Diljá Ragnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Hún er lögfræðingur og var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Reykjavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru fyrr á þessu ári.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Diljá hafi útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2017 og lauk svo mastersnámi þaðan árið 2021. „Diljá starfaði hjá LMG lögmönnum frá 2019 til 2022. Hún var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Reykjavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Um mitt ár 2022 hóf hún störf hjá Marel.“
Hún mun hefja störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur í janúar 2023.
[adspot]Diljá tekur við aðstoðarmannastarfinu af Pétri Krogh Ólafssyni, sem hefur verið aðstoðarmaður Dags frá árinu 2014. Pétur var ráðinn í nýtt starf þróunar- og viðskiptastjóra hjá Veitum, sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur (OR), í byrjun desember.
Kjarninn greindi frá því að staðan hafi ekki verið auglýst en OR er að langstærstu leyti í eigu Reykjavíkurborgar. Áður en Pétur gerðist aðstoðarmaður Dags hafði hann nýtt starf þróunar- og viðskiptastjóra hjá Veitum, sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur (OR).
Dagur, sem er oddviti Samfylkingarinnar, myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum, Viðreisn og Pírötum eftir síðustu kosningar. Hann hefur verið borgarstjóri í Reykjavík samfleytt frá árinu 2014 en mun láta af því embætti í lok næsta árs. Þá mun Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, taka við sem borgarstjóri en Dagur verða formaður borgarráðs.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir