Fær 135.480 krónur á mánuði fyrir formennsku í samgönguráði

Þórunn Egils­dóttir, nýskip­aður for­maður sam­göngu­ráðs, fær ein greitt fyrir setu sína í ráð­inu. Þau laun koma til við­bótar við þing­fara­kaup og álag fyrir að gegna starfi þing­flokks­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Nýskip­aður for­maður, Þórunn Egils­dóttir, fær 135.480 krónur í greiðslur á mán­uði fyrir for­manns­stöð­una. Þórunn er einnig þing­maður og þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fyrir þá vinnu þiggur hún 1,1 milljón króna á mán­uði í þing­fara­kaup auk þess sem hún fær 165.179 krónur á mán­uði í álag vegna starfa sinna sem þing­flokks­for­maður.

Aðrir sem sitja í sam­göngu­ráði fá ekki greitt fyrir stöðu sína innan ráðs­ins en þeir sem sitja með henni þar eru for­stöðu­menn Vega­gerð­ar­innar, Sam­göngu­stofu og Isavia.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu­ráð­herra skip­aði í síð­ustu viku, Þórunni sem for­mann sam­göngu­ráðs. Í til­kynn­ingu vegna skip­unar hennar segir að Þórunn hafi víð­tæka reynslu af sam­göngu - og þing­málum. Þá hafi hún hefur setið í stjórn Samtaka sveit­ar­stjórnar Aust­ur­lands sem fjalla m.a. mikið um sam­göngur. Þórunn hefur setið í sveit­ar­stjórn í nokkur ár, verið odd­viti Vopna­fjarð­ar­hrepps, setið í nokkrum þing­nefndum, auk for­sætis­nefndar Alþingis. Hún hefur einnig mikla reynslu af verk­efna­stjórnun. Hún var kjörin til setu á Alþingi 2013 fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og varð for­maður þing­flokks hans 2015 og aftur frá 2016.

Samkvæmt lögum um sam­göngu­ráð skal ráð­herra skipa for­mann sam­göngu­ráðs og er skip­un­ar­tími hans fjögur ár, en er þó tak­mark­aður við setu þess ráð­herra sem skipar. Þórunn kemur í stað Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem var skip­aður í starfið af Jóni Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi sam­göngu­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

laun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár