Hildur skilaði uppgjöri vegna prófkjörs í gær

Próf­kjörs­bar­átta Ragn­hildar Öldu Vil­hjálms­dóttur sem einnig sótt­ist eftir odd­vita­sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins kost­aði 8,4 millj­ónir. Fram­bjóð­endur hafa þrjá mán­uði frá próf­kjöri til að skila upp­lýs­ingum um kostnað fram­boða til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur.
Hildur Björns­dóttir er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Ath. Fréttin hefur verið leið­rétt og upp­færð eftir að upp­lýs­ingar bár­ust frá Hildi Björns­dóttur um að hún hafi skilað inn upp­lýs­ingum í gær­kvöldi. Upp­gjörið hefur þó ekki fengið stað­fest­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar ennþá og þar með ekki verið birt.

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, skil­aði upp­lýs­ingum til Rík­is­end­ur­skoð­unar vegna kostn­aðar við fram­boð sitt í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fram fór fyrr á þessu ári í gær. Á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar má finna upp­gjör fram­bjóð­enda eða yfir­lýs­ingu þeirra þess efnis að kostn­aður hafi ekki farið yfir ákveðin við­mið­un­ar­mörk. Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans fyrr í vik­unni að hvorki hefði slík yfir­lýs­ing né upp­gjör borist frá Hildi vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Kjarninn reyndi að hafa sam­band við Hildi Björns­dóttur við vinnslu frétt­ar­innar, án árang­urs.

Hún hefur nú stað­fest við Kjarnann að henni hafi borist upp­gjör frá end­ur­skoð­anda í gær­dag og sent það sam­dæg­urs á Rík­is­end­ur­skoðun sem stað­festi mót­töku um leið. „Upp­gjörið hefur þó ekki fengið stað­fest­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar ennþá og þar með ekki verið birt,“ segir Hildur.

„Fram­bjóð­endum ber að skila Rík­is­end­ur­skoðun sér­stöku fjár­hags­legu upp­gjöri um kosn­inga­bar­áttu sína eigi síðar en þremur mán­uðum frá því að per­sónu­kjörið fór fram. Fram­bjóð­endur eru þó und­an­þegnir upp­gjörs­skyldu ef heild­ar­tekjur eða heild­ar­kostn­aður vegna kosn­inga­bar­átt­unnar var ekki umfram 550 þús.kr. Í þeim til­vikum er þó æski­legt að fram­bjóð­endur skili sér­stakri yfir­lýs­ingu þar um,“ segir í svari Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Prófkjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fór fram dag­ana 18. og 19. mars á þessu ári, svo þriggja mán­aða frest­ur­inn til að skila upp­gjöri rann út upp úr miðjum júní. Fram kemur í svari Rík­is­end­ur­skoð­unar að ekki séu veittir við­bót­ar­frestir en að stofn­unin taki „vita­skuld á móti og birtir öll upp­gjör sem ber­ast, þótt fram­an­greindur frestur sé lið­inn.“

Í svar­inu sagði enn fremur að list­inn sé í stöðugri upp­færslu þessa dag­ana eftir því sem yfir­lýs­ingar og upp­gjör bær­ust. „Embættið vinnur að yfir­ferð nokk­urra upp­gjöra sem þegar hafa borist og verða þau birt um leið og yfir­ferð er lokið án athuga­semda.“ Í hópi þeirra upp­gjöra og yfir­lýs­inga sem birt hafa verið á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar var ekki að finna upp­gjör Hildar Björns­dóttur. Hún hefur nú stað­fest að hún hafi sent það til stofn­un­ar­innar í gær í k

Framboð Ragnhildar Öldu kostaði 8,8 milljónir

Auk Hildar sótt­ist Ragn­hildur Alda Vil­hjálms­dóttir eftir odd­vita­sæti flokks­ins í próf­kjör­inu. Ragn­hildur hefur skilað upp­gjöri til Rík­is­end­ur­skoð­unar og sam­kvæmt því nam kostn­aður fram­boðs hennar rúmum 8,8 millj­ónum króna. Stærsti kostn­að­ar­lið­ur­inn var Mark­aðs­kostn­aður, rúmar 4,9 millj­ónir. Rekstur kosn­inga­mið­stöðvar kost­aði fram­boðið tæpar 1,4 millj­ónir og kostn­aður vegna laun­aðs starfs­fólks nam tæpum 2,6 millj­ónum króna.

Samkvæmt upp­gjöri fram­boðs­ins námu fram­lög fyr­ir­tækja sam­tals tæpum 2,4 millj­ónum króna. Alls styrktu 19 fyr­ir­tæki og lög­að­ilar fram­boðið og námu hæstu fram­lögin frá ein­stökum fyr­ir­tækjum námu 200 þús­und krónum. Þar af leið­andi veitti ekk­ert fyr­ir­tæki fram­boð­inu hámarks­styrk sem er 400 þús­und krónur.

Aftur á móti veittu fjórir ein­stak­lingar fram­boð­inu hámarks­styrk. Þeir ein­stak­lingar sem það gerðu voru for­eldrar Ragn­hildar, Vil­hjálmur Egilsson og Ragn­hildur Pála Ófeigs­dóttir, og systk­ini hennar, þau Anna Katrín Vil­hjálms­dóttir og Ófeigur Páll Vil­hjálms­son. Hvert um sig styrktu þau fram­boðið um 400 þús­und krónur en þar að auki styrktu 33 aðrir ein­stak­lingar fram­boðið um tæpar 4,3 millj­ónar. Heild­ar­styrkir frá ein­stak­lingum námu því tæpum 5,9 millj­ónum króna.

Uppgjör eða yfirlýsing borist frá tíu frambjóðendum af 26

Á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar eru þar að auki birt fjögur upp­gjör frá fram­bjóð­endum í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Framboð Mörtu Guð­jóns­dóttur kost­aði tæpar fjórar millj­ónir, fram­boð Helga Áss Grét­ars­sonar kost­aði tæpa 3,1 milljón, kostn­aður við fram­boð Þorkels Sig­ur­laugs­sonar nam rúmum 2,2 millj­ónum og kosn­inga­bar­átta Jórunnar Pálu Jón­as­dóttur kost­aði tæp­lega 1,2 millj­ónir.

Þar að auki kemur fram á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar að fimm fram­bjóð­endur hafi skilað inn yfir­lýs­ingu um að kostn­aður vegna fram­boðs þeirra hafi ekki farið yfir 550 þús­und krónur. Fram­bjóð­end­urnir sem hafa skilað slíkri yfir­lýs­ingu eru: Ingi­björg Gréta Gísla­dóttir, Ólafur Kristinn Guð­munds­son, Viðar Helgi Guðjohn­sen, Þórður Gunn­ars­son og Örn Þórð­ar­son.

Á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar má því finna upp­gjör eða yfir­lýs­ingu frá tíu fram­bjóð­endum úr próf­kjöri flokks­ins en í alls tóku 26 fram­bjóð­endur þátt í próf­kjör­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár