Tíu staðreyndir um Guðna Th. Jóhannesson

1. Guðni Thorlacius Jóhann­es­son fædd­ist í Reykja­vík þann 26. júní 1968. Hann varð 48 ára dag­inn sem ljóst varð að hann yrði sjötti for­seti lýð­veld­is­ins. Hann er yngsti for­seti í sögu lands­ins og fyrsti nýi for­set­inn á þess­ari öld. Ólafur Ragnar Grímsson var 53 ára gam­all þegar hann tók við emb­ætti árið 1996. Hann er nú 73 ára.

2. Nýr for­seti tekur við emb­ætti við hátíð­lega athöfn sem hefst á Aust­ur­velli klukkan 15 í dag, mánu­dag­inn 1. ágúst. Athöfnin fær­ist síðan í Dóm­kirkj­una og þaðan í Alþing­is­húsið. Guðni vildi hafa athöfn­ina lát­laus­ari en hefur tíðkast fram til þessa, en til að mynda er ekki gerð krafa um að karl­menn klæð­ist kjól­fötum, að konur séu í síð­kjólum né að fólk beri orður.

3. Guðni er kvæntur Elizu Reid og giftu þau sig árið 2004. Guðni og Eliza eiga saman fjögur börn, þau Duncan Tind, Don­ald Gunn­ar, Sæþór Peter og Eddu Mar­gréti. Fjöl­skyldan býr enn við Tjarn­ar­stíg á Sel­tjarn­ar­nesi, en þegar fram­kvæmdum er lokið á Bessa­stöðum í ágúst, flytj­ast þau búferlum. Guðni á eina dóttur, Rut, úr fyrra hjóna­bandi sínu með Elínu Har­alds­dóttur. For­eldrar Guðna eru Mar­grét Thor­laci­us, kenn­ari og blaða­mað­ur, og Jóhannes Sæmunds­son, íþrótta­kenn­ari og íþrótta­full­trú­i. Jóhannes lést árið 1983. Guðni á tvo bræður, þá Patrek og Jóhannes. Þeir bræður ólust upp í Garðabæ.

4. Guðni er mik­ill íþrótta­maður og hefur stundað íþróttir af ein­hverju tagi frá unga aldri. Faðir hans var mik­ils met­inn íþrótta­kenn­ari og bróðir hans, Patrekur Jóhann­es­son, er einn af best þekktu hand­bolta­köppum lands­ins. Guðni gaf það út í kosn­inga­bar­átt­unni, að myndi hann ná kjöri, ætl­aði hann að halda áfram að hjóla með börnin sín í skóla og leik­skóla eins og hann hefur gert und­an­farin ár.

5. Guðni var hvað þekkt­astur fyrir sagn­fræði­störf sín áður en hann gaf kost á sér í for­seta­fram­boð. Hann hefur verið einn helsti álits­gjafi fjöl­miðla und­an­farin ár þegar kemur að umfjöllun um for­set­ann, for­seta­emb­ættið eða póli­tískt sam­hengi sög­unnar. Guðni er með dokt­ors­gráðu í sagn­fræði. Hann varð stúd­ent úr MR árið 1987. Síðan nam hann sagn­fræði við Warwick háskóla í Englandi og tók meistara­gráðu í sagn­fræði í kjöl­farið við Háskóla Íslands árið 1997. Síðan fékk hann MSt-gráðu í sögu frá Oxford árið 1999 og varð síðan doktor í sagn­fræði árið 2003 frá Uni­versity of London. Guðni hefur verið kenn­ari við Há­­skóla Íslands, Há­­skól­ann í Reykja­vík, Há­­skól­ann á Bif­­röst og Uni­versity of London. Síðast starf­aði hann sem dós­ent í sagn­fræði við Há­­skóla Íslands.

6. Guðni hefur skrifað fjölda fræði­rita og greina í gegn um tíð­ina. Hann hefur skrifað sex bækur sem hafa verið gefnar út: Kári í jöt­un­móð. Saga Íslenskrar erfða­grein­ingar og Kára Stef­áns­sonar (1999), Völ­und­ar­hús valds­ins. Stjórn­ar­mynd­anir, stjórn­ar­slit og staða for­seta Íslands í emb­ætt­is­tíð Krist­jáns Eldjárns, 1968-1980 (2005), Óvinir rík­is­ins. Ógnir og innra öryggi í kalda stríð­inu á Íslandi (2006), Þorska­stríðin þrjú. Saga land­helg­is­máls­ins 1948-1976 (2006), Hrunið. Ísland á barmi gjald­þrots og upp­lausnar (2009) og Gunnar Thorodd­sen. Ævisaga. (2010).

7. Ein fræg­asta setn­ing sem látin var falla í kosn­inga­bar­átt­unni í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna var þegar Guðni og Davíð Oddsson mætt­ust í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni í lok maí. Davíð skaut föstum skotum að Guðna og sak­aði hann meðal ann­ars um að vilja koll­varpa stjórn­ar­skránni og reyna að hlaupa frá ákveðnum málum.

„Þú segir hérna að þú viljir gera gagn­gera, rót­tæka end­ur­nýjum á stjórn­ar­skránni. Þú segir það vera vegna hruns­ins. Hvað hafði hrunið með stjórn­ar­skránna að gera?“ sagði Davíð.

Guðni svar­aði um hæl: „Hefur þú enga sóma­kennd?“

Velta má fyrir sér hvort sagn­fræð­ing­ur­inn Guðni hafi fengið þar lánað hin frægu ummæli banda­ríska lög­fræð­ings­ins Joseph N. Walsh í rétt­ar­höld­unum árið 1954 þegar hann svar­aði fyrir ásak­anir um að hafa unnið fyrir komm­ún­ista: „Have you no sense of decency, sir?“ sagði Walsh við þing­mann­inn Joseph McCarthy.

8. Fylgi Guðna sem for­seta­fram­bjóð­anda var óvenju­lega hátt í byrjun kosn­inga­bar­átt­unnar. Hann mæld­ist með tæp­lega 70 pró­senta fylgi í þremur könn­unum í röð, en eftir því sem leið á bar­átt­una jöfn­uð­ust hlut­föllin út. Halla Tóm­as­dóttir nálg­að­ist Guðna óðfluga, en hann sigr­aði kosn­ing­una með rúmum 39 pró­sentum atkvæða. Halla fékk um 28 pró­sent atkvæða. Kjörsókn á land­inu öllu var 75,7 pró­sent. 185.390 greiddu atkvæði. Guðni sótti fylgi nokkuð jafnt yfir alla hópa; karla og kvenna, innan og utan höf­uð­borgar og til allra ald­urs­hópa.

9. Guðni hefur náð að halda sig utan flokkapóli­tíkur allan sinn feril. Hann sagði opin­ber­lega í kosn­inga­bar­átt­unni að hann vilji að kosið verði til Alþingis í haust og á 48 ára afmæl­is­dag­inn sinn, morg­un­inn eftir for­seta­kosn­ing­arnar, sagði hann að kosn­ingar ráði mestu um hvernig fari með stjórn­ar­skránna. Í við­tali á RÚV sagði hann að for­seti tti að liðka fyrir að nið­ur­staða kom­ist í það mál. „Ég sagði það síð­ustu vikur að áform um beint lýð­ræði hugn­ist mér, áform um þjóð­ar­eign á auð­lindum, áform um nátt­úru­vernd. Við ættum að geta náð ein­hverri sátt,“ sagði Guðni við RÚV.

10. Guðni verður fyrsti for­seti lands­ins sem er ekki skráður í þjóð­kirkj­una. Guðni stendur utan trú­fé­laga, en hann var alinn upp í kaþ­ólskri trú. Hann skráði sig úr kirkj­unni árið 2013 í kjöl­far við­bragða kirkj­unnar við kyn­ferð­is­brotum innan veggja hennar víða um heim. Einungis tveir í síð­ustu kosn­ingum voru ekki í þjóð­kirkj­unni; Guðni og Ástþór Magn­ús­son. Biskup Íslands hefur sagt að henni þyki óeðli­legt að for­seti Íslands sé ekki skráður í þjóð­kirkj­una, en telur þó að það muni ekki verða vanda­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár