Biskup: Ekki vandamál að Guðni sé utan trúfélaga

Biskup Íslands telur það ekki vanda­mál að næsti for­seti sé ekki skráður í þjóð­kirkj­una. Hún er þó enn á þeirri skoðun að það sé óeðli­legt að for­seti Íslands standi utan kirkj­unnar. Biskup hefur fundað með Guðna.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er enn þeirrar skoðunar að það sé óeðlilegt að hafa forseta sem standi utan þjóðkirkjunnar, en hún telur það ekki verða vandamál.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, er enn þeirrar skoð­unar að það sé óeðli­legt að hafa for­seta sem standi utan þjóð­kirkj­unnar, en hún telur það ekki verða vanda­mál.

Biskup Íslands, Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, telur það ekki vanda­mál að næsti for­seti Íslands verði utan þjóð­kirkj­unnar. Í sam­tali við Kjarnann segir hún að þau Guðni Th. Jóhann­es­son hafi rætt saman og hvor­ugt þeirra telji að það eigi eftir að há þeim að hann standi utan trú­fé­laga. Guðni skráði sig úr kaþ­ólsku kirkj­unni árið 2013 í kjöl­far þess að kirkjan hylmdi yfir kyn­ferð­is­brot innan hennar. Guðni verður fyrsti for­seti lýð­veld­is­ins sem er ekki skráður í þjóð­kirkj­una.

Agnes sagði í Kjarn­anum í jan­úar að hún teldi óeðli­legt ef næsti for­seti væri utan kirkj­unnar. Nú, hálfu ári seinna, seg­ist hún ekki vera búin að skipta um skoðun, þó að þetta sé ekki atriði til þess að gera ágrein­ing út af.

„Það er ríkir trú­frelsi hér á landi og hver og einn ræður því hvar hann eða hún er skráður,“ segir Agnes. „Þjóðin hefur nú kosið nýjan for­seta og þetta er nið­ur­staðan.“

Hittust fyrir tilviljun á guðsþjónustu

Eins og áður segir hafa Agnes og Guðni átt fund saman en þau hitt­ust fyrir til­viljun í Dóm­kirkj­unni aftur í fyrra­dag við guðs­þjón­ustu.

„Þetta er ekki vanda­mál heldur stað­reynd,“ segir Agnes. „Svona er þetta og ég sé engin merki þess að sam­leið okkar emb­ætta geti ekki orðið far­sæl.“

Guðni sagði í sam­tali við Kjarnann í maí, þegar hann var í kosn­inga­bar­áttu, að það yrðu engin vand­ræði fyrir hann að sinna skyldum sem lúti að kirkj­unni.

„Nái ég kjöri, verður mér bæði ljúft og skylt að ganga við hlið bisk­ups við setn­ingu Alþingis og hlýða á predikun míns góða vinar Sveins Val­geirs­sonar dóm­kirkju­prests,” sagði Guðni. „Ég er langt frá því að vera trú­laus og kristin gildi eru und­ir­staða okkar lýð­ræðis og vel­ferð­ar­sam­fé­lags­.“

Agnes seg­ist óska Guðna til ham­ingju með að hafa náð kjöri.

„Auðvitað væntum við mik­ils af honum eins og allra í þessu emb­ætti. Ég bið honum bless­unar í hans störfum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár