Davíð með hærri laun en allir frambjóðendur til samans

Frjáls verslun og DV birta tekjur nokkur þús­und Íslend­inga í dag.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og for­seta­fram­bjóð­andi, er með hærri mán­að­ar­laun heldur en allir hinir for­seta­fram­bjóð­end­urnir átta til sam­ans. Samkvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar sem kom út í dag er Davíð með rúmar 3,6 millj­ónir króna á mán­uði í laun. Allir hinir eru til sam­ans með 2,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ingur og verð­andi for­seti, er með 657 þús­und krónur í mán­að­ar­laun sam­kvæmt Tekju­blað­inu. Sturla Jónsson er með lægstu launin, um 190 þús­und krónur á mán­uði.

Samkvæmt Tekju­blaði DV, sem einnig kom út í dag, er Rannveig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, með 6,4 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun á árinu 2015. Skúli Mogensen, for­stjóri WOW Air, var með 2,2 millj­ónir í laun. Heimir Hall­gríms­son, lands­liðs­þjálf­ari í knatt­spyrnu og tann­læknir, var með 994 þús­und á mán­uði. Halldóra Geir­harðs­dóttir leik­kona var með 904 þús­und krónur.

Í DV kemur einnig fram að Rakel Ótt­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þró­unar- og mark­aðs­sviðs Arion banka, er með rúmar 2.4 millj­ónir á mán­uði og er hún hæst launuð í flokknum Mark­aðs­mál og almanna­tengsl. Halldór Krist­manns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Alvogen, er næs­launa­hæstur, með tæpar 2,4 millj­ónir á mán­uði.

Í flokknum Iðnaður er for­stjóri Össurar lang­launa­hæstur, með rúmar 16,3 millj­ónir króna á mán­uði í laun. Næst­launa­hæsti í þeim flokki er Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel, með rúmar sex og hálfa milljón króna.

Skatta­kóngur Íslands, Árni Harð­ar­son, var með 47,7 millj­ónir í tekjur á mán­uði sam­kvæmt Frjálsri verslun. Valur Ragn­ars­son, for­stjóri Medis, er með næst­hæstu launin, með rúm­lega 24 millj­ónir á mán­uði. Í þriðja sæti er Jakob Óskar Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Promens, með 18 millj­ónir. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, er með aðeins yfir sjö millj­ónir og Liv Berg­þóru­dóttir, for­stjóri Nova, með um 3,9 millj­ónir á mán­uði.

Listi Frjálsrar versl­unar er byggður á útsvars­skyldum tekjum á árinu 2015. Þær þurfa því ekki að end­ur­spegla föst laun við­kom­andi. Í ein­hverjum til­vikum kann skatt­stjóri að hafa áætlað tekjur. Tekju­blað DV byggir á greiddu útsvari sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra (RSK).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár