Laun 30 dýrustu bæjarstjóranna voru samtal 698 milljónir króna í fyrra

Alls eru 64 sveit­ar­fé­lög á land­inu eða eitt sveit­ar­fé­lag fyrir hverja tæp­lega sex þús­und íbúa lands­ins. Þorri þeirra er með færri en tvö þús­und íbúa. Alls voru 100 sveit­ar­stjórn­ar­menn með yfir eina milljón á mán­uði í fyrra.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, þénuðu mest allra borgar-, bæjar- og sveitarstjóra í fyrra.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, og Gunnar Ein­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garðabæ, þén­uðu mest allra borgar-, bæjar- og sveit­ar­stjóra í fyrra. Mynd: Stjórnarráðið

Gunnar Ein­ars­son, sem hætti sem bæj­ar­stjóri Garðabæ eftir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, var launa­hæstur allra bæj­ar­stjóra á síð­asta ári með 3,2 millj­ónir króna á mán­uði. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, var með nán­ast sömu heild­ar­tekjur á árinu 2021. Þeir tveir voru einu stjórn­endur sveit­ar­fé­laga sem voru með yfir þrjár millj­ónir króna í heild­ar­tekjur að með­al­tali á mán­uði í fyrra. Þetta kemur fram í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unnar sem birt var í vik­unni.

Alls voru 20 sveit­ar­stjórn­ar­menn með tvær millj­ónir króna á mán­uði eða meira í laun í fyrra og 100 sveit­ar­stjórn­ar­menn voru með yfir eina milljón króna í heild­ar­tekjur.

[adspot]Um er að ræða grunn­laun auk ann­arra greiðslna sem telj­ast til tekna, svo sem fyrir setu í stjórnum fyrir hönd þeirra sveit­ar­fé­laga sem við­kom­andi stýrir. Við útreikn­ing tekna er miðað við útsvar­s­­stofn sam­­kvæmt álagn­ing­­ar­­skrá. Í töl­unum eru ekki fjár­­­magnstekj­­ur, t.d. af vöxt­um, arði eða sölu hluta­bréfa. Sleppt er skatt­frjálsum dag­pen­ing­um, bíla­­styrkjum og greiðslum úr líf­eyr­is­­sjóði. Þá verður að hafa í huga að inni í tekj­unum getur líka verið ein­­skipt­is­greiðsla vegna úttektar á sér­­­eign­­ar­­sparn­aði hjá líf­eyr­is­­sjóð­i.

Alls 30 með meira en 1,5 milljón á mánuði

Þegar horft er ein­vörð­ungu á þá sem sátu í borgar-, bæjar- eða sveita­stjóra­stöðum í fyrra kemur í ljós að 30 slíkir voru með 1,5 millj­ónir króna eða meira í laun á síð­asta ári. Alls námu mán­að­ar­greiðslur til hóps­ins úr opin­berum sjóðum 57,4 millj­ónum króna, sem þýðir að með­al­laun þeirra voru um 1,9 millj­ónir króna á mán­uði.

[links]Á ári fékk þessi hópur því sam­tals um 698 millj­ónir króna í laun sem þýðir að hvert kjör­tíma­bil, miðað við þau laun, kostar um 2,8 millj­arða króna í launa­greiðslur til 30 borgar-, bæjar- eða sveit­ar­stjóra.

Vert er að taka fram að hér er um að ræða laun borgar-, bæjar- og sveit­ar­stjóra á síð­asta ári. Eftir kosn­ing­arnar í vor var samið að nýju við þá sem héldu áfram, eða voru ráðnir, og sam­kvæmt frétt Vísis frá því í lok júní eru sex æðstu stjórn­endur sveit­ar­fé­laga með laun frá 2,1 upp í 2,5 millj­ónir króna á mán­uði i grunn­laun. Um er að ræða borg­ar­stjór­ann í Reykja­vík og bæj­ar­stjóra í Garðabæ, Kópavogi, Reykja­nesbæ, Akureyri, Sel­tjarn­ar­nesi, Akranesi og Í Ölfusi.

Alls eru sveit­ar­fé­lögin á land­inu 64 tals­ins. Fimm þeirra eru með færri en 100 íbúa og 41 er með færri en tvö þús­und íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Leiðari

Arnar Þór Ingólfsson

Flokk­ur­inn sem úti­lok­aði sjálfan sig

Þegar úrslit borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í Reykja­vík lágu ljós fyrir blasti við að leið Sjálf­stæð­is­flokks­ins til valda í borg­inni væri í meira lagi tor­sótt. Eini raun­hæfi mögu­leiki flokks­ins á því að kom­ast í meiri­hluta lá í gegnum sam­starf við Framsókn, Flokk fólks­ins og Viðreisn. Með ákvörðun Við­reisnar um að beisla sig við Sam­fylk­ingu og Pírata í meiri­hluta­við­ræðum varð þó ljóst að ekk­ert...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár