Framboð Guðna Th. kostaði 25 milljónir

Guðni Th. Jóhannesson flytur innsetningarræðu sína í Alþingishúsinu 1. ágúst.
Guðni Th. Jóhann­es­son flytur inn­setn­ing­ar­ræðu sína í Alþing­is­hús­inu 1. ágúst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Framboð Guðna Th. Jóhann­es­sonar til for­seta Íslands kost­aði rúm­lega 25 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í úrdrætti Rík­is­end­ur­skoð­unar á upp­gjöri Guðna, en allir fram­bjóð­endur verða að skila slíku upp­gjöri eftir kosn­ingar.

Framlög fyr­ir­tækja til Guðna námu tæp­lega ell­efu millj­ónum króna en fram­lög ein­stak­linga rúm­lega 13 millj­ónum. Guðni setti sjálfur rúma milljón í fram­boðið. Tekjur fram­boðs­ins námu því sam­tals rúm­lega 26 millj­ónum króna, svo að afgangur upp á 1,2 millj­ónir var að kosn­inga­bar­átt­unni lok­inni.

Níu ein­stak­lingar gáfu fram­boði Guðna á bil­inu 250 þús­und til 400 þús­und krónur, en til­greina þarf fram­lög sem eru yfir 200 þús­und krónum sér­stak­lega. Auk þess gáfu 860 ein­stak­lingar til við­bótar sam­tals 10 millj­ónir króna.

Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem gáfu fram­boði Guðna hámarks­fram­lag, sem er 400 þús­und krónur, eru Alvogen, Atl­ants­olía, Hekla, Samskip, Trygg­inga­mið­stöðin, WOW Air og Ölgerðin. Einnig gaf almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM hámarks­upp­hæð, en Friðjón Frið­jóns­son, einn eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, var í kosn­ingateymi Guðna.

Ekki hafa verið birt upp­gjör ann­arra fram­bjóð­enda sem fengu mest fylgi í kosn­ing­unum, það er þeirra Höllu Tóm­as­dóttur, Davíðs Odds­sonar og Andra Snæs Magna­sonar. Guðrún Margrét Björns­dóttir og Hildur Þórð­ar­dóttir hafa skilað sínum upp­gjörum. Framboð Guðrúnar kost­aði 536 þús­und krónur, þar af lagði hún sjálf til 386 þús­und krónur og Gunnar Egg­erts­son hf. 150 þús­und krónur. Hildur eyddi innan við 400 þús­und krónum í sitt fram­boð og þarf því aðeins að skila yfir­lýs­ingu þar um, en ekki upp­gjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár