Hæstu og lægstu laun tekin saman eftir starfsgreinum

Marg­faldur munur er á milli hæstu og lægstu launa ein­stak­linga eftir flokkum, sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar.

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag
Tekju­blað Frjálsrar versl­unar kom út í dag

Gíf­ur­legur munur er á milli hæstu og lægstu launa innan starfs­greina í land­inu. Tekju­blað Frjálsrar versl­unar kom út í dag og venju sam­kvæmt tók blaðið saman tekjur þús­unda Íslend­inga og birti.

Tæpar 50 milljónir á mánuði

Launa­hæsti for­stjór­inn er Árni Harð­ar­son, for­stjóri Salt Invest­ments, með 47,7 millj­ónir á mán­uði. Á eftir honum kemur Valur Ragn­ars­son, for­stjóri Medis, með rúmar 24 millj­ónir. Launa­lægstu for­stjór­arnir í Tekju­blað­inu eru Helga María Helga­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Netgíró, og Dagmar Har­aldsóttir, fram­kvæmda­stjóri Saga­events, sem eru báðar með 718 þús­und krónur á mán­uði.

Launa­hæstu starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja í blað­inu eru Christopher M. Perrin, stjórn­ar­for­maður ALMC (áður Straumi-Burðarás), með rúmar 48 millj­ónir á mán­uði, og Jakob Már Ásmunds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Straums, með rúmar 34,5 millj­ónir. Launa­lægstu starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja í Frjálsri verslun eru Stefán Garð­ar­son, for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­sviðs Birgunar, með 587 þús­und krónur, og Svanborg S. Víglunds­dóttir, þjón­ustu­stjóri Lands­bank­ans á Vopna­firði, með 582 þús­und krónur.

Launahæsta með 13 milljónir og lægsti með 530 þúsund

Í flokknum Ýmsir menn úr atvinnu­líf­inu eru þau Guðbjörg Edda Egg­erts­dóttir, stjórn­ar­maður í Virðingu, og Gestur Þórisson ráð­gjafi launa­hæst. Guðbjörg er með rúmar 13,3 millj­ónir og Gestur með tæpar sex millj­ónir. Þau launa­lægstu í þessum flokki eru Sig­þrúður Guð­mundsóttir, stjálf­stætt starf­andi ráð­gjafi, með 537 þús­und krónur, og Eysteinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Kaupáss með 528 þús­und.

Ólafur hæstur, Ólína lægst

Ólafur Ragnar Grímsson, frá­far­andi for­seti, er launa­hæstur í flokknum Forseti, alþing­is­menn og ráð­herrar, með tæpar 2,3 millj­ónir á mán­uði. Á eftir honum kemur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, með 1,7 milljón. Þær launa­lægstu í flokknum í blað­inu eru Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, með 328 þús­und krónur og Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, með 312 þús­und krónur.

Garðabær gefur vel

Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri í Garðabæ, er launa­hæstur sveit­ar­stjórn­ar­manna, með rúmar 2,3 millj­ónir á mán­uði. Síðan kemur Jens Garðar Helgason, for­maður bæj­ar­ráðs Fjarð­ar­byggðar og for­maður SFS, með tæpa 2,1 milljón. Þau launa­lægstu í flokknum eru Guðný Hrund Karls­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­maður í Húna­þingi vestra, með 965 þús­und krónur, og Daníel Jak­obs­son, bæj­ar­full­trúi hjá Ísa­fjarð­arbæ, með 953 þús­und krónur á mán­uði.

Helga Sigrún Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Smaís, er launa­hæst í flokknum Hags­muna­sam­tök og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, með tæpar 4,7 millj­ónir. Síðan kemur Friðbert Trausta­son, for­maður Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, með tæpar 4,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Launa­lægstu í flokknum eru Elínrós Líndal, for­stöðu­maður hjá Samtökum iðn­að­ar­ins, með 618 þús­und krónur, og Jóhann Már Sig­ur­björns­son, for­maður Samtaka leigj­enda, með 585 þús­und krónur á mán­uði.

Páll Matthíasson með hæstu launin

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, er launa­hæsti for­stóri rík­is­fyr­ir­tækja, með rúmar 2,2 millj­ónir. Næst kemur Gróa B. Jóhann­es­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri á Sjúkra­hús­inu á Akureyri, með tæpar 2,2 millj­ónir. Þeir launa­lægstu í flokknum í blaði Frjálsrar versl­unar í flokknum Emb­ætt­is­menn og for­stjórar rík­is­fyr­ir­tækja eru Gunnar Þor­kels­son, hér­aðsdýralæknir Suð­ur­um­dæmis, með 848 þús­und krónur, og Magnús Jóhann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Norð­ur­skauts­ráðs­ins, með 829 þús­und krónur.

Þor­valdur Ingv­ars­son, bæklung­ar­skurð­læknir og yfir­maður hjá Össuri, er lang­launa­hæsti lækn­ir­inn, með rúmar 17 millj­ónir. Næstur eru Björn Zoega, fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans og for­stjóri bækl­un­ar­spegl­una á GHP sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi, með rúmar 3,8 millj­ónir. Þeir launa­lægstu í flokknum í blað­inu eru Hlynur Torfi Trausta­son, lyfja­fræð­ingur hjá. Parlogis, með 510 þús­und, og Smári Stein­gríms­son skurð­læknir með 502 þús­und á mán­uði.

Sig­finnur Þor­leifs­son, sér­þings­prestur LSH, er launa­hæsti prest­ur­inn með rúma 1,8 milljón á mán­uði. Guðrún Karls Helgu­dóttir, sókn­ar­prestur Graf­ar­vogi, er launa­lægst í úttekt­inni, með 743 þús­und krónur.

Lögmaður með 30 milljónir á mánuði

Sigurður G. Guð­jóns­son, eig­andi Draupnis, er launa­hæsti lög­fræð­ing­ur­inn með 28,8 millj­ónir. Næstur er Óttar Pálsson, hjá Logos, með tæpar 26,2. Þeir launa­lægstu í flokknum eru Borgar Þór Ein­ars­son, hjá Cato lög­mönnum, með 908 þús­und og Sigurður Snædal Júl­í­us­son, hjá Íslögum, með 903 þús­und. 

Hallur A. Bald­urs­son, stjórn­ar­for­maður ENNEMM, er tekju­hæsti aug­lýs­inga­mað­ur­inn með 1,7 milljón á mán­uði. Jordi Serra Vega, hjá Jónsson og Le’macks, er launa­lægstur, með 393 þús­und krónur.

Eyvi með 170 þúsund á mánuði

Ragnar Jónasson, rit­höf­undur og lög­fræð­ingur, er launa­hæsti lista­mað­ur­inn með rúmar 2,6 millj­ónir á mán­uði. Næstur er Brynjar Leifsson tón­list­ar­maður með tæpa 1,8 milljón. Launa­lægstu lista­menn­irnir eru Helgi Sæmundur Guð­munds­son í Úlfur Úlfur, með 170 þús­und, og Eyjólfur Krist­jáns­son tón­list­ar­maður með 169 þús­und.

Meðal íþrótta­manna og þjálf­ara eru þeir Sig­ur­karl Aðal­steins­son fit­ness­meist­ari, sem er með tæpa 1,8 milljón á mán­uði, og Kristinn Kjærne­sted, for­maður knatt­spyrnu­deildar KR, með tæpa 1,3 millj­ónir, launa­hæstir. Launa­lægstir eru Hilmar Þór Ólafsson, einka­þjálf­ari í World Class, með 150 þús­und, og Helena Sverr­is­dóttir körfuknatt­leiks­kona með 138 þús­und krónur í laun á mán­uði.

Morgunblaðið á toppnum

Í flokknum Fjöl­miðla­menn eru það Morg­un­blaðs­menn­irnir Davíð Oddsson rit­stjóri og Haraldur Johann­esen, fram­kvæmda­stjóri Árvakurs launa­hæstir. Davíð er með rúmar 3,6 millj­ónir á mán­uði og Haraldur með rúmar 2,4 millj­ónir. Eins og kunn­ugt er var Davíð í fram­boði til for­seta. Hann var með hærri laun en allir hinir átta fram­bjóð­end­urnir sam­tals. Launa­lægstu fjöl­miðla­menn­irnir í Tekju­blað­inu eru Sigurður Bogi Sæv­ars­son, blaða­maður á MBL, með 509 þús­und krónur, og Trausti Haf­liða­son, blaða­maður á Við­skipta­blað­inu, með 508 þús­und.

Skipstjórar með tæpar fimm milljónir

Pétur Hörður Hann­es­son, aðjúnkt við lækna­deild HÍ, er launa­hæsti skóla­mað­ur­inn með rúmar 2,4 millj­ónir á mán­uði. Kristín Jóhann­es­dóttir, skóla­stjóri Aust­ur­bæj­ar­skóla, er launa­lægst, með 761 þús­und krónur á mán­uði. Meðal sjó­manna eru skip­stjór­arnir Bergur Ein­ars­son og Guð­laugur Jónsson launa­hæstir. Bergur var með rúmar 4,6 millj­ónir á mán­uði og Guð­laugur með ræpar 4,6 millj­ónir. Sigurður Villi Guð­munds­son, vél­stjóri hjá HB Granda, er launa­lægstur í þeim flokki, með 742 þús­und krónur á mán­uði.

Listi Frjálsrar versl­unar er byggður á útsvars­skyldum tekjum á árinu 2015. Þær þurfa því ekki að end­ur­spegla föst laun við­kom­andi. Í ein­hverjum til­vikum kann skatt­stjóri að hafa áætlað tekj­ur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár