Flokkur fólksins vill frítt í strætó, Sundabraut í forgang og meira landbrot

Flokkur fólks­ins vill sjá borg­ina stór­auka lóða­fram­boð, til dæmis í suð­ur­hlíðum Úlf­ars­fells og austur af núver­andi byggð í Úlf­arsár­dal. Flokk­ur­inn seg­ist vilja eyða biðlistum í borg­inni og efla stuðn­ing við öryrkja og aldr­aða.

Kolbrún Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins.
Kolbrún Bald­urs­dóttir er odd­viti Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólks­ins býður fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík­ur­borg undir slag­orð­inu „Fólkið fyrst – í Reykja­vík“.

Kolbrún Bald­urs­dóttir er eini borg­ar­full­trúi flokks­ins, sem fékk 4,3 pró­senta fylgi í kosn­ing­unum árið 2018. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fengi flokk­ur­inn 4,9 pró­sent atkvæða, sem myndi skila Kolbrúnu inn í borg­ar­stjórn á ný.

Flokk­ur­inn hefur kynnt for­gangs­mál á vef sínum fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Kjarninn leit yfir þau og tók saman það helsta.

Reykjavík eigi nóg land undir lóðir

Í hús­næð­is­málum segir Flokkur fólks­ins að eitt helsta hags­muna­mál borg­ar­búa sé að „efnt verði til stór­átaks í fram­boði á lóðum og ódýrum íbúðum“. Flokk­ur­inn segir „sjálf­sagt“ að þétta byggð en segir sína for­gangröðun vera þá að brjóta strax land undir „ódýrar lóðir í suð­ur­hlíðum Úlf­ars­fells og svæð­inu austur af Úlf­arsár­dal“.

„Ártúns­höfð­inn er langt kom­inn í skipu­lags­ferli, í Keldna­landi er hægt að byggja meira og Kjal­ar­nes kemst í alfara­leið með Sunda­braut. Reykja­vík á nóg land undir lóðir. Nýtum það strax og höfum allar lóðir að kostn­að­ar­verði!“ segir um hús­næð­is­málin í mál­efna­skrá Flokks fólks­ins.

Flokk­ur­innn seg­ist einnig ætla að „tryggja öllum aðgengi að félags­legu hús­næði sem þarfn­ast þess“ og „skipu­leggja svæði undir upp­bygg­ingu hús­næðis fyrir aldr­aða í umhverfi sem hentar þeirra þörfum“.

Sundabraut í forgang og ekki þrengja að bílum

Í sam­göngu­málum seg­ist Flokkur fólks­ins vilja „mæta mis­mun­andi sam­göngu­þörfum borg­ar­búa, í stað þess að þvinga þá til að nota lausnir sem henta þeim ekki“. Flokk­ur­inn segir að Sunda­braut sé „algjört for­gangs­mál“ og fram­kvæmdir verði að hefj­ast sem fyrst og að skipu­lag borg­ar­innar megi ekki „þrengja meira að bíla­um­ferð en þegar er orðið“ og taka verði á „óþol­andi töfum í umferð­inni“.

[adspot]

Flokk­ur­inn vill að það verði frítt í strætó fyrir alla og að tryggja þurfi „aðgengi allra borg­ara, þ.á.m. bíla­stæða­að­gengi öryrkja og aldr­aðra um alla borg“. Flokk­ur­inn segir að mið­bær Reykja­víkur megi ekki verða „einka­eign hinna útvöldu“.

Vilja eyða biðlistum og borga foreldrum fyrir að vera heima með börn

Flokkur fólks­ins segir að 1.900 börn bíði þess að fá fag­lega aðstoð frá skóla­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar. „Við munum útrýma slíkum biðlistum,“ segir flokk­ur­inn, en nefnir ekki eina ein­ustu aðgerð sem hægt væri að grípa til í því skyni.

Flokk­ur­inn seg­ist ætla að tryggja aðgengi allra barna að tóm­stunda­starfi, óháð fjár­hags­stöðu for­eldra og vill einnig koma á gjald­frálsum mál­tíðum í skólum „fyrir þau börn sem þarfn­ast þeirra“.[links]

Flokkur fólks­ins seg­ist vilja greiða for­eldrum sem ákveða að hafa börn sín heima á aldr­inum 1 til 2 ára mán­að­ar­legan styrk sem jafn­gildi nið­ur­greiðslum Reykja­vík­ur­borgar fyrir hvert barn í leik­skóla. „Þannig eiga for­eldrar þess kost að vera heima með börn­unum sínum og þar með minnkar álagið á leik­skól­ana,“ segir um þetta í stefnu flokks­ins.

Flokk­ur­inn seg­ist vilja efla stuðn­ing við við­kvæma hópa eins og öryrkja og aldr­aða, meðal ann­ars með fjár­styrkjum frá borg­inni til hags­muna­sam­taka þeirra. Flokkur fólks­ins segir einnig að tryggja þurfi öryrkjum og öldruðum „betra aðgengi að þjón­ustu­stofn­unum borg­ar­inna, rækta sam­skipti við þá og koma upp­ýs­ingum til þeirra sem nota ekki net­lausnir“.

Flokk­ur­inn segir einnig að það þurfi að tryggja „við­eig­andi heima­þjón­ustu“ til að eldri borg­arar geti búið eins lengi heima og þeir vilji og flokk­ur­inn seg­ist einnig ætla að „berj­ast með kjafti og klóm„ fyrir því að útrýma biðlistum vegna skorts á hjúkr­un­ar­rýmum í Reykja­vík.

„Það er með öllu ótækt að fólk með færni og heilsu­mat þurfi að dvelj­ast mán­uðum saman á Land­spít­ala vegna skorts á hjúkr­un­ar­rýmum,“ segir í stefnu flokks­ins um þetta atriði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár