kaupa á hlut hans í Morg­un­blað­inu, lán sem að stórum hluta hefur verið afskrifað.

Eyþór og Jórunn Pála Jón­as­dóttir vara­borg­ar­full­trúi sátu í dag fyrir svörum á streymi á Facebook síðu Varðar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík.

Fyrsta spurn­ingin á streym­inu barst frá Óskari Steini Jón­ínu­syni Ómars­syni, vara­for­seta Ungra jafn­að­ar­manna: „Til Eyþórs: Hefurðu hugsað þér að skila 225 millj­ón­unum sem þú fékkst frá Samherja, eða a.m.k. skýra frekar út fyrir kjós­endum í hvaða til­gangi fyr­ir­tækið veitti þér þessa fyr­ir­greiðslu?“

Jórunn Pála byrj­aði að lesa upp spurn­ing­una. „Á ég að lesa það? Þetta er frá Óskari Steini Jón­ínu­syni Ómars­syni til Eyþórs. Hefurðu hugsað þér að... já... má ég sjá... þetta er eitt­hvað varð­andi Samherja.“

Hætti hún þar með að lesa spurn­ing­una. „Það er óhætt að svara því bara,“ sagði Eyþór. „Það er í sér­stöku félagi sem er búið að gera grein fyrir.“

Eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs sem á hluta­bréf í Morg­un­blað­inu er á end­anum fjár­magnað af Kýp­ur­fé­lagi Samherja, Esju Seafood, sem er mið­punkt­ur­inn í mútu­greiðslum og fjár­magns­flutn­ingum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar erlendis, sem Stundin hefur greint frá ásamt RÚV, Wikileaks og Al Jazeera. Eyþór fékk 225 milljón króna kúlu­lán frá Samherja fyrir kaupum á hlutnum sem að miklu leyti hefur verið afskrifað.

Eyþóri hefur ítrekað verið boðið að svara spurn­ingum Stund­ar­innar um málið, en hann hefur ekki orðið við því.

„Síðan er mjög mik­il­vægt að við séum öll við sama borð í sjálfu sér“

Í svar­inu á streym­inu bætti hann því við að Reykja­vík­ur­borg væri að inn­leiða nýjar reglur um fjár­hags­lega skrán­ingu borg­ar­full­trúa. Í fjár­hags­legri skrán­ingu sinni hefur Eyþór skráð hlut sinn í Morg­un­blað­inu, en ekk­ert varð­andi lán­veit­ing­arnar frá Samherja. „Við höfðum for­ystu um það að emb­ætt­is­menn sem taka ákvarð­anir, æðstu emb­ætt­is­menn, geri grein fyrir sínum hags­munum,“ sagði hann á streym­inu. „Það hefur ekki verið áður og nú stendur það til boða fyrir emb­ætt­is­menn, það er val­kvætt. Við borg­ar­full­trúar höfum gert grein fyrir okkar fjár­hags­legu hags­munum og von­umst til að emb­ætt­is­menn geri það líka. Síðan er mjög mik­il­vægt að við séum öll við sama borð í sjálfu sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár