Húsnæðisátak meðal þess sem finna má í samstarfssáttmála nýs meirihluta

Sam­starfs­sátt­máli nýs meiri­hluta í Reykja­vík svarar kröfu Fram­sóknar um breyt­ingar í borg­inni að öllu leyti að sögn odd­vita flokks­ins. Hús­næð­isá­tak er meðal þess sem finna má í sátt­mál­anum, sem er 33 síður.

Oddvitar flokkanna fjögurra sem mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn kynntu samstarfssáttmála flokkanna í Elliðaárdal í dag.
Oddvitar flokk­anna fjög­urra sem mynda nýjan meiri­hluta í borg­ar­stjórn kynntu sam­starfs­sátt­mála flokk­anna í Elliða­ár­dal í dag. Mynd: Skjáskot: RÚV

Hús­næð­is­mál, sam­göngu­mál og lofts­lags­mál eru meðal helstu mála í sam­starfs­sátt­mála nýs meiri­hluta Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar sem kynntur var á blaða­manna­fundi odd­vita flokk­anna í Elliða­ár­dal í dag.

Í sátt­mál­anum, sem er alls 33 blað­síður, er fyrst fjallað um þau verk­efni sem falla undir fyrstu breyt­ingar.

Meðal þeirra verk­efna er hús­næð­isá­tak og úthlutun lóða í Úlf­arsár­dal, Gufunesi, á Kjal­ar­nesi, Hlíð­ar­enda og Ártúns­höfða, auk sam­keppni um skipu­lag Keldna­lands og Keldna­holts.

Þá verður frí­stunda­styrkur hækk­aður í 75 þús­und krónur 1. jan­úar 2023 og börn á grunn­skóla­aldri frá ókeypis í sund og strætó. Einnig verður við­halds­á­tak sett í for­gang í leik-, grunn- og frí­stunda­hús­næði borg­ar­innar og verk­efnum flýtt eins og kostur er.

Meðal fyrstu verk­efna verður einnig að koma næt­ur­strætó aftur í umferð og gerð verður til­raun með að hafa eina sund­laug borg­ar­innar opna til mið­nættis.

Sáttmálinn svari kröfu Framsóknar um breytingar að öllu leyti

„Ég er ákaf­lega ánægður með þennan sátt­mála. Hann svarar að öllu leyti kröfu Fram­sóknar um breyt­ingar í Reykja­vík á næsta kjör­tíma­bili,“ sagði Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Reykja­vík, á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi nýs meiri­hluta í Elliða­ár­dal í dag.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, sagði áherslur Pírata í sam­starfs­sátt­mál­anum end­ur­spegl­ast í lofts­lags­málum „sem er leið­ar­ljós í gegnum þennan sátt­mála“, auk „lýð­ræðis, gagn­sæis og rétt­láts sam­fé­lags fyrir öll og alla hópa“. Umhverfis- og lofts­lags­mál fara inn í Skipu­lags­ráð sem verður leitt af Dóru Björt.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, sagði að áhersla verði lögð á atvinnu- og nýsköp­un­ar­mál, auk lofts­lags­mála. Þórdís Lóa verður for­seti borg­ar­stjórnar og þar mun sam­tal við atvinnu­lífið fara fram.

[links]Dagur Egg­erts­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, verður áfram borg­ar­stjóri út næsta ár þegar Einar tekur við. Dagur sagði mik­inn fersk­leika yfir nýja meiri­hlut­anum. Að hans mati felst meiri­hluta­sam­starfið í að þróa sam­starfið áfram og í græna átt og að fram undan sé mesta upp­bygg­ing­ar­skeið í sögu borg­ar­innar. „Ekki síst í hús­næð­is­málum en líka í sam­göngu­málum, borg­ar­línu, Sunda­braut og fleiri verk­efni sem við höfum náð saman um.“

Einar sagði kosn­inga­bar­átt­una hafa leitt í ljós kröfu um breyt­ingar í hús­næðis- og sam­göngu­málum og ýmsum vel­ferð­ar­málum og segir hann flokk­ana hafa náð vel saman utan um þessi mál í meiri­hluta­við­ræð­unum. Sam­starfs­sátt­mál­inn er að hans mati gott vega­nesti inn í næstu fjögur ár.

Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar á morgun

Mál­efna­samn­ing­ur­inn verður kynntur innan flokk­anna í kvöld. Fram­sókn­ar­flokkur hefur boðað til fundar innan borg­ar­mála­ráðs flokks­ins. Þá hefur full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík boðað til alls­herj­ar­fundar í hús­næði flokks­ins í Sóltúni. Reykja­vík­ur­ráð Við­reisnar hefur sömu­leiðis boðað til fundar og Píratar í Reykja­vík hafa einnig boðað til kynn­ing­ar­fundar.

Fyrsti borg­ar­stjórn­ar­fundur nýs meiri­hluta verður á morgun, þriðju­dag, og hefst klukkan 14 þar sem verður meðal ann­ars kosið í ráð og nefndir innan borg­ar­stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár