Dagur verður borgarstjóri í Reykjavík í 18 mánuði í viðbót en Einar tekur svo við

Dagur B. Egg­erts­son, sem setið hefur í borg­ar­stjórn Reykja­víkur í 20 ár og verið borg­ar­stjóri síð­ustu átta ár mun sitja áfram í borg­ar­stjóra­stólnum út næsta ár. Þá tekur Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sóknar, við.

Dagur B. Egg­erts­son verður borg­ar­stjóri í Reykja­vík næstu 18 mán­uði. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, tekur svo við emb­ætt­inu og gegnir því til loka yfir­stand­andi kjör­tíma­bils, sem lýkur vorið 2026.

Dagur, sem er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur verið borg­ar­stjóri í Reykja­vík síð­ast­liðin átta ár. Dagur hefur setið í borg­­­ar­­­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­­­­­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­­­fylk­ing­una. Áður en hann varð borg­­ar­­stjóri árið 2014 hafði hann einnig verið borg­­­ar­­­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008.

Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minn­i­hluta er kjör­­­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­­­skildum áður­­­­­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­­­ar­­­stjórn á þeim árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­­­ir. Dagur var for­maður borg­ar­ráðs á árunum 2010 til 2014 þegar Sam­fylk­ingin mynd­aði meiri­hluta með Besta flokknum og Jón Gnarr var borg­ar­stjóri.

[adspot]Einar verður for­maður borg­ar­ráðs þangað til að hann sest í borg­ar­stjóra­stól­inn, en Dagur tekur við þeirri stöðu í byrjun árs 2024. Þórdís Lóa Þór­hals­dóttir, odd­viti Við­reisnar, verður for­seti borg­ar­stjórnar. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, verður for­maður umhverfis- og skipu­lags­sviðs, sem mun taka á sig fleiri verk­efni á nýju kjör­tíma­bili og meðal ann­ars fara með umhverfis- og lofts­lags­mál.

Segir ferskleika yfir nýja meirihlutanum

Nýr meiri­hluti í borg­ar­stjórn Reykja­víkur sam­anstendur af Sam­fylk­ing­unni, Fram­sókn­ar­flokknum, Pírötum og Viðreisn. Hann hefur þrettán borg­ar­full­trúa af 23 og því rúman meiri­hluta.

Sam­fylk­ingin fékk flest atkvæði flokk­anna í nýja meiri­hlut­anum í kosn­ing­unum í síð­asta mán­uði, 20,3 pró­sent, og er með fimm borg­ar­full­trúa. Flokk­ur­inn tap­aði þó fylgi milli kosn­inga. Framsókn vann mik­inn kosn­inga­sigur, fékk 18,7 pró­sent atkvæða og fjóra borg­ar­full­trúa, en hafði engan áður. Píratar fengu 11,6 pró­sent atkvæða og þrjá borg­ar­full­trúa og Viðreisn 5,2 pró­sent og einn borg­ar­full­trúa. Sam­an­lagt fengu flokk­arnir fjórir því 55,8 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn bund­ust böndum eftir kosn­ing­arnar og Vinstri græn úti­lok­uðu þátt­töku í meiri­hluta­sam­starfi eftir að hafa beðið afhroð. Því var engin önnur lausn við myndun meiri­hluta en sam­starf flokk­anna þriggja við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Dagur sagði á blaða­manna­fundi í dag þar sem sátt­máli nýs meiri­hluta var kynntur að það væri mik­ill fersk­leiki yfir nýja meiri­hlut­anum. Einar sagð­ist ákaf­lega ánægður með sátt­mál­ann sem end­ur­spegli kröfur Fram­sóknar í borg­inni. Hann telur sátt­mál­ann einnig svara kalli á breyt­ingar í borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár