Tveir forsetaframbjóðendur af níu eru ekki skráðir í þjóðkirkjuna

Guðni Th. Jóhann­es­son og Ástþór Magn­ús­son eru ekki í þjóð­kirkj­unni. Báðir eru þó trú­aðir. Ástþór skipti um trú­fé­lag þegar hann gift­ist og Guðni hætti í kaþ­ólsku kirkj­unni eftir við­brögð hennar við kyn­ferð­is­brotum. Biskup vill hafa for­seta í þjóð­kirkj­unni.

Biskupi Íslands finnst óeðlilegt ef næsti forseti stendur utan þjóðkirkjunnar.
Biskupi Íslands finnst óeðli­legt ef næsti for­seti stendur utan þjóð­kirkj­unnar. Mynd: Birgir Þór

Flestir for­seta­fram­bjóð­endur eru skráðir í þjóð­kirkj­una, að tveimur und­an­skildum. Ástþór Magn­ús­son er skráður í Óháða söfn­uð­inn og Guðni Th. Jóhann­es­son stendur utan trú­fé­laga, en hann skráði sig úr kaþ­ólsku kirkj­unni, sem hann var alinn upp í, þegar fréttir bár­ust af kyn­ferð­is­brotum innan safn­að­anna um allan heim. Báðir segj­ast þeir þó vera trú­aðir.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, sagði í Kjarn­anum í jan­úar að henni þætti óeðli­legt ef næsti for­seti væri ekki skráður í þjóð­kirkj­una og væri ekki krist­inn.

[adspot]

Agnes sagð­ist ekki vita hvort það mundi bein­línis hafa áhrif á kirkj­una að hafa for­seta utan þjóð­kirkj­unnar, en hefðir gætu breyst og nefndi hún þar vígslu for­seta sem dæmi, sem fer fram við athöfn í Dóm­kirkj­unni. „Ég mundi halda að for­seti sem væri ekki í þjóð­kirkj­unni hefði lít­inn áhuga á slíkri athöfn," sagði Agnes.

Langt frá því að vera trúlaus

Guðni und­ir­strikar að það verði engin vand­ræði fyrir hann að sinna skyldum sem lúti að kirkj­unni. „Svo verður alls ekki í mínu til­felli. Nái ég kjöri, verður mér bæði ljúft og skylt að ganga við hlið bisk­ups við setn­ingu Alþingis og hlýða á predikun míns góða vinar Sveins Val­geirs­sonar dóm­kirkju­prests,” segir Guðni í sam­tali við Kjarnann. „Ég er langt frá því að vera trú­laus og kristin gildi eru und­ir­staða okkar lýð­ræðis og vel­ferð­ar­sam­fé­lags.“

Eins og áður segir skráði Guðni sig úr kaþ­ólsku kirkj­unni í kjöl­far heims­frétta af kyn­ferð­is­brotum klerka hennar gegn börnum.

„Ég kunni ekki við slæg­leg við­brögð kirkj­unnar við þeim afbrotum sem upp komust og ákvað, í kyrr­þey, að mér liði betur utan kaþ­ólsku kirkj­unnar,” segir hann og bætir við að hann hafi íhugað að ganga í Frí­kirkj­una, en hafi ákveðið að haga hlutum svona, að minnsta kosti um stund­ar­sakir. „Ég sæki kirkju eins og hver annar, öll okkar börn eru skírð og við lesum Faðir vorið á kvöldin eins og margir í land­inu,” segir Guðni. „Því trú­laus er ég ekki þó, að ég standi utan trú­fé­laga.“

[quote font="0" align="right"]Ég kunni ekki við slæg­leg við­brögð kirkj­unnar við þeim afbrotum sem upp komust og ákvað, í kyrr­þey, að mér liði betur utan kaþ­ólsku kirkj­unnar[/quote]

Sama kristna trúin, bara annað hús og prestur

Ástþór skipti um trú­fé­lag þegar hann gift­ist Nataíu eig­in­konu sinni, en hún var skráð í Óháða söfn­uð­inn. „Þetta er í raun nákvæm­lega sama kristna trúin og þjóð­kirkjan, bara annað hús og annar prestur,” segir Ástþór.

„Ég var alltaf í þjóð­kirkj­unni, er skírður og fermdur, ólst upp við að fara í sunnu­daga­skóla hjá KFUM og fór hvern ein­asta sunnu­dag í kirkju sem barn og ung­lingur.“ Ástþór er ánægður í Óháða söfn­uð­inum og segir prest­inn skemmti­legan og mess­urnar vel sóttar. 

[quote font="0" align="right"]Ég var alltaf í þjóð­kirkj­unni, er skírður og fermdur, ólst upp við að fara í sunnu­daga­skóla hjá KFUM og fór hvern ein­asta sunnu­dag í kirkju sem barn og ung­lingur[/quote]

Aðrir frambjóðendur eru skráðir

Andri Snær Magnason, Davíð Oddsson, Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Sturla Jónsson eru öll skráð í þjóð­kirkj­una. Guðrún Margrét Páls­dóttir er mjög trúuð og hefur talað mikið um mátt bæn­ar­innar í kosn­inga­bar­átt­unni. Guðrún skrif­aði síð­ast grein í Morg­un­blaðið í gær sem fjall­aði um Guð.

Biskup vill ekki breyta ákvæði í stjórnarskrá

Biskup við Kjarnann í jan­úar að hún teldi óeðli­legt ef næsti for­seti væri ekki krist­innar trúar og ekki skráður í þjóð­kirkj­una. Hún byggði skoðun sína á ákvæðum í stjórn­ar­skrá um að rík­is­valdið skuli styðja og vernda þjóð­kirkj­una og litið sé á for­set­ann sem vernd­ara henn­ar.

„Það er óeðli­legt að hann verði utan þjóð­kirkj­unnar á meðan við búum við þetta sama skipu­lag," sagði Agnes í jan­úar. „Ef það er vilji þjóð­ar­innar að breyta ákvæð­inu, þá virði ég það. Þó að ég mundi vilja halda þessu óbreytt­u."

Agnes var sömu skoð­unar í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna árið 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár