Sigurður Hannesson með 1,5 milljónir á mánuði fyrir stjórnarformennsku í Kviku

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins gegnir stjórn­ar­for­mennsku í Kviku banka sam­hliða starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri stærstu aðild­ar­sam­taka Samtaka atvinnu­lífs­ins. Hann er þriðji launa­hæsti stjórn­ar­for­maður Kaup­hall­ar­innar.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Kviku banka.
Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins og stjórn­ar­for­maður Kviku banka. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, var með tæp­lega 1,5 millj­ónir króna í laun og líf­eyr­is­greiðslur fyrir að sinna starfi stjórn­ar­for­manns Kviku banka, og fyrir að sitja í und­ir­nefndum stjórnar, á árinu 2021. Í fyrra fékk hann alls 17,5 millj­ónir króna fyrir þau störf en fékk 11,7 millj­ónir króna fyrir þau árið áður. Þess ber þó að gera að Sigurður var fyrst kjör­inn í stjórn Kviku banka á aðal­fundi hans í lok mars 2020 og sat því ekki í stjórn allt það ár. Hann hefur verið fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins frá miðju ári 2017 en starf­aði þar áður um nokk­urra ára skeið sem fram­kvæmda­stjóri á eigna­stýr­ing­ar­sviði Kviku banka.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Kviku banka.

Samtök iðn­að­ar­ins birta ekki árs­reikn­ing með upp­lýs­ingum um launa­kjör fram­kvæmda­stjóra en sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar í fyrra, sem sýndi laun á árinu 2020, var Sigurður með 3,3 millj­ónir króna í tekjur að með­al­tali á mán­uði. Gera má ráð fyrir að þær tekjur hafi auk­ist umtals­vert í fyrra í ljósi þess að hann sat allt árið sem stjórn­ar­for­maður Kviku banka og vegna þess að greiðslur fyrir það starf hækk­uðu milli ára.

Mikið gekk á í rekstri félags­ins í fyrra en Kvika, TM og Lykill sam­ein­uð­ust í mars í fyrra. Heild­ar­eignir sam­stæð­unnar juk­ust um 100 pró­sent milli ára og voru 246 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Hagnaður fyrir skatta var 10,5 millj­arðar króna.

Sex með meira en milljón á mánuði

Einungis tveir stjórn­ar­for­menn voru með hærri mán­að­ar­tekjur en Sigurður á síð­asta ári: Arnar Þór Másson sem tók við sem stjórn­ar­for­maður Marel, langstærsta félags Kaup­hallar Íslands, á árinu var með um 1,9 millj­ónir króna á mán­uði og Brynjólfur Bjarna­son, stjórn­ar­for­maður Arion banka, var með um 1,7 millj­ónir króna á mán­uði fyrir að sinna stjórn­ar­for­mennsku og störfum fyrir und­ir­nefndir stjórnar.

[adspot]Alls sex stjórn­ar­for­menn þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðal­markað fengu yfir eina milljón króna í greiðslur að með­al­tali á mán­uði á síð­asta ári en 14 voru með tekjur undir því marki. Flestir voru með tekjur á bil­inu 680 til 950 þús­und krónur á mán­uði fyrir að sinna stjórn­ar­for­mennsku.

Um er að ræða auka­starf sem fólk tekur að sér sam­hliða öðrum störfum eða annarri stjórn­ar­setu. Í engu til­felli er stjórn­ar­for­mennska í skráðu félagi það eina sem við­kom­andi gerir.

Launaskrið hjá forstjórum skráðra félaga

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að með­al­laun for­stjóra þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðal­markað Kaup­hallar Íslands á síð­asta ári hafi verið rúm­lega 5,6 millj­ónir króna. Það er um 8,5 pró­sent hærri laun en þeir voru með að með­al­tali árið 2020, þegar þau voru tæp­lega 5,2 millj­ónir króna. Alls hækk­uðu laun þeirra að með­al­tali um 444 þús­und krón­ur.

Um er að ræða laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði. Vert er að taka fram að tvö skráð félög hafa ekki birt árs­upp­gjör sín. Síld­ar­vinnslan birti ekki fyrr en um miðja þessa viku og því mið­uðu laun for­stjóra hennar í sam­an­tekt Kjarnans við þau laun sem hann hafði á árinu 2020 og Hagar hafa öðru­vísi upp­gjörsár en önnur skráð félög, sem hefst 1. mars. Því mið­uðu laun for­stjóra Haga við upp­gjörsárið 2020/2021.

[links]Sam­kvæmt sam­an­tekt Kjarn­ans hækk­uðu 15 for­stjórar í launum á síð­asta ári, fjórir lækk­uðu og, líkt og áður sagði, þá hefur eitt félag ekki skilað árs­upp­gjöri með upp­lýs­ingum um kjör for­stjóra.

Til sam­an­­burðar má nefna að reglu­leg laun launa­fólks í fullu starfi voru að með­al­tali 670 þús­und krónur á mán­uði árið 2020 og um helm­ingur launa­fólks var með laun á bil­inu 480 til 749 þús­und krónur á mán­uði, sam­kvæmt sam­an­tekt Hag­stofu Íslands. Tíundi hver launa­maður var með reglu­leg laun undir 400 þús­und krónur á mán­uði, en lág­marks­laun á Íslandi í fyrra voru 351 þús­und krón­ur. Laun for­stjóra skráðra félaga hækk­uðu því um ein lág­marks­laun og 93 þús­und krónum betur á síð­asta ári að með­al­tali og voru næstum sext­án­föld lág­marks­laun. Þá á eftir að taka til­lit til kaupauka­greiðslna og áunn­inna kaup­rétta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár