Áslaug Arna setti 8,7 milljónir króna í slaginn á móti Guðlaugi Þór

Próf­kjörs­bar­átta Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur í Reykja­vík kost­aði 8,7 millj­ónir króna, sam­kvæmt upp­gjöri fram­boðs­ins. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sem lagði Áslaugu í bar­áttu um fyrsta sætið í Reykja­vík, hafði ekki skilað upp­gjöri fyrir lok dags í gær.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra, sem hafn­aði í öðru sæti próf­kjörs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í upp­hafi sum­ars, varði rúmum 8,7 millj­ónum króna í leið­togaslag­inn á móti Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra, sem varð hlut­skarpastur í próf­kjör­inu.

Þetta kemur fram í upp­gjöri vegna próf­kjörs Áslaugar Örnu, sem nálg­ast má á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar. Stjórn­mála­mönnum ber að skila inn upp­gjöri eða yfir­lýs­ingu um að kostn­aður þeirra vegna per­sónu­kjörs innan þriggja mán­aða frá því að próf­kjör fer fram.

Sá frestur vegna próf­kjörs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík er nú lið­inn, en þó hafði Guð­laugur Þór, sem ætla má að hafi ásamt Áslaugu varið mestu fé til bar­átt­unnar, ekki skilað inn upp­gjöri fyrir lok dags í gær. Það hafði Diljá Mist Ein­ars­dóttir, sem hreppti þriðja sætið í próf­kjör­inu og háði áber­andi kosn­inga­bar­áttu ekki heldur gert.

Framboð Áslaugar Örnu var fjár­magnað með styrkjum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. Tvö fyr­ir­tæki, Juris slf. og Ness Mana­gement Consulting ehf., styrktu fram­boð Áslaugu Örnu um hámarks­upp­hæð sem lög­að­ilar mega leggja til stjórn­mála­bar­áttu ein­staka fram­bjóð­enda, eða 400 þús­und krónur hvort fyr­ir­tæki.

[adspot]

Faðir Áslaugar Örnu, Sig­ur­björn Magn­ús­son, er einn eig­enda lög­manns­stof­unnar Juris sem styrkti fram­bjóð­and­ann í bar­átt­unni. Eign­ars­halds­fé­lagið Ness Mana­gement Consulting er síðan í eigu Tómasar Más Sig­urðs­sonar for­stjóra HS Orku, en hann er ekk­ill Ólafar Nordal heit­innar dóms­mála­ráð­herra.

Alls námu styrkir til Áslaugar frá fyr­ir­tækjum 2,8 millj­ónum króna, en einnig fékk fram­boð hennar fram­lög frá 27 ein­stak­lingum að and­virði rúm­lega 5,9 millj­óna króna.

Fram­boðið varði tæpum 2,7 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar og starfs­manna­kostn­aður fram­boðs­ins nam tæpum 3,8 millj­ónum króna, sam­kvæm upp­gjör­inu til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Birgir kostaði litlu til en Hildur 3,3 milljónum

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur skilað inn yfir­lýs­ingu til Rík­is­end­ur­skoð­unar um að fram­boð sitt hafi kostað minna en 550 þús­und krónur.

Auk hans og Áslaugar Örnu hefur Hildur Sverr­is­dóttir einnig skilað inn upp­gjöri vegna próf­kjörs­ins.

Hildur fékk rúm­lega 2 millj­ónir króna í styrki frá fyr­ir­tækjum og rúmar 1,3 millj­ónir króna frá alls 20 ein­stak­lingum. Þrjú fyr­ir­tæki, Frum­herji ehf., Lexía ehf. og RHB ehf. styrktu fram­boð Hildar um 400 þús­und krónur hvert.

Andri Gunn­ars­son lög­maður er á meðal eig­enda tveggja fyrst­nefndu fyr­ir­tækj­anna.

Ásmundur Friðriksson varði 3,2 milljónum í baráttu sína

Auk þess sem fram hefur verið lagt um kostnað fram­bjóð­enda í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík hafa fjórir fram­bjóð­endur flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi skilað inn yfir­lýs­ingu um að hafa varið minna en 550 þús­und krónum í próf­kjörs­bar­átt­una. Þar á meðal eru bæði Njáll Trausti Frið­berts­son og Gauti Jóhann­es­son, sem bit­ust um odd­vita­sætið í kjör­dæm­inu.

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður, sem náði 3. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi er eini fram­bjóð­and­inn sem hefur skilað inn upp­gjöri þar. Samkvæmt upp­gjöri hans varði Ásmundur 3,2 millj­ónum króna í fram­boðið. Þar af feng­ust tæpar 2,2 millj­ónir króna í styrki frá fyr­ir­tækjum og rúm milljón króna í styrki frá 10 ein­stak­lingum.

Útgerð­ar­fyr­ir­tæki Þorbjörn í Grinda­vík var eina félagið sem veitti Ásmundi hámarks­styrk, eða 400 þús­und krónur. Kostn­aður fram­boðs Ásmundar við fundi og ferða­lög nam 922 þús­und krónum.

Enginn fram­bjóð­andi í próf­kjörum ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks hefur hingað til skilað inn upp­gjöri, en þónokkrir úr öllum flokkum sem á annað borð héldu próf­kjör eða for­völ hafa skilað inn yfir­lýs­ingum um að kostn­aður þeirra við að höfða til flokks­manna hafi numið undir 550 þús­undum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Uppfært: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var mis­ritað að faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur héti Magnús Sig­ur­björns­son. Hann heitir að sjálf­sögðu Sig­ur­björn og er Magn­ús­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár