Arnar Þór Jónsson héraðsdómari, sem hafnaði í fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, fékk rúmar 4,7 milljónir króna í styrki til þess að taka þátt í baráttunni um sæti á lista flokksins. Hann sóttist eftir 2.-3. sæti í prófkjörinu.
Þetta kemur fram í uppgjöri sem stuðningsmannasamtök Arnars Þórs hafa skilað inn til Ríkisendurskoðunar. Arnar Þór er fyrsti frambjóðandinn í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi sem skilar inn uppgjöri vegna framboðsins, en sá frestur er raunar ekki liðinn.[links]
Áður hafði Bergur Þorri Benjamínsson, sem sóttist eftir 4. sæti á lista flokksins í kjördæminu þó skilað inn yfirlýsingu um að hann hefði varið minna en 550 þúsund krónum í framboðsbaráttu sína.
Framboð Arnars Þórs varði rúmlega 3,1 milljón króna í auglýsingar í prófkjörsbaráttunni, samkvæmt því sem segir í uppgjörinu. Það er hærri upphæð en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra varði í auglýsingar oddvitaslag sínum gegn Guðlaugi Þór Þórðarsyni í Reykjavík. Heildarkostnaður vegna framboðs hennar nam þó 8,7 milljónum króna eins og Kjarninn sagði frá í gær.
[adspot]
Alls styrktu fimmtán fyrirtæki framboð Arnars Þórs með fjárframlögum. Þar af létu tvö fyrirtæki, Fasteignamarkaðurinn ehf. og Híbýli ehf., framboðinu hámarksupphæð í té, eða 400 þúsund krónur.

Héraðsdómarinn fékk síðan styrki frá 17 einstaklingum að andvirði rúmlega tveggja milljóna króna.
Uppgjör vegna persónukjörs stjórnmálaflokkanna fyrir þessar kosningar eru þessa dagana að detta inn á vef Ríkisendurskoðunar, en stjórnmálamönnum ber að skila inn uppgjöri eða yfirlýsingu um kostnað innan við þremur mánuðum eftir að prófkjöri lýkur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir