Guðni Th. með tæplega 70 prósent fylgi í þriðju könnuninni í röð - Davíð sækir á

Guðni Th. Jóhann­es­son mælist með rúm­lega tvo þriðju hluta atkvæða í hverri könn­un­inni á fætur annarri. Davíð Oddsson sækir aðeins í sig veðrið og Sturla Jónsson mælist nú með fjórða mesta fylgið.

Alls ætla 67,1 pró­sent svar­enda í nýrri könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morg­un­blaðið að kjósa Guðna Th. Jóhann­es­son sem for­seta Íslands. Í gær var birt könnun frá Maskínu sem sýndi að Guðni Th. var með 67,2 pró­sent fylgi og í könnun Frétta­blaðs­ins í byrjun viku mæld­ist stuðn­ingur við hann verða 69 pró­sent. Guðni Th. hefur því mælst með tæp­lega 70 pró­sent stuðn­ing í öllum þremur könn­unum sem fram­kvæmdar hafa verið síðan að hann til­kynnti for­seta­fram­boð fyrir níu dögum síðan.

Í Morg­un­blað­inu kemur fram að Davíð Oddsson, rit­stjóri blaðs­ins, myndi fá 17,4 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag. Davíð til­kynnti fram­boð sitt síð­ast­lið­inn sunnu­dag og hefur fylgi við hann mælst meira í hverri könnun sem gerð hefur verið síðan þá. Í Frétta­blaðs­könn­un­inni á mið­viku­dag sögð­ust 13,7 pró­sent styðja Davíð, í Maskínu-könn­un­inni í gær mæld­ist fylgi hans eilítið hærra,eða 14,8 pró­sent, og í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar mælist fylgið 17,4 pró­sent. Davíð opn­aði kosn­inga­skrif­stofu sína í gær.

Andri Snær Magnason rit­höf­undur mælist með 7,8 pró­sent fylgi í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar, sem er minni stuðn­ingur en hann mæld­ist með í hinum könn­unum tveimur. Athygli vekur að Sturla Jónsson mælist með fjórða mesta stuðn­ing­inn hjá Félags­vís­inda­stofnun, myndi fá 1,8 pró­sent fylgi, en Halla Tóm­as­dóttir mælist með 1,5 pró­sent. Halla hefur í öllum öðrum könn­unum sem gerðar hafa verið að und­an­förnu mælst fjórði stærsti fram­bjóð­and­inn.

Fylgi við Guðna Th. mælist sem fyrr mjög jafnt milli kynja, ald­urs- og mennt­un­ar­hópa. Þá nýtur hann stuðn­ings nán­ast til jafns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á lands­byggð­inni. Davíð nýtur afger­andi meiri stuðn­ings hjá körlum en konum og hjá eldra fólki en því yngri. Þannig segj­ast 27 pró­sent þeirra sem eru eldri en 60 ætla að kjósa hann en tíu pró­sent þeirra sem eru undir þrí­tugu.Davíð nýtur auk þess minnst stuðn­ings hjá þeim sem hafa lokið háskóla­námi og stuðn­ingur á lands­byggð­inni er umtals­vert meiri en í höf­uð­borg­inni.Málum er nán­ast algjör­lega öfugt farið hjá Andra Snæ. Ungt fólk, með háskóla­nám sem býr á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndar kjarn­ann í fylgi hans. Auk þess nýtur hann meiri stuðn­ings meðal kvenna en karla.

Alls voru 2.003 manns í úr­taki könn­un­ar Fé­lags­vís­inda­stofn­un­ar sem gerð var á net­inu. 937 manns svör­uðu eða 47 pró­sent þeirra sem leitað var til. Reynt var að tryggja að um þver­skurð þjóð­ar­innar væri að ræða.

Fram­boðs­frestur til for­seta rennur út á mið­nætti 20. maí. Kosið verður laug­ar­dag­inn 25. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár