Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Miðflokksins og þingmaður Framsóknarflokksins, er á meðal umsækjenda um stöðu bæjarstjóra Hveragerðis. Á meðal annarra umsækjenda með fortíð í stjórnmálum eru Glúmur Baldvinsson, sem leiddi Frjálslynda lýðræðisflokkinn í öðru Reykjavíkurkjördæminu í síðustu þingkosningum en hlaut ekki náð fyrir augum kjósenda, og Karl Gauti Hjaltason, sem komst á þing fyrir Flokk fólksins 2017 en færði sig síðar yfir í Miðflokkinn eftir að hafa verið rekinn úr fyrrnefnda flokknum. Glúmur sótti einnig um starf bæjarstjóra Mosfellsbæjar sem auglýst var laust til umsóknar fyrir skemmstu.
Miklar breytingar urðu í sveitarstjórnarmálum í HveragerðVigdís Hauksdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Miðflokksins og þingmaður Framsóknarflokksins, er á meðal umsækjenda um stöðu bæjarstjóra Hveragerðis. Á meðal annarra umsækjenda með fortíð í stjórnmálum er Glúmur Baldvinsson, sem leiddi Frjálslynda lýðræðisflokkinn í öðru Reykjavíkurkjördæminu í síðustu þingkosningum en hlaut ekki náð fyrir augum kjósenda. Glúmur sótti einnig um starf bæjarstjóra Mosfellsbæjar sem auglýst var laust til umsóknar fyrir skemmstu.
[adspot]Miklar breytingar urðu í sveitarstjórnarmálum í Hveragerði í nýliðnum kosningum. Okkar Hveragerði fékk flest atkvæði í kosningunum, eða 39,6 prósent, og náði að vera stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Það var í fyrsta sinn síðan 1998 sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stærstur í sveitarfélaginu. Framsóknarflokkurinn bætti líka vel við sig og nánast tvöfaldaði fylgi sitt. Okkar Hveragerði og Framsókn mynduðu í kjölfarið nýjan meirihluta og það var forgangsmál hjá þeim að ráða nýjan bæjarstjóra á faglegum grunni.
Við það lauk 16 ára setu Aldísar Hafsteinsdóttur í bæjarstjórastólnum, en hún var í kjölfarið ráðin sveitarstjóri í Hrunamannahreppi. Aldís var í fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, sem hlaut einungis 32,8 prósent atkvæða og tvö kjörna fulltrúa eftir að hafa verið með hreinan meirihluta frá árinu 2006.
Eftirfarandi aðilar sóttu um stöðu bæjarstjóra í Hveragerði:
- Ágúst Örlaugur Magnússon - Vaktstjóri
- Geir Sveinsson - Sjálfstætt starfandi
- Glúmur Baldvinsson - Sjálfstætt starfandi
- Jón Aron Sigmundsson - Sjálfstætt starfandi
- Karl Gauti Hjaltason - Fyrrv. þingmaður
- Karl Óttar Pétursson - Lögmaður
- Kolbrún Hrafnkelsdóttir - Forstjóri
- Konráð Gylfason - Framkvæmdastjóri
- Kristinn Óðinsson - CFO
- Lína Björg Tryggvadóttir - Skrifstofustjóri
- Magnús Björgvin Jóhannesson - Framkvæmdastjóri
- Matthildur Ásmundardóttir - Fyrrv. bæjarstjóri
- Sigurður Erlingsson - Stjórnarformaður
- Sigurgeir Snorri Gunnarsson - Eftirlaunaþegi
- Valdimar O. Hermannsson - Fyrrv. sveitarstjóri
- Vigdís Hauksdóttir - Fyrrv. borgarfulltrúi
- Þorsteinn Þorsteinsson - Deildarstjóri
- Þórdís Sif Sigurðardóttir - Fyrrv. sveitarstjóri
- Þröstur Óskarsson - Sérfræðingur
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir