Biskup segir óeðlilegt ef næsti forseti verði utan þjóðkirkjunnar

Biskup Íslands telur óeðli­legt ef næsti for­seti lands­ins til­heyrir ekki þjóð­kirkj­unni. Hún byggir það á ákvæðum í stjórn­ar­skrá sem hún vill ekki breyta og von­ast eftir því að næsti for­seti verði krist­innar trúar.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, ganga til Dómkirkjunnar.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og biskup Íslands, Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, ganga til Dóm­kirkj­unnar. Mynd: Birgir Þór

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, telur óeðli­legt ef næsti for­seti lands­ins verði ekki krist­innar trúar og skráður utan þjóð­kirkj­unnar. Í sam­tali við Kjarnann segir hún byggja skoðun sína á ákvæðum í stjórn­ar­skrá um að rík­is­valdið skuli styðja og vernda þjóð­kirkj­una og litið sé á for­set­ann sem vernd­ara hennar.

„Það er óeðli­legt að hann verði utan þjóð­kirkj­unnar á meðan við búum við þetta sama skipu­lag," segir hún.

Agnes seg­ist þó munu virða vilja þjóð­ar­innar ef það kemur til þess að breyta þessum ákvæðum í stjórn­ar­skrá.

„Er það ekki þannig að meiri­hlut­inn ræður?," segir hún. „Ef það er vilji þjóð­ar­innar að breyta ákvæð­inu, þá virði ég það. Þó að ég mundi vilja halda þessu óbreyttu."

En hvaða áhrif hefði það á sam­starf emb­ætt­anna tveggja, for­set­ans og bisk­ups, ef sá fyrr­nefndi stæði utan þjóð­kirkj­unnar?

„Ég veit ekki hvort það mundi bein­línis hafa áhrif á kirkj­una, en vænt­an­lega margar hefðir sem hafa skap­ast í kring um sam­skiptin," segir Agnes, og nefnir vígslu for­seta sem dæmi, sem fer fram við hátíð­lega athöfn í Dóm­kirkj­unni.

„Ég mundi halda að for­seti sem væri ekki í þjóð­kirkj­unni hefði lít­inn áhuga á slíkri athöfn," segir hún og bætir við að eðli­lega von­ast hún eftir því að næsti for­seti verði krist­innar trúar, eins og verið hefur.

Agnes var sömu skoð­unar í aðdrag­anda síð­ustu for­seta­kosn­inga árið 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár