Skiptir engu máli að forseti sé ekki í þjóðkirkjunni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt fyrir að ég standi utan trú­fé­laga, og er þar mjög sáttur við guð og menn,“ sagði Guðni í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun.

Hann var þar spurður um ummæli bisk­ups Íslands, Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur, um að það væri affara­sæl­ast að for­seti Íslands væri í þjóð­kirkj­unni, ekki síst þar sem for­set­inn eigi að vera vernd­ari kirkj­unnar.

Guðni sagði fara vel á með honum og Agnesi og hann ótt­ist ekk­ert í þessum efnum. Það trufli hann heldur ekki neitt að þjóð­kirkj­unni þætti affara­sæl­ast að for­set­inn væri í kirkj­unni. „Eitt orð er affara­sæl­ast, annað er nauð­syn­legt,“ sagði Guðni.

Hafði ekki ímyndunarafl í þorskastríðsumræðuna

Guðni ræddi einnig um kosn­inga­bar­átt­una sem er nýlokið. Hann segir það hafa hrein­lega sést á honum hvað hann hafi verið orð­inn þreyttur undir lok bar­átt­unnar. Hann hafi líka flaskað á því að halda í það að vera hann sjálfur, og hafi aðeins farið í annan ham. „Ég hætti að vera ég sjálfur,“ sagði hann og að hann hafi frekar farið að hugsa um hvað hann ætti að segja heldur en að segja það sem honum bjó í brjósti. Nú þyrfti hann að fá tíma til að setja sig inn í emb­ættið og finna sig í því að feta veg­inn á milli þess að „virða ramma emb­ætt­is­ins og mitt tak­mark og skyldu að vera þetta sam­ein­ing­ar­afl, en um leið samt ekki ganga inn í ein­hvern annan ham. Þetta er vand­ratað.“

Þá sagði Guðni að hann hefði verið búinn undir það að ýmis­legt, þar á meðal störf hans, yrði dregið inn í kosn­inga­bar­átt­una, en það hafi komið honum „inni­lega á óvart“ að þorska­stríðin hafi verið þar á meðal. „Ég hafði bara ekki ímynd­un­ar­afl til að halda að þorska­stríðin yrðu um skeið mál mál­anna í for­seta­kosn­ing­unum 2016.“ Honum hafi stundum þótt gengið full­langt í því að bein­línis snúa út úr og slíta úr sam­hengi. Hann sagði „suma fjöl­miðla“ hafa gert það, en þegar Helgi Seljan þátta­stjórn­andi nefndi Morg­un­blaðið sér­stak­lega þá sam­sinnti Guðni því.

Umræðan um fávísan lýð og sveita­fólk kom úr fyr­ir­lestri sem hann hélt í Háskól­anum á Bifröst, þar sem hann vitn­aði í nem­anda sinn. Guðni sagði sér hafa fund­ist lélegt hvernig haldið var á því máli. Hann tók samt fram að honum hafi þótt virð­ing­ar­vert hvernig Davíð Oddsson, for­seta­fram­bjóð­andi og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hafi brugð­ist við úrslit­unum.

Guðni sagð­ist nefni­lega halda að þessar kosn­ingar og kosn­inga­bar­átta hafi leitt það í ljós, og beindi orðum sínum til þeirra sem hyggi á kosn­inga­bar­áttu í alþing­is­kosn­ingum í haust, að nei­kvæð bar­átta skili frekar litlu. „Haldið ykkur frekar við það að benda á ykkar eigin sjón­ar­mið og stefnu­mál og þá mun ykkur vel farn­ast.“

Umræða um breytingar á forsetaskrifstofu vægast sagt skrýtin

Ýjað hefur verið að því, meðal ann­ars í Orðinu á göt­unni á Eyjunni, að Guðni gæti tekið kosn­inga­stjór­ann Friðjón Frið­jóns­son með sér til for­seta­emb­ætt­is­ins, þá mögu­lega sem for­seta­rit­ara. Guðni sagði ekk­ert til í neinum svona vanga­veltum. Honum hafi þótt þessi frétt, eða umræða, „dálítið skrýtin, væg­ast sagt.“

„Það er ein­vala lið á skrif­stofu for­seta Íslands. Ég gæti ekki hugsað mér metri menn en vinna þarna. Þeir eru hoknir af reynslu, vin­gjarn­legir, við­ræðu­góðir, fúsir til aðstoðar,“ sagði Guðni meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár