Framboð Davíðs kostaði tæpar 28 milljónir

Framboð Davíðs Odds­sonar kost­aði tæpar 28 millj­ónir króna, og rúm­lega 11 millj­ónir komu frá honum sjálfum. Útgerð­ar­fé­lög og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eru meðal þeirra sem gáfu honum hámarks­fram­lag.

Framboð Davíðs Odds­sonar til for­seta Íslands kost­aði tæp­lega 28 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í útdrætti úr upp­gjöri hans, sem hann hefur skilað til Rík­is­end­ur­skoð­unar. Það er hæsta upp­hæðin sem eytt var í kosn­inga­bar­áttu, af þeim sem eru búnir að skila inn upp­gjöri sínu. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, eyddi um 25 millj­ónum króna í sitt fram­boð.

Hann fékk ríf­lega átta millj­ónir króna frá lög­að­ilum og einnig frá ein­stak­lingum. Ríflega ell­efu millj­ónir króna komu frá honum sjálfum. 400 þús­und krónur komu frá eig­in­konu hans, Ástríði Thoraren­sen.

Meðal ann­arra sem gáfu Davíð hámarks­fram­lagið sem ein­stak­lingar mega gefa, 400 þús­und krónur, eru Þórólfur Gíslason kaup­fé­lags­stjóri í Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, og Kristján Loftsson útgerð­ar­maður. Hann fékk tæp­lega 3,5 millj­ónir frá 43 öðrum ein­stak­lingum, sem gáfu minna en 200 þús­und krónur.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga gaf honum einnig hámarks­fram­lagið 400 þús­und krónur, það gerðu líka Bygg­inga­fé­lag Gylfa/Gunnars, Kjarna­fæði, Krossa­nes eignir, Lands­prent, Lýsi, Orbis Invest, Stilling og Brekku­hús ehf.

Þá er tals­vert um útgerð­ar­fé­lög í hópi þeirra sem gáfu honum hámarks­upp­hæð, Einhamar Seafood, Ísfélag Vest­manna­eyja, Rammi hf, Þorbjörn hf og ÞR ehf, eru meðal þeirra. ÍSAM, Íslensk Ameríska, gaf einnig 400 þús­und krónur, en félagið er í eigu sömu aðila og Ísfé­lagið, sem einnig eru stærstu eig­endur Morg­un­blaðs­ins, þar sem Davíð er rit­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár