Best launuðu hagsmunaverðirnir með hátt í fjórar milljónir króna á mánuði í fyrra

Fram­kvæmda­stjóri hags­muna­sam­taka sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja trónir á toppnum yfir þá hags­muna­verði sem voru með hæstu launin í fyrra. Laun stjórn­enda hags­muna­sam­taka eru miklu hærri en laun þeirra sem fara fyrir verka­lýðs­for­yst­unni.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdstjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og fékk fyrir það um 3,9 milljónir króna á mánuði í fyrra.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir er fram­kvæmd­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, og fékk fyrir það um 3,9 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra. Mynd: RÚV/Skjáskot

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, trónir á toppnum á lista Frjálsrar versl­unar yfir þá starfs­menn hags­muna­sam­taka sem þiggja hæstu launin fyrir vinnu­fram­lag sitt. Heiðrún Lind var með um 3,9 millj­ónir króna í laun á mán­uði á síð­asta ári.

Það er aðeins meira en Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka Iðn­að­ar­ins, tók með sér heim að með­al­tali um hver mán­að­ar­mót á síð­asta ári, en hann fékk rúm­lega 3,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Sigurður er hins vegar í fleiri en einu starfi því hann er líka stjórn­ar­for­maður Kviku banka. Á árinu 2021 fékk hann alls tæp­lega 1,5 millj­ónir króna í laun og líf­eyr­is­greiðslur fyrir að sinna því starfi. Sam­an­lögð laun Sigurðar hækk­uðu um hálfa milljón króna á með­al­tali í fyrra.

Í þriðja sæti kemur Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA), sem var með rúm­lega 3,8 millj­ónir í tekjur á mán­uði á síð­asta ári. Það er um hálfri milljón krónum minna en á árinu 2020 sem bendir til þess að tekjur hans á því ári hafi komið víðar að en ein­vörð­ungu vegna starfa Halldórs Benja­míns fyrir SA.

Við útreikn­ing tekna er miðað við útsvars­stofn sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá. Í töl­unum eru ekki fjár­magnstekj­ur, t.d. af vöxt­um, arði eða sölu hluta­bréfa. Sleppt er skatt­frjálsum dag­pen­ing­um, bíla­styrkjum og greiðslum úr líf­eyr­is­sjóði. Þá verður að hafa í huga að inni í tekj­unum getur líka verið ein­skipt­is­greiðsla vegna úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði hjá líf­eyr­is­sjóð­i.

Nokkrir með um og yfir tvær milljónir á mánuði

Aðrir fyr­ir­ferða­miklir stjórn­endur hags­muna­sam­taka með há laun voru Pétur Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Íslands­stofu, sem var með tæp­lega 2,6 millj­ónir króna á mán­uði. Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, og Friðbert Trausta­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, voru bæði með um tvær millj­ónir króna á mán­uði.

Pétur Blöndal, fram­kvæmda­stjóri Samáls, var með 1,9 millj­ónir króna á mán­uði og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, var með 1,8 milljón króna á mán­uði. Páll Erland Landry, fram­kvæmda­stjóri Samorku, var svo með 1,7 millj­ónir króna í laun á mán­uði á árinu 2021.

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu, tók rúm­lega 1,6 millj­ónir króna með heim um hver mán­aða­mót að með­al­tali og Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, var með tæp­lega 1,5 millj­ónir króna í laun á mán­uði. Skammt á hæla hans, með sam­bæri­leg laun, kom Jóhannes Þór Skúlason, fram­kævmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, með 1,4 millj­ónir króna.

Rúmlega 100 með yfir milljón á mánuði

Ýmsir aðrir starfs­menn hags­muna­sam­taka, utan þeirra sem eru efstir í skipu­riti þeirra, voru með góð laun á síð­asta ári. Má þar nefna Finn Geir Beck, for­stöðu­mann hjá Samorku, sem var með rúm­lega tvær millj­ónir króna í tekjur á mán­uði og Yngva Örn Krist­ins­son, hag­fræð­ing hjá Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem var með nán­ast sömu upp­hæð í laun. Sömu sögu er að segja af Sigríði Mogensen, sviðs­stjóra hjá Samtökum iðn­að­ar­ins. Laun hennar voru rétt um tvær millj­ónir króna á mán­uði sam­kvæmt Tekju­blað­inu.

[adspot]Ásdís Krist­jáns­dóttir, núver­andi bæj­ar­stjóri í Kópavogi, var áður aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri SA og fékk fyrir það rúm­lega 1,8 millj­ónir króna á mán­uði. Hannes Gunnr Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri SA, var með 1,7 millj­ónir króna í laun á mán­uði í fyrra.

Í tekju­flokknum „Hags­muna­sam­tök og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins“ í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unnar eru tólf tekju­hæstu með meira en tvær millj­ónir króna á mán­uði og fjölgar um tvo í þeim hópi milli ára. Þá eru 101 með yfir milljón krónur á mán­uði sem eru 19 fleiri en á árinu 2020.

Forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar allir undir tveimur milljónum

Þegar horft er til þeirra sem vinna innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu, með hæstu mán­að­ar­launin sam­kvæmt Frjálsri verslun eða 2,2 millj­ónir króna. Stefán er 71 árs gam­all og því má ganga út frá því að hluti launa hans séu eft­ir­launa­greiðslur. Hann var pró­fessor í félags­fræði hjá Háskóla Íslands um margra ára skeið en lét af störfum þar í lok árs 2020 eftir 40 ára starf innan skól­ans.

Björn Snæ­björns­son, sem hætti sem for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands fyrr á þessu ári, var með um tvær millj­ónir króna í laun á síð­asta ári. Árni Bjarna­son, for­maður félags skip­stjórn­ar­manna, var með 1,9 millj­ónir króna í laun.

og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags á Íslandi, var með rúm­lega 1,8 millj­ónir króna í laun og Stefán Svein­björns­son, fram­kvæmda­stjóri VR, var með rúm­lega 1,7 millj­ónir króna í laun. Hilmar Harð­ar­son, for­maður Samiðnar, var einnig með um 1,8 millj­ónir króna í laun.

Þá var Kristján Þórður Snæ­björns­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins og starf­andi for­seti ASÍ, með um 1,6 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Það eru svipuð laun og Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands­ins, og Guðbjörg Páls­dóttir, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, voru með á síð­asta ári.

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, var með rúm­lega 1,5 millj­ónir króna í laun á mán­uði á árinu 2021, Þórarinn Eyfjörð, for­maður Sameykis, var með 1,4 millj­ónir króna í laun líkt og Ragnar Þór Pét­urs­son, þáver­andi for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, og Vil­hjálmur Birg­is­son, núver­andi for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness var með tæp­lega þá upp­hæð. Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins, var svo með rúm­lega 1,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun að með­al­tali, sem er nán­ast það sama og Sandra Franks, for­maður Sjúkra­liða­fé­lags Íslands, fékk á mán­uði.

Drífa Snædal, sem nýverið sagði af sér emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands, var með 1,2 millj­ónir króna á mán­uði og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, næst stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, með tæp­lega 1,1 milljón króna.

Formaður Fjölskylduhjálpar með næstum 1,8 milljón á mánuði

Perla Ösp Ásgeirs­dóttir, sem var ráðin fram­kvæmda­stjóri Eflingar í maí síð­ast­liðnum, var með rúm­lega 2,7 millj­ónir króna í laun í fyrra þegar hún starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri áhættu­stýr­ingar hjá Lands­bank­anum. Þá var Karl Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, með um 2,6 millj­ónir króna á mán­uði og Þórey Þórð­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands líf­eyr­is­sjóða, með rúm­lega 2,4 millj­ónir króna í laun.

Önnur athygl­is­verð nöfn sem Frjáls verslun setur undir flokk­inn „Hags­muna­sam­tök og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins“ eru til að mynda Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Félags leigj­enda á Íslandi, sem var með tæp­lega 1,8 millj­ónir króna í tekjur í fyrra sam­kvæmt blað­inu og Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, sem var með um 1,7 millj­ónir króna í laun á mán­uði á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

laun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár