Guðlaugur Þór varði 11 milljónum króna í baráttunni við Áslaugu Örnu

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, sem varð hlut­skarpastur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, varði 11,1 milljón króna í próf­kjörs­bar­áttu sinni gegn Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur. Hann lagði sjálfur út 4,4 millj­ónir króna.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Útgjöld vegna fram­boðs Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­víku námu alls 11,1 milljón króna, en þetta kemur fram í upp­gjöri frá honum sem birt­ist á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag.

Guð­laugur Þór fékk alls tæpar 7 millj­ónir króna í styrki frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum, en að auki lagði hann sjálfur per­sónu­lega 4,4 millj­ónir króna í próf­kjörs­bar­átt­una gegn Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

Hvort eigin fram­lög ráð­herr­ans til bar­átt­unnar hafi verið það sem reið bagga­mun­inn er alls óvíst, en raunin varð þó sú að Guð­laugur Þór varð hlut­skarpastur í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík.

[adspot]

Áslaug Arna fékk 8,7 millj­ónir í styrki í sinni fram­boðs­bar­áttu. Styrkir til Guðlaugs Þórs frá fyr­ir­tækjum námu alls rúmum 2,8 millj­ónum króna, en styrkir frá 24 ein­stak­lingum námu 4,1 milljón.[links]

Tvö fyr­ir­tæki, T22 ehf. og Bílar og fólk ehf., styrktu Guðlaug Þór um hámarks­upp­hæð, sem er 400 þús­und krónur.

Alls varði Guð­laugur Þór tæpum 4,7 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar og 6,4 millj­ónum króna í rekstur kosn­inga­skrif­stofu, sam­kvæmt upp­gjör­inu.

Guðrún Hafsteinsdóttir setti tvær milljónir í slaginn

Guðrún Haf­steins­dóttir, sem sigr­aði próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi varði tveimur millj­ónum króna í próf­kjörs­slag sinn gegn Vil­hjálmi Árnasyni þing­manni, sem einnig sótt­ist eftir efsta sæt­inu.

Guðrún fékk styrki frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum að and­virði tæp­lega 1,9 millj­óna króna. Framboð Guðrúnar fékk 400 þús­und króna hámarks­styrk frá einu félagi, V.S. invest­ment ehf.

Ásmundur Frið­riks­son, sem bauð einnig fram í Suð­ur­kjör­dæmi og náði þriðja sæti, varði rúmum 3,2 millj­ónum króna til sinnar bar­áttu, eins og Kjarninn sagði frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár