Guðni Th: Ekkert að óttast ef við sýnum skynsemi og mannúð

Verðandi for­seti Íslands segir að Ísland geti ekki bjargað heim­inum en eigi að leggja sitt af mörkum. Stundum verði hræðslan skyn­sem­inni yfir­sterk­ari í umræðu um útlend­inga.

Guðni Th. Jóhann­es­son, verð­andi for­seti Íslands, seg­ist verða að gæta í sín í umræðu um flótta­menn og hæl­is­leit­endur. Hann vilji ekki þaga en verði líka að sýna því skiln­ing að sjón­ar­mið veg­ist á, eins og í máli tveggja hæl­is­leit­enda sem voru dregnir út úr Lauga­nes­kirkju í síð­ustu viku. Ísland geti ekki bjargað heim­inum, en geti lagt sitt af mörkum.

„Ég held að við höfum allar for­sendur til að búa fólki hér nýja ver­öld, búa því nýtt líf án þess að okkar sam­fé­lag skað­ist á nokkurn hátt. Við höfum tekið á móti fólki, við verðum að halda því áfram,“ sagði for­set­inn verð­andi í við­tali við Helga Seljan í Viku­lok­unum á Rás 1. Á Íslandi séu ekki sömu vanda­mál varð­andi inn­flytj­endur og sums staðar ann­ars staðar.

„Það er ekk­ert að ótt­ast hér á Íslandi ef við erum skyn­söm og sýnum mannúð.“ Hann var þá spurður að því hvort honum þætti skorta á mann­úð­ina á Íslandi. „Mér finnst stundum hræðslan verða skyn­sem­inni yfir­sterk­ari. Það er svo auð­velt að mála fjand­ann á vegg­inn.“ Hann eigi sjálfur konu frá Kanada, sem sé land inn­flytj­enda. „Þar hefur að mestu tek­ist að búa til sam­fé­lag þar sem inn­flytj­endur eru vel­komnir.“ Kanada geti verið okkur fyr­ir­mynd að vissu leyti.

„Við hér á Íslandi eigum að hlakka til og gleðj­ast yfir þeim sem vilja hingað koma og bæta okkar sam­fé­lag, en við getum ekki tekið á móti öllum sem hingað vilja koma, það vita allir. Líka þeir sem vilja sýna mannúð eins og ég,“ sagði Guðni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár