Þriðjungur kosningafrétta 2013 fjallaði um skoðanakannanir

Nærri þriðj­ungur allra frétta um alþing­is­kosn­ing­arnar 2013 fjöll­uðu um nið­ur­stöður skoð­ana­kann­ana. Íslenskir fjöl­miðlar hafa verið gagn­rýndir fyrir áherslu á kann­anir í umfjöllun sinni.

Umfjöllun íslenskra fjöl­miðla um Alþing­is­kosn­ing­arnar 2013 var að miklu leyti drifin með fréttum af könn­unum á fylgi fram­boða. Rannsókn sem gerð var á umfjöllun þrettán fjöl­miðla mán­uð­inn fyrir kosn­ingar sýnir að 29,8 pró­sent allra frétta höfðu úrslit kosn­inga sem aðal­á­herslu. Rann­sóknin var birt á dög­unum í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla.

Umfangsmikil rannsókn

Alls voru 1.377 fréttir greindar af sjö vef­miðlum, úr tveimur dag­blöðum, á tveimur útvarps­rásum og á tveimur sjón­varps­stöðvum. Í nærri þriðj­ungi allra þeirra frétta sem greindar voru var aðal­um­fjöll­un­ar­efnið nið­ur­stöður kann­anna á fylgi flokk­anna. Í 7,2 pró­sent til­vika voru nið­ur­stöður kann­anna nefndar sem auka­at­riði.

Í rann­sókn­inni eru lík­legar ástæður þess að svo mik­ill hluti frétta fjallar um kann­anir sagðar vera að allir fjöl­miðlar fjalla um allar kann­anir, jafn­vel þó þær hafi ekki verið gerðar fyrir við­kom­andi miðil. Sem dæmi um þetta er þegar dag­blað birtir nið­ur­stöður könn­unar að morgni og allir aðrir fjöl­miðlar fjalla um sömu könnun þann dag­inn. Hver könnun fær því umfjöllun í flestum miðlum.

Gömul saga og ný

Umræða skap­að­ist í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2013, rétt eins og fyrir for­seta­kosn­ing­arnar nú, um að kann­anir réðu of miklu í þegar kæmi að umfjöllun fjöl­miðla um fram­bjóð­endur. Nið­ur­stöður kann­ana eru látnar ráða því hvaða fram­bjóð­endur eða fram­boð fá mesta athygli fjöl­miðla og eru það þá oft­ast þau fram­boð sem njóta mests fylgis í könn­unum sem fá umfjöllun og boð í umræðu­þætti og kapp­ræður.

Þannig var það til dæmis fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í ár. Stöð 2 bauð öllum þeim fram­bjóð­endum í umræðu­þátt sem nutu meira en tveggja pró­senta fylgis í skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2. Þar náði Halla Tóm­as­dóttir inn í þátt­inn með naum­indum, en í kjöl­farið fór fylgi við hana á flug og hún end­aði sem næst vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn í könn­unum. RÚV skipti sínum seinni kapp­ræðu­þætti í tvennt með þeim hætti að þeir fjórir fram­bjóð­endur sem hlutu mest fylgis í skoð­ana­könn­unum komu fyrst og svo hinir fimm sem mæld­ust með minna fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár