Vegglistaverk Libiu og Ólafs þótti óleyfilegur kosningaáróður í Hafnarfirði

Yfir­kjör­stjórn í Hafn­ar­firði taldi sér ekk­ert annað fært en að láta mála yfir vegg­lista­verk Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor. Ólafur segir að allt eins hefði verið hægt að skikka N1 til að taka niður fána.

Veggverkið, sem málað var yfir daginn fyrir kosningar, hafði verið á þessum stað frá því síðasta haust.
Vegg­verkið, sem málað var yfir dag­inn fyrir kosn­ingar, hafði verið á þessum stað frá því síð­asta haust. Mynd: Ólafur Ólafsson

Yfir­kjör­stjórn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Hafn­ar­firði tók í vor ákvörðun um að mála yfir vegg­lista­verk eftir mynd­list­ar­menn­ina Libiu Castro og Ólaf Ólafsson, en stað­setn­ing verks­ins, sem bar skila­boðin „Við eigum nýja stjórn­ar­skrá“ var talin brjóta í bága við ákvæði kosn­inga­laga um óleyfi­legan kosn­inga­á­róður í næsta nágrenni kjör­staðar.

Verkið var fyrir ofan und­ir­göng í nágrenni Lækj­ar­skóla, sem var annar tveggja kjör­staða í Hafn­ar­firði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor. Ólafur vakti fyrir rúmri viku síðan athygli á því, með færslu á Facebook, að verkið væri á bak og burt. Und­ir­göngin sem um ræðir blasa við þeim sem aka inn á bíla­stæði Lækj­ar­skóla við Sól­vangs­veg, en sjást þó ekki frá sjálfum skól­anum, kjör­staðnum.

Libia og Ólafur voru útnefnd mynd­list­ar­menn árs­ins við afhend­ingu Íslensku mynd­list­ar­verð­laun­anna árið 2021, fyrir sýn­ingu sem bar heitið Í leit að töfrum – til­laga að nýrri stjórn­ar­skrá. Var verkið sem málað var yfir í Hafn­ar­firði í þeim sama stíl.

Í athuga­semdum undir færslu sinni sagð­ist Ólafur hafa heyrt af því, sem raunin er, að málað hefði verið yfir verkið skömmu fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar að kröfu kjör­stjórnar og furð­aði sig á þeirri ákvörðun, enda hefðu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor ekki snú­ist um stjórn­ar­skrár­mál.

Samkvæmt svörum sem Kjarninn fékk frá Hafn­ar­fjarð­arbæ var ákvörð­unin um að mála yfir verkið tekin af yfir­kjör­stjórn, en það er kjör­stjórn­ar­innar að tryggja að fram­kvæmd kosn­inga í sveit­ar­fé­lag­inu sé í sam­ræmi við kosn­inga­lög.

Stað­setn­ing skila­boð­anna var „talin brjóta í bága við kosn­inga­lög kafla XIV um atkvæða­greiðslu á kjör­fundi,“ sem finna má í 81. grein nýrra kosn­inga­laga. Þess er einnig getið í svari frá bænum að aug­lýs­ingar stjórn­mála­flokka á strætó­skýlum sem voru í sjón­línu við kjör­staði, hafi verið fjar­lægðar á kjör­dag.

Enga skilgreiningu á kosningaáróðri að finna í nýjum kosningalögum

Laga­greinin sem vísað er til hljóðar svo: „Kjör­stjórn skal sjá til þess að á kjör­stað og í næsta nágrenni hans fari hvorki fram óleyfi­legur kosn­inga­á­róður eða kosn­inga­spjöll né önnur starf­semi sem truflar eða hindrar fram­kvæmd kosn­inga.“

Í nýjum kosn­inga­lögum, sem sam­þykkt voru árið 2021, er ekki sér­stak­lega skil­greint hvað telj­ist sem kosn­inga­á­róður og hvað ekki. Það var hins vegar útskýrt í fyrri lögum um kosn­ingar til Alþingis, sem nú eru á brott fallin.

[adspot]

Í þeim lögum sagði meðal ann­ars að óleyfi­legt væri að reyna að hafa áhrif á atkvæða­greiðslu „hvort heldur er með ræðu­höldum, prent­uðum eða skrif­legum ávörpum eða aug­lýs­ingum, með því að bera eða hafa uppi merki stjórn­mála­sam­taka eða önnur auð­kenni er tengj­ast hinum ólíku sjón­ar­miðum sem kosið er um á sjálfum kjör­staðnum, það er í kjör­fund­ar­stofu, kjör­klefa eða ann­ars staðar í eða á þeim húsa­kynnum þar sem kosn­ing fer fram, svo og í næsta nágrenni.“

Kjörstjórnin sammála um að rétt hafi verið að mála yfir verkið

Í kjör­stjórn Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar sitja þær Þórdís Bjarna­dóttir, sem er for­maður nefnd­ar­innar, Hildur Helga Gísla­dóttir og Helena Mjöll Jóhanns­dóttir. Samkvæmt sam­tölum blaða­manns við þær er ekki annað að skilja en að þær hafi verið sam­stíga um að nauð­syn­legt væri að mála yfir verkið.

„Í aðdrag­anda kosn­inga bár­ust okkur ýmsar ábend­ingar um kosn­inga­á­róður sem væri nálægt kjör­stöðum og myndi geta haft áhrif á fram­kvæmd kosn­inga eða truflað fólk og þetta var meðal ann­ars ein ábend­ing,“ segir Þórdís, sem er full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­stjórn­inni, í sam­tali við Kjarnann. Hún bætir við ákvörðun hafi verið tekin um að mála yfir skila­boðin, þar sem þau voru í sjón­línu við aðkomu að kjör­staðnum.

Hildur Helga, sem er full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­stjórn­inni, sagði við blaða­mann að með þess­ari ákvörðun hefði kjör­stjórnin verið að upp­fylla skyldur sína og gera það sem þurft hefði að gera til að ekki væri hægt að véfengja störf kjör­stjórnar. Helena Mjöll, full­trúi Sam­fylk­ingar í kjör­stjórn­inni, sagði að skila­boðin hefðu verið of nálægt kjör­staðnum. Því hefði þessi ákvörðun verið tekin.

Listamaður afar ósammála

Ólafur Ólafsson mynd­lista­maður er alls ekki á sama máli og kjör­stjórnin. Hann bendir á það í svari til Kjarnans að í þeirri skil­grein­ingu á óleyfi­legum kosn­inga­á­róðri sem skrifuð hafi verið inn í lög sé sér­stak­lega fjallað um að áróður „sem teng­ist hinum ólíku sjón­ar­miðum sem kosið er um á sjálfum kjör­staðnum“ og bendir á að ekki hafi verið kosið um nýja stjórn­ar­skrá í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 14. maí.

„Að mínu mati hefðu þær allt eins getað óskað eftir því að N1 fjar­lægðu fána sína, sem blasa við frá kjör­stað, því það má allt eins líta á nær­veru þeirra sem áróður fyrir jarð­olíu sem elds­neyt­is­gjafa, en orka og orku­gjafar eru eitt af stóru póli­tísku málum dags­ins í dag, á öllum stjórn­un­ar­stigum,“ segir Ólafur.

Annað stjórnarskrárverk fjarlægt af gafli í Hafnarfirði í fyrra

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem verk eftir þau Libiu og Ólaf er látið hverfa fyrir til­stilli yfir­valda í Hafn­ar­firði. Í upp­hafi maí­mán­aðar í fyrra var lista­verk þeirra fjar­lægt af gafli Hafn­ar­borgar, menn­ingar- og lista­mið­stöðvar Hafn­ar­fjarðar, að beiðni bæj­ar­stjór­ans Rósu Guð­bjarts­dóttur.

Það verk var hengt upp á húsið eftir að lista­menn­irnir höfðu að eigin sögn fengið munn­legt leyfi til þess að hengja það utan á Hafn­ar­borg, en sýn­ing á verkum þeirra fór fram inn­an­dyra. Tveimur dögum síðar var verkið hins vegar tekið niður og því borið við að form­legt leyfi fyrir upp­setn­ingu þess hefði skort.

Lista­verkið sem um ræddi í það skiptið var nákvæm upp­stækkun á einum af mið­unum sem voru fylltir út af þátt­tak­endum þjóð­fund­ar­ins sem hald­inn var árið 2010 í aðdrag­anda þess að Stjórn­laga­ráð tók til starfa. Á mið­ann hafði verið skrifað „Ekki kjafta ykkur frá nið­ur­stöðum Stjórn­laga­þings“.

Listráð Hafn­ar­borgar sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna þess máls, þar sem sagði að það teldi nið­ur­töku verks­ins „ófor­svar­an­legt inn­grip í list­ræna starf­semi safns­ins og það setji gott orð­spor og heiður safns­ins í alvar­legt upp­nám.“ Bandalag íslenskra lista­manna (BÍL) kall­aði ákvörðun bæj­ar­stjóra for­dæma­lausa og sagði „allar eftir á skýr­ingar um leyf­is­veit­ingar“ vera „hefð­bundið yfir­klór og tækni­legar aðfinnslur til að rétt­læta þá rit­skoð­un,“ í yfir­lýs­ingu.

[adspot]

Löng umræða um málið fór fram á fundi bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar um miðjan maí í fyrra. Full­trúar minni­hlut­ans köll­uðu þar eftir afsök­un­ar­beiðni bæj­ar­stjóra á fjar­læg­ingu lista­verks þeirra Libiu og Ólafs. Rósa bæj­ar­stjóri sagði það hins vegar af og frá að um rit­skoðun hefði verið að ræða. Hún sagði að til­skilin leyfi fyrir upp­setn­ingu verks­ins hefðu ein­fald­lega ekki verið fyrir hendi.

Hún sagði starfs­menn bæj­ar­ins hafa leitað mikið af leyf­inu sem talað hefur verið um að lista­menn­irnir hafi feng­ið. „Þetta er munn­legt eitt­hvað á milli fólks sem að við höfum ekki verið áheyr­endur að sem að stöndum í þessu máli. Það dugar ekki í stjórn­sýslu Hafn­ar­fjarð­ar,“ sagði Rósa.

Þessu arga­þrasi lauk að end­ingu með því að lista­menn­irnir hengdu verk sitt aftur upp á sama stað og gáfu lítið fyrir til­lögur bæj­ar­stjór­ans um að láta verkið vera frístand­andi framan við Hafn­ar­borg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár