Hvert atkvæði Davíðs kostaði rúmlega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6 pró­sent þeirra og lenti í þriðja sæti. Guðni Th. Jóhann­es­son, sem var kjör­inn for­seti Íslands með 39,1 pró­sent atkvæða, greiddi 352 krónur fyrir hvert atkvæði sem honum var greitt. Halla Tóm­as­dóttir, sem lenti í öðru sæti í kosn­ing­unum, borg­aði minnst þeirra fjög­urra efstu fyrir hvert greitt atkvæði, eða 175 krónur. Hún hlaut 27,9 pró­sent atkvæða og varð önnur í kjör­inu. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Frestur fram­bjóð­enda til að skila inn yfir­liti yfir kostnað og styrki vegna fram­boða sinna til Rík­is­end­ur­skoð­unar rann út í gær. Davíð Oddsson rak dýr­ustu kosn­inga­bar­átt­una og eyddi sam­tals tæp­lega 28 millj­ónum króna í hana. Þar af eyddi Davíð rúm­lega ell­efu millj­ónum króna úr eigin vasa auk þess sem eig­in­kona hans styrkti fram­boðið um 400 þús­und krónur. Engin hinna fram­bjóð­end­anna eyddi meira en tveimur millj­ónum króna af eigin fé í bar­átt­una.

Ein­stak­lingar og félög tengd eig­endum og stjórn Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, voru áber­andi í hópi styrkj­enda fram­boðs­ins. Þar var einnig að finna félag tengt Eyþóri Arnalds, og félag í eigu Ara Edwald, for­stjóra Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Þá gaf Kaup­fé­lag Skag­firð­inga Davíð hámarks­fram­lag upp á 400 þús­und krónur auk þess sem kaup­fé­lags­stjóri þess Þórólfur Gíslason, gaf sömu upp­hæð í eigin nafni. Kristján Loftsson, útgerð­ar­maður og einn stærsti eig­andi HB Granda, gaf einnig 400 þús­und krónur.

Guðni Th. hafði skilað sínu upp­gjöri nokkru fyrr en flestir hinna fram­bjóð­end­anna. Hann eyddi alls um 25 millj­ónum króna í sitt fram­boð. Kostn­aður við fram­boð Höllu nam um níu millj­ónum króna og Andri Snær eyddi um 15 millj­ónum króna í sína bar­áttu. Aðrir fram­bjóð­endur ráku mun ódýr­ari kosn­inga­bar­áttu sem kost­aði ein­ungis nokkur hund­ruð þús­und hver.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár