Hildur varði 9,3 milljónum í prófkjörsslaginn og átti eina og hálfa milljón afgangs

Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins átti 1,5 millj­ónir eftir í kosn­inga­sjóði sínum þegar próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni var um garð gengið. Það fé ætlar hún að færa félagi sem hún sjálf stjórnar, en það heitir Frels­is­borgin.

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík varði rúmum 9,3 millj­ónum króna í próf­kjörs­bar­áttu sinni fyrr á árinu. Alls námu styrkir til hennar frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum tæpum 10,9 millj­ónum króna, sem þýðir að yfir 1,5 milljón króna varð eftir í kosn­inga­sjóði Hildar, sam­kvæmt upp­gjöri sem hún sendi til Rík­is­end­ur­skoð­unar á mið­viku­dag.

Það fé sem varð afgangs eftir próf­kjörs­bar­áttu Hildar verður ráð­stafað til félags sem heitir Frels­is­borgin og er í eigu hennar sjálfrar, en til­gangur þess er sagður að „vinna að fram­fara og frels­is­málum í Reykja­vík með það að mark­miði að skapa frjálst, umburð­ar­lynt og opið sam­fé­lag sem byggir á jöfnum tæki­færum“. Félagið var stofnað í sept­em­ber í fyrra.

Hildur fékk alls 4,55 millj­ónir króna í styrki frá sextán fyr­ir­tækjum. Þar af styrktu sex fyr­ir­tæki fram­boð odd­vit­ans um leyfi­lega heild­ar­upp­hæð, sem nemur 400 þús­und krónum.

[adspot]

Félögin sem það gerðu voru Fiski­tangi ehf. sem er í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar for­stjóra útgerð­ar­fé­lags­ins Brims, FÓ eign­ar­hald ehf. sem er í eigu Fannars Ólafs­sonar, Klukku­fell ehf. sem er í eigu Ágústar Magn­ús­sonar, 2G ehf. sem er í eigu Gríms Alfreðs Garð­ars­son, SNV Holding ehf. sem er í eigu Svan­hildar Nönnu Vig­fús­dóttur og Kleos ehf., sem er í eigu Björns Inga Sveins­sonar, sem er faðir Hildar.

Alls fékk Hildur svo rúmar 6,3 millj­ónir í styrki frá alls 28 ein­stak­lingum. Einungis Katrín Gísla­dóttir, móðir Hildar, veitti 300 þús­und króna styrk, sem er það hámarks­fram­lag sem ein­stak­lingar mega veita til stjórn­mála­manna í próf­kjörs­bar­áttu lögum sam­kvæmt.[links]

Samkvæmt upp­gjöri Hildar fór meiri­hluti kostn­aðar í aug­lýs­ingar og kynn­ing­ar­kostnað, eða 5,3 millj­ónir króna. Það er meira en Ragn­hildur Alda M. Vil­hjálms­dóttir, sem skor­aði Hildi á hólm í bar­áttu um odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, varði í aug­lýs­ingar og kynn­inga­mál sín, en alls varði Ragn­hildur Alda 8,8 millj­ónum í sína bar­áttu. Hildur varði afgangnum af fénu í að halda úti kosn­inga­skrif­stofu, en kostn­aður við það er sagður hafa numið rúmum 3,9 millj­ónum króna.

Fengu hærri framlög en bæði Guðlaugur Þór og Áslaug Arna

Töluvert mikið fór fyrir bar­áttu þeirra Hildar og Ragn­hildar Öldu í fjöl­miðlum í aðdrag­anda próf­kjörs Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fram fór í mars. Ef til vill eðli­lega, enda nam aug­lýs­inga­kostn­aður þeirra tveggja sam­an­lagt rúm­lega tíu millj­ónum króna. Hildur hafði að lokum betur í slagnum um odd­vita­sæti list­ans með 49,2 pró­sent greiddra atkvæða, en 37,1 pró­sent vildi sjá Ragn­hildi Öldu leiða list­ann.

Athygli vekur að ekki munar miklu á fram­lögum til þeirra Hildar og Ragn­hildar Öldu og þeim fram­lögum sem þau tvö sem sótt­ust eftir efsta sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar fengu frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum.

Raunar vörðu bæði Hildur og Ragn­hildur Alda báðar meira fé en Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir sem varði 8,7 millj­ónum króna í sína bar­áttu á síð­asta ári. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sem varð hlut­skarpastur í próf­kjöri sjálf­stæð­is­manna fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar, varði alls 11,1 milljón króna í að koma sér á fram­færi við flokks­menn í aðdrag­anda próf­kjörs­ins.

Þar af komu þó 4,4 millj­ónir króna beint úr hans eigin vasa, sam­kvæmt upp­gjöri fram­boðs hans og því ljóst að fram­bjóð­endum til borg­ar­stjórn­ar­próf­kjörs­ins gekk báðum betur en tveimur ráð­herrum og leið­togum flokks­ins á lands­vísu að safna styrkjum frá lög­að­ilum og ein­stak­lingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár