Davíð Oddsson með 5,6 milljónir króna á mánuði – Í sérflokki á meðal fjölmiðlamanna

Alls voru tólf starfs­menn RÚV með yfir milljón á mán­uði í fyrra og þann þrett­ánda vant­aði ein­ungis tvö þús­und krónur á mán­uði til að slást í hóp­inn. Rit­stjóri Viljans var með tæp­lega 4,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Davíð Oddsson er annar ritstjóra Morgunblaðsins og hefur verið það frá haustinu 2009.
Davíð Oddsson er annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og hefur verið það frá haustinu 2009. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, var með 5,6 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun á síð­asta ári. Tekjur hans hækk­uðu lít­il­lega á milli ára. Davíð fær ekki bara laun fyrir rit­stjóra­störf heldur líka eft­ir­laun sem ráð­herra, þing­maður og seðla­banka­stjóri.

Eft­ir­laun Davíðs fyrir þing­manna- og ráð­herra­störf eru 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra en eftir nýlega launa­hækkun hennar fær Katrín Jak­obs­dóttir 2.470 þús­und krónur á mán­uði í grunn­laun. Miðað við laun for­sæt­is­ráð­herra í fyrra hefur Davíð fengið tæp­lega 1,9 milljón króna í eft­ir­laun vegna þing­manna- og ráð­herra­starfa á árinu 2021. Davíð varð 74 ára í jan­úar síð­ast­liðnum.

Þetta kemur fram í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar sem kom út í dag þar sem farið er yfir tekjur um fjögur þús­und Íslend­inga á síð­asta ári.

Persónulega gjaldþrota en með 4,5 milljónir á mánuði

Í öðru sæti á lista yfir tekju­hæstu fjöl­miðla­menn­ina er Björn Ingi Hrafns­son, sem rit­stýrir vefnum Viljanum. Björn Ingi er sagður hafa verið með tæp­lega 4,5 millj­ónir króna á mán­uði í laun í fyrra, en hann varð per­sónu­lega gjald­þrota fyrr á þessu ári vegna mála sem tengd­ust fjöl­miðla­rekstri hans þrettán árin á undan. Viljinn.is hefur ekki verið upp­færður frá því í júní.

[adspot]Í þriðja sæti er hinn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, Haraldur Johann­es­sen, en hann gegnir líka stöðu fram­kvæmda­stjóra útgáfu­fé­lags­ins. Mán­að­ar­laun hans voru rúm­lega 3,4 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra.

Logi Bergmann Eiðsson, sem starf­aði síð­ast á útvarps­sviði Árvakurs við gerð Síð­deg­is­þátt­ar­ins á K100, er svo í fjórða sæti með 2,9 millj­ónir króna á mán­uði en hann hefur verið í leyfi frá störfum frá því í jan­úar 2022 eftir að hafa verið ásak­aður um kyn­ferð­is­brot. Logi hefur ávallt stað­fast­lega neitað sök.

Þór­hallur Gunn­ars­son, sem er fram­kvæma­stjóri miðla Sýnar, er í fimmta sæti yfir launa­hæsta fjöl­miðla­fólkið með tæp­lega 2,3 millj­ónir króna.

Tólf hjá RÚV með meira en milljón

Líkt og í fyrra eru tólf starfs­menn RÚV með yfir eina milljón króna á mán­uði í laun og sá þrett­ándi var með 998 þús­und krónur í laun. Bogi Ágústs­son frétta­maður er launa­hæsti frétta­maður rík­is­fjöl­mið­ils­ins með tæp­lega 2,1 milljón króna á mán­uði. Bogi er orð­inn sjö­tugur og því nær öruggt að hluti launa hans sé til­kom­inn vegna töku eft­ir­launa.

Næst í röð­inni er Sigríður Hagalín Björns­dóttir, vara­f­rétta­stjóri RÚV, með um 1,5 millj­ónir króna á mán­uði. Sigríður er far­sæll rit­höf­undur og hefur tekjur af bóka­út­gáfu, hér heima og erlendis, til við­bótar við það sem hún fær greitt fyrir störf sín hjá RÚV.

Rakel Þor­bergs­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­stjóri RÚV, er svo í þriðja sæti yfir starfs­menn rík­is­fjöl­mið­ils­ins með rúm­lega 1,3 millj­ónir króna á mán­uði.

Góð laun upplýsingafulltrúa

Nokkrir upp­lýs­inga­full­trúar sem áður störf­uðu í stétt fjöl­miðla­manna kom­ast einnig inn á lista Frjálsrar fjöl­miðl­unnar um launa­hæstu fjöl­miðla­menn­ina, þótt veru þeirra í þeirri starfs­stétt sé lokið, að minnsta kosti í bili.

Þar ber fyrst að nefna Láru Ómars­dóttur, sem yfir­gaf RÚV snemma á síð­asta ári til að ger­ast sam­skipta­stjóri hjá Aztiq Fjár­fest­ingum (sem nú heiti Flóki Invest) og stýrt er af Róberti Wessman. Þar kemur hún meðal ann­ars að miðlun upp­lýs­inga fyrir syst­ur­fyr­ir­tækin Alvogen og Alvotech sem Róbert og við­skipta­fé­lagar hans stýra einnig og eiga stóran hlut í. Lára var með 2,2 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra að með­al­tali.

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, sem starf­aði sem blaða­maður um ára­bil, er einnig ofar­lega á lista en hún hefur und­an­farin ár starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar erfða­grein­ingar. Hún er með tæp­lega 1,7 millj­ónir króna á mán­uði í laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

laun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár